www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Intolerable Cruelty
Laugardagur, 18. október 2003

Intolerable CrueltyIntolerable Cruelty. Hvað skal segja...

Þetta er la la mynd, færi betur að horfa á í vídeói en á breiðtjaldinu. Clooney er alltaf flottur og Zetan líka. Geoffrey Rush er æði. Hefði viljað sjá meira af honum.

Það verður að segjast, þessari mynd til varnar, að ég hafði high hopes. Það veit sjaldan á gott. Hún uppfyllti ekki væntingar mínar en er langt frá því að vera ömurð eins og Grandma's House.

Simpson áhugamenn og fíklar geta í þessar mynd barið Mr Burns augum, in the flesh, og séð óheppnasta astmasjúkling sögunnar. Ræðan á N.O.M.A.N. fannst mér pathetic og langaði að gubba.

Coming up... ég hlakka til að sjá Calendar Girls og Love Actually

Rétt í þessu hringdi systir mín og reyndi að drepa mig. Hvernig gerði hún það? Hún sagðist ætla að gefa mér námskeið þar sem mér yrði kennt að sauma flíkur úr loðfeldum. Ég get ekki einu sinni komið inn í búðina hjá Eggert Feldskera án þess að fá ofnæmi, hvað þá saumað úr þessum óþverra.
Þegar ég minnti hana á þessa fötlun mína hló hún miklum og djúpum Dr. Evil hlátri en svo kom á hana hik... "djö.. það þýðir þá ekkert að gefa þér eitthvað loðið um hálsinn í jólagjöf?"

Nei. Það þýðir ekkert.

En ég fór að spá... ég er með ofnæmi fyrir öllum óekta skartgripum og ég er með ofnæmi fyrir loðfeldum. Maðurinn minn hefur ekki efni á að gefa mér skartgripi því þeir verða helst að vera úr gulli og ef ég verð einhverntíman rík get ég ekki klæðst pelsum. ÞAÐ er intolerable cruelty!


| anna | 22:19 |
comments

Langar bara að benda systur þinni á að samkvæmt Arnari, sem er sérlegur ráðgjafi Gests Einars, og segir fólki sem hlustar á rás 2 á föstudögum, hvað sé "inn" og "út"........... ehhhmm það er víst ferlega smart að vera með fjaðrir núna.
Sleppa s.s. að drepa minka og dalmatíuhunda og ráðst á gæsir og svani í staðinn [eyebrows]
Ekki ertu með ofnæmi fyrir fjöðrum líka? doubt
Tillaga að jólagjöf toungue thumb up

Nr. 1 | posted by: Harpa | 18.10.2003 | 22:50:56 | [+] |

ÚHÚ! Ég hef ekki ofnæmi fyrir fjöðrum og það viss svo skemmtilega til að ég á nóg af svona vændiskonu fjaðra "treflum" frá þeim tíma sem ég stundaði einkadans fyrir blaðamanninn. Eftir 5 metra regluna pakkaði ég þessum fjöðrum niður, enda ekkert gaman að gera þetta í svona mikilli fjarlægð.

Það er auðvitað bara snilld að ég geti farið að mæta í fjöðrunum mínum á djammið!

Nr. 2 | posted by: anna | 18.10.2003 | 22:57:15 | [+] |

Hvaða mynd er ,,Grandmothers House" ? Einhver Rauðhettumynd kannski? Hvenær sástu hana? Afar merkilegt ef hún er ekki á imdb.com silent

BTW, þetta 5 metra komment er náttúrlega bara snilld laughing colgate thumb up

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 19.10.2003 | 0:01:56 | [+] |

AHA! Fann myndina. Hér er Grandma's House

Þessi mynd fær skull.

Nr. 4 | posted by: anna | 19.10.2003 | 0:10:54 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web