Nr. 1 | posted by: Tony Clifton |
6.10.2003 | 16:46:01 | [+] |
Ég segi:
no way, no way, no way!
Ráða skrifandi fólk!
Nr. 2 | posted by: anna |
6.10.2003 | 16:49:43 | [+] |
Jah... símanotkun myndi vissulega pikka hressilega upp ef fólki væri bannað að nota tölvupóst.... Hverjir græða peninga á aukinni símanotkun? Hmm....
En mér fannst góður punktur komin fram á ATV vefnum þar sem bent er á að sumir eiga mjög erfitt með að tjá sig munnlega. Á þá ekki að banna símanotkun?
Annars auðveldar tölvupóstur mér mína vinnu það mikið að mér finnst hræðileg tilhugsun að vera án hans. Það má hinsvegar vel banna starfsfólki að senda ruslpóst sín á milli, myndir og hreyfimyndir. Ekkert að svoleiðis banni...
Og svo mætti skikka Internetfyrirtæki til að hafa functional spam síur. Úff.. þá væri gaman að lifa!
Nr. 3 | posted by: anna |
6.10.2003 | 17:52:16 | [+] |
Auðvitað á að banna notkun tölvupósts innan fyrirtækja. Það á að fá léttfættar hnátur til að skondrast með PostIt miða á milli manna.
Ég held að tölvupóstur leysi fleiri vandamál en hann skapar. Ég hefði haldið að árekstrar yrðu hvort sem er í fjölþjóðlegum fyrirtækjum, hvort sem notaður er tölvupóstur eður ei.
Mega þetta ekki vera ungir strákar með gula miða líka?
Nr. 7 | posted by: anna |
7.10.2003 | 10:38:59 | [+] |
Samkvæmt könnun sem var gerð í sambandi við phd-ritgerð sem ég las, afar lauslega reyndar, þá veldur illa skrifaður tölvupóstur fleiri vandamálum en önnur samskipti.
Þú mátt alveg hafa stráka til að sendast með gulu miðana, Jude Law kannski? [eyebrows] En ég, og Hudson geri ég ráð fyrir, viljum frekar stúlkur. Þær þurfa ekkert endilega að vera kappklæddar
Jude Law.. nú á ég ekki eftir að hugsa um meira í dag.
En.. er sama vandamálið ekki til staðar með gulu miðana líka? Er ekki hægt að skrifa illa á gula miða?
Nr. 9 | posted by: anna |
7.10.2003 | 13:11:48 | [+] |
Ha? Nei, gulu miðarnir eru háþróað minnis- og skilaboðakerfi sem má rekja allt aftur til upphafs valdatíma Ming ættarinnar í Kína (þessvegna var liturinn valinn). Þeir taka tölvupósti langt fram, t.d. eru þeir ekki sérlega háðir rafmagni. Svo hafa þeir límrönd og sérstök útgáfa með vængi ku víst vera á leiðinni. Þangað til eru hnáturnar nauðsynlegar, og auðvitað duga hnellnir drengir vel líka!