www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Romantic Town
Föstudagur, 17. október 2003

Romantic TownÉg náði einu af takmörkum mínum í lífinu í kvöld og framvegis verður þetta dagurinn sem ég fékk púsluspilið Romantic town í pósti, alla leið upp að dyrum.

Þótt ég hafi keypt þetta púsluspil á ebay.de varð ég mjög hissa þegar lagleg hnáta frá Póstinum kom með pakkann því ég keypti þetta fyrir rúmum mánuði síðan. Hélt satt að segja að viðkomandi aðili hefði stiffað mig á þessum díl.
Púsluspilið er frá árinu 1985. Já, 85, það er rétt. Fokking 18 ára gamalt! Djöfull er það scary.
And it's mine, mine, MINE!

Unbefuckingbeleavable!!

Þegar dyrabjallan hringdi svaraði Nóna dyrasímanum. Þegar hún sagði: "ha" datt mér í hug að þetta væri pósturinn.. fékk sting í magann en þorði ekki að vona. Svo.. þegar Nóna sagði: "þetta er pósturinn með pakka fyrir Önnu", þá VISSI ég að þetta var pósturinn með pakka fyrir Önnu! Með þessar upplýsingar var ég dead cert. Því ef hún hefði sagt: "Þetta er pósturinn með sendingu til Önnu hefði ég slökkt á öllum rafmagnstækjum og læst mig og krakkana inná baði í hálftíma. Jafnvel lengur. Alveg þangað til ég var viss um að pósturinn væri farinn. Hótunarbréfin frá Intrum hræða mig svona mikið. hehehe glætan.

Romantic Town 1500 - Ryba
















[smelltu á myndina hér að ofan til að sjá allt púsluspilið]

Ég var búin að plana að púsla þetta um jólin en nú er ég ekki viss um að ég geti beðið svo lengi. Það reynir á festu mína og styrk. Ég þarf að finna "UNAGI!"

Í kvöld gáfumst við Tóti einnig upp á Stöðvar 2 straffinu og fengum okkur áskrift. Og ég tel mér trú um að ég muni púsla þetta um jólin..

Reyndar vorum við síðast í áskrift af Stöð 2 s.l. mars. Jú.. ég ætti að geta þraukað þetta.

Rosalega finnst mér þetta orð, púsla, ljótt.

Tóti er í bíó að sjá Kill Bill. Ég var að horfa á Pulp Fiction byrjunina. Er orðin svo leið á þeirri mynd, eða.. ég er ekki beint leið á henni. Mér leiðist bara Biblíukvótið.


| anna | 19:27 |
comments

Ég er nú alltaf svolítið hrifinn af orðinu stykkjaþraut

...kveðjur í bæinn !

Dórinn

Nr. 1 | posted by: Dorinn | 18.10.2003 | 2:20:14 | [+] |

Einu sinni las ég bók þar sem púsl var kallað myndkotra.

Nr. 2 | posted by: Þórdís | 18.10.2003 | 12:17:35 | [+] |

Mér finnst stykkjaþraut mjög flott orð en einhverra hluta vegna finnt mér það of.. pompus. Líklega einhver komplex í mér.

Myndkotra finnt mér skrítið. Ég er að hugsa um að nota bara púzl. Mér finnst það ágætt. Annars er ég ný vöknuð og þá veit ég sjaldnast hvað mér finnst.

Nr. 3 | posted by: anna | 18.10.2003 | 12:23:13 | [+] |

Elsku Anna mín. Sem jafn mikil stykkjaþrautafíkill og þú þá legg ég til að þú horfir á myndina nokkuð vel í viku. Svo bara láta vaða - opnaðu græjuna og sorteraðu hringinn. Þá ertu bæði búin að kynnast myndinni vel og búin að snerta næstum hvern einasta bita í pokanum. Bara þetta gæti mögulega róað þig til jóla og veitt þér styrk til þess að einbeita þér að öðru þangað til. Í versta falli getur þú alls ekki stoppað og málar rómantíska bæjinn rauðann á einni nóttu. colgate

Nr. 4 | posted by: Eddan | 18.10.2003 | 14:13:16 | [+] |

Hmmm, afhverju myndakotra ? Ég vandist ungur orðinu "kotra" að djöfla þessu saman hét "að kotra" létt nett og þægilegt baral...


Annars er kannski ráð að Anna hringi í Geir H Nörde, hann er kotrustykkjaþrautarpúslari

Nr. 5 | posted by: Dorinn | 18.10.2003 | 16:38:32 | [+] |

Ég var að tala við Geir. Hann segir að púzl sé besta lausnin og svo ætlar hann að bítta við mig nokkrum púzluspilum. ÚHÚ! laughing

Nr. 6 | posted by: anna | 18.10.2003 | 19:42:46 | [+] |

Ég ólst upp við að þetta héti rað og ,,að raða". Ég held að ég hafi verið orðin tíu ára þegar ég heyrði orðið púsluspil í fyrsta skipti og fannst það mjög asnalegt af því að það var ekki verið að spila neitt.

En þetta var nú laust eftir miðja síðustu öld og í fríríkinu Akrahreppi, þar var margt öðruvísi en annars staðar.

Nr. 7 | posted by: Nanna | 18.10.2003 | 19:49:21 | [+] |

En hvernig talar maður um "rað"? Ég keypti mér fimmtánhundruð stykkja rað? Nei andskotinn.. það virkar ekki. Það vantar eitthvað á eftir rað.

Raðspil minnir of mikið á dragspil. Auk þess sem ég er sammála, þetta er ekki spil. Raðþraut? Þetta getur kallast þraut, er það ekki?

Þetta er flókið mál, en heillandi.. á undarlegan hátt.

Eru fleiri með nöfn á púsluspil? Mér finnst stykkjaþraut ennþá ágætt nafn en þarf líklega að nota það meira í samræðum til að venjast því.. áður en ég get farið að skrifa það í blogg.

Svo þegar ég fer að hugsa um að sumir gera stykki... þá finnst mér stykkjaþraut ekkert rosalega heillandi nafn...

Nr. 8 | posted by: anna | 18.10.2003 | 22:46:25 | [+] |

hmmm, gera stykkin sín að púsla ?

....er stykkjaþraut þá hægðarleikur ?

mynd-skat ?

Nr. 9 | posted by: Dorinn | 18.10.2003 | 23:23:26 | [+] |

Jah... þarna erum við komin inn á þitt sérsvið. Hvað finnst þér?

Nr. 10 | posted by: anna | 18.10.2003 | 23:26:14 | [+] |

Hey !

Bull og þvæla, ég er enginn skat-stjóri, er ekkert fyrir skat-amál !!!

aðhyllist enga skat-astefnu

En takk fyrir mannorðsmorðið samt smile

Nr. 11 | posted by: Dorinn | 19.10.2003 | 1:56:56 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web