Miðvikudagur, 15. október 2003
Tóti er lagstur í pest. Við ætluðum að halda matarboð í kvöld en þar sem ég læsti Tóta inná baði í sóttkví, og hef ekki gesta baðherbergi, varð ég að hringja í einn matargestinn sem bara tók að sér að halda matarboðið. Tóti var dauðfegin að geta tekið sæng sína úr baðkarinu og fært sig í sófann.
Ég og krakkarnir fórum í matarboð og ég er gjörsamlega að springa ég er svo södd. Við fengum rosalega góðan indverskan rétt með nan brauði og það er langt síðan ég hef borðað svona mikið. Sá svo eftir því þegar ég sá eftirréttinn því ég var svo södd að ég gat rétt torgað einni sneið.
Ég komst að því að Nóna er nú ekki alveg útskrifuð í háttvísi þegar hún lét komment eins og: "Já þetta er bara furðu gott kjöt" eins og hún hafi búist við einhverjum viðbjóði, eða þegar dýrindis terta var borin á borð og Nónu boðin sneið sagði hún: "Nei ég ætla að sjá hvort Doddi getur borðað þetta, þá ætla ég að prufa"...
Á leiðinni út í bíl sá ég norðurljós en þau voru gufuð upp þegar ég ætlaði að sýna krökkunum þau, svo ég keyrði upp í Öskjuhlíð með þau til að sýna þeim en þar var of skýjað til að sjá nokkuð. Oh well.. við förum bara seinna.
Doddi var næstum búin að snúa sig úr hálslið þegar hann sá stjörnurnar á himninum þegar við vorum komin heim en svo þurfti hann skyndilega að pissa, svo skyndilega að hann vildi pissa út í næsta runna. Ég sagði að hann gæti nú vel haldið í sér þangað til við kæmum inn, sem hann gerði, en á leiðinni upp stigann spurði hann mig hvort bunan myndi ekki stinga sig ef hann pissaði á stingurunnann...
Nú eru krakkarnir komnir upp í rúm, Tóti er í sófanum og ég.. er búin að fara í extra víðu joggingbuxurnar mínar því ég borðaði í alvörunni yfir mig.