www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Doddi og Anna
Miðvikudagur, 29. október 2003

Doddi: Ertu komin heim?
Anna: Já
Doddi: Af hverju ertu komin heim svona snemma?
Anna: Af því ég þarf að afhenda verðlaun í kvöld og þarf að líta vel út. Það tekur tíma...


| anna | 16:07 |
comments

Óskarinn?

Nr. 1 | posted by: Norn | 29.10.2003 | 17:00:29 | [+] |

Nei, ekki Óskarinn. Það er ekki fyrr en í janúar, ef ég man rétt, og þá verð ég að afhenda fyrir bestu brellurnar í stuttmynd. Sú verðlaunaathöfn er yfirleitt haldin sér og ég man ekki hver sá um það í fyrra. Vegna stöðu minnar í Hollywood hef ég verið beðin að græja nördana næsta ár.

Í kvöld er ég hinsvegar að afhenda "Besti vefurinn" á Vefsýn verðlaununum.

Ég kemst ekki á msn í vinnunni og hef ekki kveikt á tölvunni í marga, marga daga... núna er ég hinsvegar að þjóta út, enda orðin eins fín og ég get orðið án hjálpar lýtarlæknis. happy

Nr. 2 | posted by: anna | 29.10.2003 | 17:10:50 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web