Fimmtudagur, 02. október 2003
Það er sumt dót sem virkilega mótar æsku manns. Sumt dót sem skilur spor eftir í hjartanu og jafnvel sálinni. Ég átti bara eitt svoleiðis dót og það var Ken.
Ég átti auðvitað fullt af Barbie dúkkum en það var bara ein "aðal". Hún var flottust og ég klippti aldrei á hana hanakamb. Það var bara ekkert gaman að leika sér alltaf með Barbie. Það vantaði eitthvað. Það vantaði Ken.
Þegar ég var ca 9 ára fóru pabbi og mamma til útlanda og þegar ég var spurð hvað mig langaði í frá útlöndum þurfti ég ekki að hugsa mig lengi um. Ég vildi Ken. Í þrjár vikur dreymdi mig um gullna plast hárið og traustvekjandi augun. Oh.. ég myndi loksins fá einn Ken fyrir allar Barbiedúkkurnar mínar. Þvílík himnasæla! Ég var strax farin að leggja drög að leik þar sem Barbie dúkkurnar væru allar í kvennabúri og þegar töffarinn, Ken, kæmi í kvennabúrið myndi hann auðvitað falla fyrir "aðal" Barbie þótt pönkara-Barbie væri búin að leggja hana í einelti og hlekkja hana við einn fótinn á skrifborðinu mínu.
Ken myndi koma "aðal" Barbie til hjálpar og höggva hausinn af pönkara-Barbie, öðrum Barbie dúkkum til viðvörunnar. Setja hausinn jafnvel á grillprjón út í glugga! Hvað ég hlakkaði til...
Loks rann upp dagurinn sem pabbi og mamma áttu að koma heim og ég sat útí glugga frá því ég vaknaði þangað til þau komu. Ég var voða fegin að fá þau heim og rosalega spennt því ég var viss um að þau hefðu fundið Ken og keypt hann fyrir mig. Mikið rétt. Þau keyptu fyrir mig Ken. Þau keyptu Sport n Shave Ken. Glataðasta Ken sem ég hef á ævinni séð!
Minn Ken var ekki með gult plast-hár, nei... minn Ken var með hippa nylon hár sem stóð út í allar áttir eins og á geðsjúklingi. Aðal Barbie myndi aldrei líta við svona sikkó, það vissi ég.
Auðvitað vildu foreldrar mínir vel og héldu að þetta væri nú aldeilis flottur Ken með "alvöru" hár. Hvernig áttu þau að vita að um leið og plastið sem hélt hárinu í skefjum þegar Ken var í kassanum myndi standa út um allar áttir eins og hann hefði eytt hálfri ævinni í að reyta á sér hárið, eða eins og hann hafi aldrei farið í bað. Það var ekki nokkur leið fyrir þau að vita þetta.
Klikkhausa Ken fann hinsvegar sálufélaga í pönkara barbie sem var með grænan hanakamb, hakakross tússaðan á ennið og stóra nælu í gegnum nefið. Saman pyntuðu þau allar barbie dúkkurnar í kvennabúrinu og aðal Barbie beið og beið eftir draumaprinsinum sem kom aldrei. Ég man ekki hvað mörg kvöld ég grét mig í svefn hugsandi til aðal barbie og örlaga hennar. Klikkhausa Ken setti varanlegt ör á sálu mína.
Svo komu jólin í fyrra..
Jóhanna hefur aldrei haft gaman af Barbie en það breytir því ekki að hún á þrjár. Af þeim er ég búin að velja eina aðal og þegar Doddi fékk action man í jólagjöf..