www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Reyklaus Anna
Miðvikudagur, 17. september 2003

Reyklaus Anna er andlaus Anna. Það er bara þannig.

Það er eins og kaldhæðnin hverfi og ég verð umburðalyndari en ég var og almennt sáttari við lífið og tilveruna. Óþolandi því þá hef ég ekkert til að blogga um.

Hvað er það við sígarettuna sem veldur því að ég hef endalaust eitthvað til að skrifa um? Mér dettur ekkert í hug, enda búin að vera reyklaus lengi. Hvað á ég til bragðs að taka?

Það er þrennt sem ég get gert í stöðunni:

1. Hætt að blogga
2. Byrjað að reykja
3. Dettur ekkert fleira í hug


| anna | 12:02 |
comments

Vertu alveg sallaróleg.
Andinn kemur yfir þig um leið og þú ferð að setjast fyrir framan tölvuna án þess að hugsa um það eitt að kveikja í rettunni um leið.
Þú verður bara að skilyrða þig upp á nýtt thumb up
Settu það sem valmöguleika þrjú.

Nr. 1 | posted by: Harpa | 17.09.2003 | 12:48:59 | [+] |

doubt ekki velja nr 2
plís!

Nr. 2 | posted by: Birgitta | 17.09.2003 | 15:05:32 | [+] |

1 meina ég

Nr. 3 | posted by: Birgitta | 17.09.2003 | 15:05:59 | [+] |

Í hvaða rugli ertu. Maður hættir ekkert að reykja það er bara plebbískt. Kveiktu í rettunni og helltu þér í glas mar. clown
Gæti aldrei unnið og væri líka heldur ekki svona mikill mannvinur ef ég væri ekki með troðfullann öskubakka við hliðin á mér. Sköpunin og gæskan felst í glóðinni.

Nr. 4 | posted by: Norn | 17.09.2003 | 16:04:02 | [+] |

Hver þarf sossum á kransæðum að halda?

Nr. 5 | posted by: Tóta P. | 17.09.2003 | 16:56:44 | [+] |

Skál drunk

Nr. 6 | posted by: Tony Clifton | 17.09.2003 | 18:48:36 | [+] |

Djö... lymskulegt plan mitt til að fá fólk til að hvetja mig til að byrja að reykja aftur hefur mistekist þar sem ég hef ekki hjarta í mér að bjóða heiminum upp á Halldór íklæddan IP tölu einni samann. Ég mun þessvegna ekki byrja að reykja aftur. Bara blogga um leiðinlega hluti. -Áfram. En ég áskil mér rétt á að vorkenna mér gífulega mikið.

Nr. 7 | posted by: anna | 17.09.2003 | 20:28:35 | [+] |

AlanHudson reykti eins og strompur, heldt ekkert nema Pall Mall eða London Docks. Alveg þangað til hann álpaðist inn á stofuna hjá þessum kínverska nálastungugaur á Skólavörðustígnum. Síðan hefur bara ekkert verið reykt.

En ég hef lofað sjálfum mér því að þegar ég verð gamall, þá ætla ég að fara að reykja pípu. Black Scandinavic. Það er toppurinn.

Nr. 8 | posted by: AlanHudson | 17.09.2003 | 22:13:35 | [+] |

Jess !

Ég gæti notað viðurstiggilega nekt mína til að breyta heiminum !!!!

Nr. 9 | posted by: dorinn | 17.09.2003 | 22:16:33 | [+] |

Þú verður byrjuð að reykja áður en mánuðurinn er liðinn. Þú ert ein af þessum þykjustureykingamönnum sem svíkur alltaf málstaðinn reglulega og hættir til að verða eins og allir hinir aumingjarnir og Þorgrímur. Málið er bara það þú getur bara ekki hætt. thumb down

Nr. 10 | posted by: norn | 18.09.2003 | 9:49:59 | [+] |

Þetta er líklega rétt hjá Norn. silent

Skrítið því mér líður miklu betur. Það.. að vita að ég muni reykja aftur auðveldar reykleysið töluvert. Var búin að ákveða að byrja aftur um sextugt en það var bara svo langt þangað til! Nú getur þetta gerst hvenær sem er. Ekki laust við að þetta skapi nokkra spennu í mínu lífi sem annars er viðburðasnautt og óspennandi með öllu! happy

Nr. 11 | posted by: anna | 18.09.2003 | 10:00:43 | [+] |

laughing Ég á ALDREI eeftir að getað ímyndað mér þig án þess að hafa síkó í annari og kók í hinni [eyebrows] laughing laughing laughing colgate silent oogle sick thumb up

Nr. 12 | posted by: sibbi | 20.09.2003 | 3:15:28 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web