www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
As good as it gets
Þriðjudagur, 14. október 2003

Í gærkvöldi eldaði ég rosalega gott lambakjöt sem fjölskyldan úðaði í sig og slóst um síðustu bitana. Ég vann og borðaði síðasta bitann, enda með steikarhnífinn. Hinir áttu aldrei séns og fengu sér meiri kartöflur.

Eftir matinn bakaði ég Sólskinsköku með karamellukremi og þegar hún var tilbúin fórum við í heimsókn til mömmu sem var að koma heim af spítalanum. Hún táraðist þegar hún sá kökuna og blessaði mig í bak og fyrir. Við vorum ekki lengi að klára kökuna. Maður ætti kannski að baka tvöfalda uppskrift næst?

Ég horfði á As good as it gets á meðan ég var að elda og baka í gær og verð að segja að mér finnst myndin ekki eins góð og mig minnti að hún væri. Kannski er ekki nóg að hlusta..

En hvað ef lífið mitt er As good as it gets? Er það nóg? Hvað er nóg?
Þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað í næsta þætti af Soap. Or not.

Af hverju sýnir engin sjónvarpsstöð S.O.A.P? Why? Mér fannst það brill þættir og eftir ég sá reruns af Dallas efast ég ekki um að mér myndi finnast Soap skemmtilegt þrátt fyrir elli.

Mér finnst svo grátlegt að ég þekki engan sem á Sledge Hammer complete. Þýðingin hans Guðna Kolbeins er alveg frábær. Það eru þættir sem er hægt að horfa endalaust á. Og Black Adder. Og Fawlty Towers. Og Frasier. Og Bottom. Og AbFab. Hverju er ég að gleyma?


| anna | 22:07 |
comments

Þú ert heppin! Við eigum bæði Blackadder COMPLETE og lungann af AbFab.
Hafðu bara samband.

Nr. 1 | posted by: Ingólfur Júlíusson | 15.10.2003 | 10:26:26 | [+] |

VÁ! Ég þakka gott boð sem ég mun áræðanlega þiggja. Við eigum reyndar BlackAdder líka en næstum ekkert af AbFab. Ég sé að ég þarf að fara að drífa mig í heimsókn til ykkar. For real. (og ekki bara fyrir AbFab) smile

Nr. 2 | posted by: anna | 15.10.2003 | 14:59:24 | [+] |

Parker Lewis?

Nr. 3 | posted by: ljúfa | 15.10.2003 | 17:11:34 | [+] |

Þokkalega! Coolness!!!! smile

Nr. 4 | posted by: anna | 15.10.2003 | 18:42:00 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web