www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
100 atriði um mig
Föstudagur, 10. október 2003

Nei ég nenni því ekki.

En..

Ég er búin að baka svo mikið í kvöld að ég er að springa. Aðallega vegna þess að ég er búin að þurfa að smakka allt mjög samviskusamlega. Sérstaklega pizzu snúðana. Grrrr sleeeeef

Nú sit ég og bíð eftir að Karamellukaka Stærðfræðingsins bakist. Hélt að ég væri búin að skemma hana en eftir ég las Nönnu um daginn komst ég að því að maður bara reddar hlutunum. Það gerir líka lífið svo miklu, miklu skemmtilegra. -Auk þess held ég að það hafi bara verið allt í lagi að stífþeyta hvíturnar svona. Kitchenaid vélin mín er svo mögnuð að hún bara þeytti þetta til andskotans á meðan ég las einn tölvupóst. Og ég er ekki lengi að lesa. Og ég gleymdi mér ekki við tölvuna, þótt ég eigi það til.

Af hverju á ég ekki Kitchenaid plugin fyrir heilann á mér?

VARÚÐ! LÍFTRYGGINGAMENN, GEÐLÆKNAR OG AÐRIR SEM GETA LAGT FÓLK Á KLEPP, EKKI LESA LENGRA!

Annars finnst mér vanta svo margar tegundir af vélum í lífinu. Það vantar til dæmis ljósritunarvél sem getur ljósritað hluti. Ég stend mig í alvörunni að því að hugsa: "Æi það skiptir ekki máli þótt Doddi brjóti þennan vasa.. ég skanna hann bara og laga hann." Svo.. þegar ég fatta að vasinn er ekki ljósmynd hugsa ég: "DOH!"

Mér finnst ég líka oft þurfa að copy og paste-a hluti. Til dæmis ef mig vantar tvö hrein glös en á bara eitt, því einhver hefur ekki kveikt á uppþvottavélinni ætla ég stundum að copy-a hreina glasið og paste-a því á borðið. En svo fatta ég að það er ekki hægt. Þetta veldur mér hugarangri.


| anna | 23:04 |
comments

Ég ætla einmitt að hanna penna með ,,undo" function, sem er þarfaþing í þessum dúr. thumb up

Nr. 1 | posted by: beggi dot cm | 11.10.2003 | 1:48:33 | [+] |

Ég var að fylla út einhverja umsókn um daginn og ég sver.. ég er varla skrifandi lengur. Komst að því að ég skrifa með penna eins og ég væri að hamra á lyklaborð. Enda var umsóknin öll út ötuð í leiðréttingum og örvum sem vísuðu hingað og þangað á texta sem átti að bæta við hér og þar. Því augljóslega gat ekki ekki bætt texta inn eftirá svo vel færi... Ég mun kaupa þennan penna um leið og hann kemur á markaðinn! wink

Nr. 2 | posted by: anna | 11.10.2003 | 10:15:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web