Þriðjudagur, 21. október 2003
Í framhaldi af afleggjarapælingunni minni í gær þá hef ég þungar áhyggjur af afleggjaranum sem ég fékk af þessu blómi um daginn. Ég fékk hann nefnilega gefins.
Ef Alan hefur rétt fyrir sér þá mun þessi afleggjari drepast innan tíðar þar sem hann er ekki stolinn. Ó mig auma!
Annars var ég að hringja í blómabúðir, fyrir svolitlu síðan, til að athuga hvort afbrigði af Hoya blómum væru til sölu. Því miður átti engin svona blóm en ég talaði við konu í Garðheimum sem mundi eftir gamalli konu sem safnaði Hoya blómum og átti víst heilmikið safn.
Því miður vissi hún ekki hvað gamla konan hét eða hvort hún væri á lífi. Ég hefði sko ekkert á móti því að koma í heimsókn til hennar.