www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ljóðahornið
Þriðjudagur, 14. október 2003

Í glasinu
vatn
úr tanki
tanka-vatn
það er vindur
úti
hann blæs
heyrist
úúúúúúúú

Leiðindar veður alltaf
segir bókarinn
og ég
er sammála
en segi ekkert
horfi á vatnið
og finn
ég þarf að pissa


| anna | 16:32 |
comments

Ja, maður hefur nú séð það svartara svo það er alveg smá séns allavega fyrir þarnæstu jól.

Nr. 1 | posted by: Þórdís | 14.10.2003 | 18:43:55 | [+] |

Ég hef séð eitthvað svipað, nema það fjallaði um Tímann sáluga líka.

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 14.10.2003 | 19:30:14 | [+] |

laughing

Eru þetta ljóðræn leiðindi ?

....var þetta dull dagur í vinnunni ?

Nr. 3 | posted by: Dorinn | 14.10.2003 | 19:47:57 | [+] |

Þetta ljóð batnar með hverju skiptinu sem maður les það, eins og öll almennileg ljóð.

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 14.10.2003 | 21:02:28 | [+] |

Það er rétt, þetta virðist skána með aldrinum. Ertu viss um að frú anna.is sé ekki að gera bragarbót á bak við tjöldin?

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 14.10.2003 | 21:40:24 | [+] |

Þetta er frábært!! Það er ekki oft sem maður sér jafn hnitmiðaðan og meitlaðan texta!

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 14.10.2003 | 21:56:09 | [+] |

Gjörningurinn ,,Sjálfselska" eftir Önnu.is

Ljómælandinn er fáorður en gagnorður, vindur sér strax að efninu. En þrátt fyrir orðfæð skynjar lesandinn miklar og sterkar tilfinningar ljóðmælandans gagnvart lífinu og þó sérstaklega sér.

Gaman væri ef ungskáld á Íslanfdi tækju Önnu.is sér til fyrirmyndar í þessum stíl og semdu jafnvel enn styttri ljóð. nerdy

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 14.10.2003 | 22:21:23 | [+] |

Já það mætti auðvitað sleppa punktinum. Það er punktur. wink

Nr. 8 | posted by: anna | 14.10.2003 | 22:27:45 | [+] |

Ég sé Helgu Brögu fyrir mér flytja ljóðið í gervi ljóðskáldsins í Fóstbræðrunum sálugu. Ess-hljóðin kæmu þér á skrið í áttina að klósettinu, be sure!

Nr. 9 | posted by: Atviksorða-Anna | 16.10.2003 | 12:16:20 | [+] |

Ég sá þetta einmitt fyrir mér í flutningi Helgu Brögu. Það má segja að ljóðið samið með hennar flutning í huga wink

Nr. 10 | posted by: anna | 16.10.2003 | 13:07:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web