www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sjokk
Miðvikudagur, 29. október 2003

Annars er ég ennþá í hálfgerðu sjokki. Ég var að fatta hver Jónas R er og komst að því í gærkvöldi að Stöð 2 er drasl. Horfði þess vegna á skjá einn.. eða hlustaði á meðan ég var að vinna í verkefninu mínu.

Queer eye for the straight guy. Mér finnast það skemmtilegir þættir og hef komist að því að draumamaðurinn minn er fimm hommar. Magnað. Ég myndi samt ekki vilja búa með þessum mönnum.. meira horfa á þá í sjónvarpinu...

Jónas R á að stjórna Viltu vinna milljón. Hverjum datt það nú í hug?

Ég hef ekki horft svona mikið (horft/hlustað) á sjónvarp síðan ég veit ekki hvenær. Á móti kemur að ég hef ekki kveikt á tölvunni minni dögum saman. Nú fer reyndar að líða að seinni stigum verkefnisins sem fer allt fram í tölvu svo ég verð í góðum gír í blogginu þá. Auk þess sem ég get blurtað því out hvað ég er búin að vera að gera þegar þetta er tilbúið.

Í dag eru afhent vefverðlaun Vefsýn.


| anna | 11:35 |
comments

Ég er í sjokki að vera ekki með Skjá II. Það er bara búið að leggja þetta helv. breiðband í félagsmálapakkshverfin. Öskrandi aumingjar á bótum ganga alltaf fyrir og ég get ekki horft á Charmed. pirate

Nr. 1 | posted by: Norn | 29.10.2003 | 17:03:09 | [+] |

Ég er ekki í félagsmálapakkahverfi heldur einu af þessu nýju og þar með með Breiðband og skjá II. Gallinn við þetta er sá að við fengum okkur ekkert loftnet svo ég næ engu sem er sent um fjölvarp eins og t.d. stöð 3 eða stöð 2 +. Kemur kannski ekki að sök. En elsku norn þér til huggunar þá er Charmed það eina sem horfandi er á í þessari nýju stöð sem enn sendir út ókeypis þar sem fáir áskrifendur eru til staðar. Svo má að vísu horfa á betri útgáfuna af CSI en allar bíómyndirnar eru óhóflega gamlar og búið að sýna þær oftar en fjórum sinnum á Stöð 2 og ríkinu. 70 mínútur er einhvern vegin það sem kemur mest á óvart á degi hverjum......kv. frá ófrískum sjónvarpsdagskrárgúrú

Nr. 2 | posted by: edda | 29.10.2003 | 17:13:45 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web