Mamma heim
Mánudagur, 13. október 2003
Það er búið að senda mömmu heim. Hún er "alheil" eins og læknirinn orðaði það og sleppur við sprautur og geisla. Ég get farið í bað og hætt að vera í vondu skapi. Mér líður eins og í lokin á Simpsons þætti og veit að í næsta þætti verður allt orðið eins og það á að vera...