www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sturluð fluga
Föstudagur, 19. september 2003

Þegar ég var búin að horfa á eina syrpu af Friends fór mér að leiðast svo mér datt í hug að búa til eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir en mun reyna að lýsa.

Til að búa það til þarf maður krukku með loki og fullt af jukki sem lyktar eins og jólin (þegar það er allt sett saman) og ef maður setur það í krukkuna og lætur það bíða rosa lengi koma jólin (í formi lyktar) upp úr krukkunni.

Ég á uppskrift af þessu í blaði sem ég geymdi. Þegar ég fór að leita að uppskriftunum sem ég nota sjaldan (aldrei) komst ég að því að ég var búin að færa þær úr eldhúsinu og upp í efstu hilluna í bókaskápnum inní herbergi. Þegar ég var búin að skoða mig um í efstu hillunni fattaði ég að ég var búin að færa uppskriftirnar í kassann undir rúmi og svo mundi ég að ég fór með kassann undan rúminu niður í geymslu síðast þegar við tróðum í geymsluna og síðan þá datt hilla á hurðina og fullt af drasli ofan á hilluna og við getum ekki opnað geymsluhurðina.

Ég stóð uppi á stól við háu hilluna inní herbergi þegar ég áttaði mig á þessari staðreynd en eins og til að storka örlögunum teygði ég mig í möppu sem ég taldi mér trú um að gæti innihaldið umrædda uppskrift af jólum í krukku. Þegar ég snerti möppuna flaug taugaveikluð fluga upp úr möppunni.

Nú er flugan búin að fljúga eins og brjálæðingur út um allt herbergi í hálftíma. Hún flýgur á veggi, hún flýgur á ljósið og hrapar niður á gólf og flýgur svo aftur upp og beint á gluggann. Tóti situr uppí rúmi og segir mig hafa vakið upp taugaveikluðustu flugu sem sögur fara um á meðan hann fylgist heillaður með aðförunum.

Ég get ekki sofið í návist svona taugaveiklun. Nógu slæm er ég sjálf á taugum þó að ég fari ekki að deila herbergi með lífveru sem, ef einhver manngæska væri til í heiminum, ætti að sprauta niður.

Hvaðan kom þessi fluga annars? Ég hef ekki orðið vör við neina flugu í íbúðinni fyrir utan geitungana sem drukkna í kókinu mínu. Ég heyri í henni hingað fram ég sver það!

Þar hafi þið það. Ég kemst ekki í geymsluna svo það verða engin jól hjá mér og svo til að toppa það hef ég vakið upp geðsjúka flugu sem lá líklega í vetrardvala í möppu sem innihélt ekki uppskriftina af jólunum og nú verð ég að sofa í sófanum. Því ég er búin að loka fluguna inni hjá Tóta.

hehehe.. hann verður komin fram að ná í dagblað áður en ég veit af. Best að kíkja aðeins á meira af Friends...


| anna | 0:47 |
comments

Hvernig fór?
Gastu sofið inni í herberginu? happy

Nr. 1 | posted by: Harpa | 19.09.2003 | 15:17:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web