www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Drullupollur á netinu
Þriðjudagur, 07. október 2003

Það eru allir froskar kóngar í sínum drullupolli. Það hlýtur að gera mig að drottningu í drullupollinum sem anna.is er. Mikið er það nú gaman. Nema ég á ekki hirð.. ég á meðvirkla.

Menn sem hafa fengið mig á heilann. Halda því fram að þeir eigi ekki lengur sjálfstæða hugsun og verða að bera allt undir mig. Ekki hirð heldur þegnar. Þar sem ég er valdsjúk og laumu valdníðingur sé ég ekki fyrir endan á því hvar þetta gæti endað.

Ég hef nú samt litla trú á að þessir menn missi svefn yfir því hvort það koma blöð á plönturnar mínar...

Samt.. finnst mér ástæða að koma því á framfæri að mér finnst Toblerone súkkulaði roooooosalega gott og þegar ég á nóg af því líður mér rooooooosaleag vel. Mér skilst að það sé hægt að senda fólki allt í pósti nú til dags.


| anna | 21:58 |
comments

Fyrirgefðu Anna, en má ég benda á smá misritun í þessu bloggi. Þér hefur orðið á að kalla þetta fallega og tæra vatn okkar drullupoll. Í huga Organistans kemur upp ímyndin frá On Golden Pond en ekki drullupollur. Organistinn er viðkvæmur lesandi sem getur illa þolað þá hugmynd að hann haldi til í drullupolli.

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 7.10.2003 | 22:51:03 | [+] |

Já, en súkkulaði er óhollt, vont fyrir tennurnar, fitandi og vont fyrir húðina. Það væri bara slæmt fyrir froskaprinsessuna að fá svoleiðis í pósti. sick

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 7.10.2003 | 23:00:43 | [+] |

Það er ekki ofsögum sagt að maður hafi fengið þig á heilann. Eftir naglaviðgerðarbloggið þitt þá hef ég sofnað út frá sömu hugsuninni á hverju kvöldi: Er límið vatnshelt? Ef ekki, þá skaltu alls ekki sjúga puttana!

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 7.10.2003 | 23:09:11 | [+] |

Þú DREPUR MIG Alan! Ég er í kasti!

Já, límið er vatnshelt. Vonandi getur þú sofið rótt. hahahahaha

Smá súkkulaði hefur aldrei skaðað neinn. Ég reikna ekki með því að fá þetta í bílhlössum. Hvað haldiði eiginlega að ég sé? boggled

Nr. 4 | posted by: anna | 7.10.2003 | 23:14:03 | [+] |

Opnaðu CD skúffuna þína. Ég var að senda þér After Eight til að prófa sambandið (þorði ekki tobleróninu, núggað í því getur stíflað einhver 'node', After Eight er líka sérhannað í CD skúffur), það ætti að hafa borst núna.

Ef ekki þá hefur það bráðnað í miðríkjunum og runnið útúr einhverjum routernum.

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 7.10.2003 | 23:19:25 | [+] |

MMMMmmmmmmm takk. Mér finnst After Eight gott. [smælingi útataður í súkkulaði]

Nr. 6 | posted by: anna | 7.10.2003 | 23:47:01 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web