Föstudagur, 31. október 2003
Tóta hnerrar á blogginu sínu eins og alki á þurrafylleríi, sem er ekki skrítið, enda er hún að gefa út bók um jólin og ég get ímyndað mér að sé mikið álag sem því fylgir. Ég fæ reyndar ekki séð hvernig mat á verkum annarra getur verið staðreynd á einn eða annan hátt, en það er önnur saga. Bók Tótu er um Rut Reginalds.
Rut þessi hefur verið í viðtölum hjá glanstímaritum og gert upp ævi sína þar, oftar en einu sinni, ef ég man rétt. Hún hefur barist við að halda í a.m.k. einn kastara sviðsljóssins og það hefur tekist með naumindum. Linda P hefur hinsvegar alltaf verið meira og minna í sviðsljósinu og "alveg fyrirhafnarlaust". Ég man t.d. eftir því þegar lögreglumaður átti að hafa sparkað í rassinn á henni.. það var fjallað um það í nánast öllum fjölmiðlum þrátt fyrir að engin bók væri væntanleg um líf hennar og störf.
Mér finnst það sannarlega vera frétt ef Linda, eigandi Baðhússins, hefur uppgvötvað líkamsrækt á efri árum. Fólk sem ekki sér íróníuna í þeirri frétt ætti að láta kanna tengingarnar uppí haus, but then again.. húmor er ekki öllum gefin.
Persónulega þekki ég hvorki Lindu né Rut en af því sem ég hef heyrt og séð finnst mér Linda hafa spilað vel úr sínum spilum þrátt fyrir áfengissýki og önnur vandamál. Samanborið við Jónínu Ben er Linda vissulega viðskiptajöfur. Hún á allavega ennþá sitt veldi og þarf ekki að kenna öllum karlmönnum jarðarinnar um að hún hafi misst eitt né neitt og er búin að takast á við sjálfa sig. - Virðist vera. Kannski kemur annað í ljós í bókinni.. who knows.
En eigum við að leggja spilin á borðið? Það sem Rut þarf að gera til að fá eins mikla athygli og Linda er að vinna Miss World, stofna fyrirtæki sem gengur vel, eiga marga ríka kærasta og ekki alla í einu, vera drukkin og til almennra vandræða in public (og þá helst eftir að fólk er farið að vera með á nótunum hver hún er), fara í meðferð og vinna í sjálfri sér, flytja erlendis og byrja nýtt líf.
Annars á ég hvorki eftir að lesa Lindu P bókina né Rut bókina. Ég geymi ævisögurnar fyrir elliheimilið. Eitthvað verður maður að hafa að gera þegar maður er komin þangað ef ég verð ekki löngu dauð úr reykingum eða kartöfluáti.
Ég vona að Rut bókin seljist vel, og efast ekki um að hún sé vel skrifuð og átakanleg. Gefur Lindu P örugglega ekkert eftir. Linda P er bara frægari. That's all.