Fimmtudagur, 02. október 2003
Nú er búið að uppfæra mig. Mér líður svo miklu, miklu betur!
Í uppfærslunni var hárlitun, klipping, blástur, plokkun, háreyðing, manicure og svo var ég smurð kremum frá toppi til táar.
Ég er ný og betri Anna.
Annars gerðist svolítið miklu merkilegra í dag. Þegar ég kom í leikskólann að sækja Dodda var hann búin að teikna, við mikinn fögnuð viðstaddra, nýja custom made herramenn:
Herra Blindur |
 |
Herra Klaki
Leiðrétting: Þetta er Herra Klaki, ekki Herra Rugli. |
 |
Herra Kíkir |
 |
Herra Pósti |
 |
Herra Hús |
 |
Herra Rúlli |
 |
Herra Ósýnilegur |
 |
Þú getur séð alla myndina óklippta með að smella á þessa hér:
En hvað sem öðru líður.. þá er ég farin í bað.