www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Confessions of a dangerous mind
Laugardagur, 18. október 2003

Confessions of a dangerous mindVið Tóti vorum að horfa á myndina Confessions of a dangerous mind í gær. Nema hvað.. klukkan hálf þrjú rankaði ég við mér í sófanum og bað Tóta um að koma upp í rúm, því ég var sofnuð. Ég skreyddist upp í rúm og var sofnuð áður en hausinn datt á koddann.

Þegar við vöknuðum í dag kláruðum við að horfa á myndina.

Þessi mynd er um manninn sem fann upp djúpu laugina, eða the dating game, ásamt mörgum öðrum game shows. Hann hafði beautiful mind.

Í lokin segir hann að hann hafi fengið hugmynd að þætti sem á að heita The old show. Í þættinum eru þrír gamlir menn. Þeir fá allir hlaðna byssu. Svo fara þeir yfir ævi sína. Rifja upp drauma, vonir og þrár og sá sem skýtur sig ekki í hausinn að lokum, vinnur. Hann fær ísskáp í verðlaun.

Það sem mér finnst scary er að ég held að fólk myndi horfa á þennan þátt. Það eina sem heldur aftur að gerð svona þáttar er að það væri lögbrot. En hvað ætli það sé langt í að The Running man eða The old show verði að veruleika?

George Clooney leikstýrir þessari mynd og sannar að sumir eru ekki bara flottir.. þeir eru talented líka.


| anna | 12:29 |
comments

Já já ok. ég veit að nú er ég búin að vera of mikið heima að undanförnu! En Clooney hann er Ford 21. aldarinnar - ekki spurning! Skil hins vegar mjög vel að þú hafir ekki náð að halda vöku. Komst sjálf í gegnum fyrstu 25 mín. af Hringadróttinssögu II og trúðu mér það var aðeins nokkrum dögum eftir að hún kom út á DVD. Diskurinn sómir sér vel í hillu en hef ekki neina gríðalega þörf fyrir að horfa á allar hinar 25 mínúturnar sem eftir eru. Var líka að velta fyrir mér hvort hægt væri að fá sæng í Lúxus sölum kvikmyndahúsanna shy

Nr. 1 | posted by: Eddan | 18.10.2003 | 14:18:39 | [+] |

Þessi hugmynd um hlöðnu byssuna er ekkert langt undan. Um daginn varð uppi fótur og fit í Bretlandi þegar sjónhverfingamaður var með eina kúlu í byssu og hugðist skjóta af. Hann þóttist sumsé vita í hvaða hólfi kúlan væri. Það hefur greinilega staðist því engar fréttir hafa borist af andláti mannsins en ég man að ég hugsaði þegar ég heyrði af þættinum að nú væri botninum náð...

...og þó. Fyrsta aftakan í sjónvarpi er ennþá eftir.

Nr. 2 | posted by: Karl Ágúst | 18.10.2003 | 18:10:09 | [+] |

Þetta er auðvitað bilun! boggled

Nr. 3 | posted by: anna | 18.10.2003 | 19:37:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web