Föstudagur, 19. september 2003
Þegar ég byrjaði daginn á að kveikja næstum því í íbúðinni hefði ég átt að taka svefntöflu og fara aftur upp í rúm. Ég kveikti næstum því í með því að setja tvær brauðsneiðar í ristina, stilla á hæstu stillingu og setjast fyrir framan tölvuna.
Nokkrum mínútum síðar heyrðist í Jóhönnu: "Ma..amma" og þegar ég leit inní eldhús ósaði reykur upp úr ristinni. Það kemur manni ekkert í föstudagsskapið eins og megn brunastybba að morgni.
Ég þurfti að græja skattamál í dag sem ég gerði og fékk peninga endurgreidda.. bara helmingi minna en ég átti voná. Svo komst ég að því að Doddi er veikur svo ég sá mína sæng upp reidda.. ég þurfti að vera heima í dag. Sem er vont mál því það er engin til að leysa mig af. Svo ég var í e.k. fjarvinnu.
Ég ákvað að hringja líka í áfangastjóra fjarnámsins í VMA út af smá máli, sem ég gerði en fékk símsvara. 38 mínútum seinna og 23 sekúndum betur ákvað ég að hringja í hann aftur en sá að ég hafði ekki skellt nógu vel á síðast svo ég var ennþá að "tala" inn á símsvarann hjá honum.
This day is shaping up to be SUPER!
Þegar Jóhanna kom heim úr skólanum fór ég í vinnuna til að afgreiða krisis mál og þegar því var lokið kom einn góðvinur minn frá RHI í "heimsókn" og við fórum að spjalla.
M.a. spurði hann mig hvort tannhvassa tengdamamman mín væri notuð á leiðinlega viðskiptavini og skellti saman tönnunum á tengdamömmunni.
(For the record þá hef ég bara lent í einum leiðinlegum viðskiptavini, hinir eru bara mis skemmtilegir, en ef ég hefði sagt það.. hefði ég drepið umræðuna svo...)
Ég sagði að ég væri bara þurrkuntuleg við þá. Eftir smá þögn spurði hann: "Ertu þá blautkuntuleg við hina?"
Ég varð kjaftstopp. Ekki út af spurningunni sem slíkri. Ég hafði bara aldrei áttað mig á andheiti orðsins: "þurrkunta".
Er blautkuntulegur alvöru orð? En þurrtyppalegur? Er hægt að nota það orð yfir karlmenn sem eru þurrir á manninn? Eða kannski geldinga? Eru þá blauttyppamenn þeir sem fá það of fljótt?
Úff.. mikið að hugsa um og ég er hrædd um að hjólið sem hamsturinn hleypur í gæti ofhitnað.
Þetta tal okkar reyndist vera vendipunktur á deginum því ég er búin að vera í góðu skapi síðan OG hef eitthvað til að blogga um. Getur það orðið betra?