Sunnudagur, 19. október 2003
Leiðinlegasta mynd sem ég hef séð á ævinni er án efa Grandma's House, eða Grandmother's house, eins og hún hét þegar hún var sýnd í Laugarásbíó á sínum tíma.
Það er saga á bak við það af hverju við blaðamaðurinn fórum á þessa mynd. Það var þannig að hann valdi alltaf hvaða myndir við fórum á í bíó. Af hverju? Jú, þegar ég valdi myndina var hún oftast leiðinleg.
Einn daginn ákváðum við að fara í bíó og ég stóð föst á því að ég ætti að velja myndina. Tók ekki annað í mál. Ég valdi Grandmother's House. Blaðamaðurinn glotti og sagði "sure".
In my defence þá hélt ég að þetta væri virkilega gorí mynd og þar sem mér fannst gott þegar ég gat látið blaðamanninn "passa" mig fannst mér upplagt að fara á þessa mynd. Plaggatið gaf mér þá von að ég yrði yfir mig hrædd og þyrfti mikla pössun.
Staðreyndin var sú að við hefðum líklega orðið hræddari við að reyna að búa til bernaisesósu en að horfa á þessa mynd. Þetta er verst leikna, ömurlegasta, minnst spennandi mynd sem ég hef séð á ævinni og þá er ég hvorki að ýkja né ljúga.
As a result fékk ég ekki að velja mynd næstu 10 árin. Nú er ég hinsvegar orðin þrítug og eins og afi úlfur sagði alltaf: "Þú skilur þetta þegar þú ert orðin þrítug", þá skil ég þetta núna. En furðulegt nokk... það var ég sem valdi Intolerable Cruelty.
Kannski "fæ" ég að velja næst þegar ég verð fertug...