Mánudagur, 13. október 2003
Harpa kom á laugardagskvöldið að læra á Dreamweaver. Við enduðum auðvitað á að drekka bjór og kjafta langt fram á nótt. Harpa fékk mig hinsvegar til að gera svolítið sem ég hef ekki gert mjög lengi. (það mun vera bjórinn) Ég lagði fyrir hana Tarot spil.
Ég trúi ekki á Tarot spil og ég er hætt að "spá" fyrir fólki því það eru bara of margir sem taka því sem ég segi eins og heilögum sannleika. Ég kæri mig ekki um að bera ábyrgð á lífi fólks.
Það hefur líklega verið skrítin upplifun fyrir Hörpu að fá svona "spá" því með hverju spili sem ég "túlkaði" árétti ég vitleysuna og ruglið sem það er að trúa þessu.
Því after all. Það eru 72 spil í stokknum. 72 atriði sem eiga við hvern sem er hvenær sem er. Enda átti spáin mjög vel við Hörpu, eins og við var að búast.
Gott dæmi um hvernig þetta virkar er eitt spilið sem "segir" að viðkomandi subject þurfi að taka ákvörðun um eitthvað. Skv. þessu spili muntu fá "sign" til að vísa þér leiðina. Þetta minnir mig á myndina the man with two brains. Þegar Dr huffhurr spyr málverk látnu eiginkonu sinnar hvort hún hafi eitthvað á móti því að hann taki sér Kathleen Turner sem eiginkonu biður hann málverkið um sign. Allt herbergið fer á reiðiskjálf, málverkið snýst í hringi á veggnum og það heyrist "no, NO, NOOOOOOO"
Þegar þessu er lokið segir hann: "Any sign at all, I'll be on the lookout" eða eitthvað í þá veru. Sama gildir um þetta spil. Fólk þarf alltaf að vera að taka ákvarðanir um þetta og hitt og þótt eitthvað spil segi að það muni sjá eitthvað tákn sem segir því hvað það á að gera.. þá virkar þetta ekki þannig. Þetta virkar þannig að fólk mun ákveða hvað það vill gera og sjá svo tákn sem hentar þeirri ákvörðun. Svo telur það sér jafnvel trú um að einhver hafi séð þetta fyrir! Ég sé ekkert fyrir. Nema hið augljósa. Hefði getað sagt Hörpu að hún myndi sjá baðherbergið mitt. Ég vissi það um leið og ég vissi að hún ætlaði að koma með bjór.
Ég sagði henni líka að þegar ég legg spil fyrir mig fæ ég alltaf annaðhvort dauðann eða djöfulinn. Hún fór að hlæja. Svo ég lagði spil fyrir mig. Djöfullinn var spil númer 2. Segið svo að ég sé ekki göldrótt.
MÚHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA