Fimmtudagur, 09. október 2003
Ég er alveg hryllilega pirruð þessa dagana. Held að ég sé bara svona stressuð út af mömmu og öllum lærdómnum sem ég hef trassað. Eða réttara sagt ekki sett í forgang.
Í kvöld ákvað ég að gera átak og tók til á skrifborðinu mínu. Ég upplifi alltaf hálfgerða jóla stemmingu þegar ég tek til á skrifborðinu mínu. Finn allskonar dót sem ég hélt að væri löngu glatað. Í kvöld fann ég uppáhalds glossinn minn, blóðgjafakortið mitt, sígarettupakka, naglalakkið sem ég hélt að ég hefði klárað, tvo fimmtíu kalla og einn hundrað kall, penna sem virkar, hringinn sem Úðafoss menn fundu fyrir mig og ég var búin að týna aftur, snúru sem ég hef leitað lengi að, eitt par af sokkum og nærbuxur.
Hvað eru nærbuxur að gera á skrifborðinu mínu spyr ég nú bara! Svo fann ég fullt af bréfum. Ástarbréfum frá bankanum aðallega og haug af gulum miðum sem hafa týnst í pappírsöldunum.
En nú er skrifborðið mitt hreint. Sparkling. Heyrist "PLING" og stirnir á það.
Ég er hinsvegar allt of útkeyrð til að fara að læra. Á morgun ætla ég að baka fyrir bekkjarafmælið sem verður á laugardaginn. Ekki læri ég þá. Á laugardagskvöldið ætla ég að vera með Dreamweaver skemmtikvöld. Það fer í forgang. Æi.. pæli í þessu á morgun. Finn tíma. Ég meina... með svona hreint skrifborð er allt hægt!