www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jóhanna 11 ára
Sunnudagur, 21. september 2003

Ég vaknaði snemma á laugardaginn og byrjaði á því að taka til vegna þess að klukkan 3 átti að byrja afmælisveisla Jóhönnu.

Klukkan hálf ellefu fórum við Tóti í innkaupaleiðangur að kaupa hráefni í kökurnar sem ég ætlaði að baka og afmælisgjöf fyrir Jóhönnu. Þegar við komum heim rétt fyrir tólf báðum við krakkana að koma niður og hjálpa okkur upp með pokana. Þegar allir voru komnir upp komumst við að því að hurðin hafði í millitíðinni skellst í lás og við vorum læst úti.

Ég hringdi á lásasmið sem kom hálftíma seinna til að brjótast inn í íbúðina. Þegar hann byrjaði með tólin sín spurði Doddi hvort hann ætlaði að taka hurðina af hjörunum. Nei, sagði lásakallinn, ég ætla að reyna að opna hurðina. Ertu með lykil? Spurði Doddi, Nei svaraði lásakallinn. Ekki við heldur sagði Doddi. Geturðu opnað spurði Doddi í framhaldinu og lásakallinn sagði að það kæmi í ljós bráðlega. Fimm mínútum seinna sagði Doddi: "Sagðir þú ekki að það kæmi í ljós bráðlega?"

Þegar lásakallinn var búin að reyna að opna lásinn í hálftíma ákvað hann að bora lásinn út í staðinn. Ætlarðu að bora gat á hurðina svo við komumst inn spurði Doddi.

Þegar við komumst inn í íbúðina var klukkan rúmlega eitt og ég vissi að ég myndi aldrei ná að baka það sem ég ætlaði að baka á tveimur tímum. Ég þurfti þrjá svo við hringdum í alla og frestuðum afmælinu um klukkutíma.

Sólskinskaka með karamellukremiÉg bakaði Betty Crocker devils food cake, muffins dverganna sjö, súkkulaðibita kökur, sólskinsköku með karamellukremi og bjó til heitan rétt. Ég var einmitt að leggja lokahöndina á sólskinskökuna þegar gestirnir komu klukkan fjögur.

Jóhanna var í skýjunum með afmælið. Þegar gestirnir voru farnir tókum við til eftir afmælið en vorum svo gjörsamlega búin eftir það að við gláptum á sjónvarpið og fórum snemma að sofa.

Í dag var svo seinnipartur afmælisins, ég bakaði aðra Sólskinsköku með karamellukremu og sver.. að ég hef aldrei orðið eins hrædd og þegar ég bar hana á borð því gestirnir borðuðu hana nærri alla á mettíma. Ég varð að slá til þeirra með sleif þegar einn biti var eftir því einn gesturinn var ókominn og hann átti von á að fá köku.

Ef þú vilt baka Sólskinsköku er uppskriftin hér

Ég er hálf úrvinda eftir þessa helgi og er jafnvel að hugsa um að leggja mig bara eða fara að sofa. Hlakka ekkert smá til að fara að vinna á morgun. Ég þarf á fríi að halda.


| anna | 18:46 |
comments

Óvenjulega dásamleg Sólskinskaka með karamellukremi. Þunglyndið hefur gjörsamlega rokið út í buskann.... já ég játa það strax, ég var svöng..
Rosaleg veisla á mettíma, verð að segja það.. hefði ekki sjálf gert betur! Takk fyrir mig. Fer í ræktina í fyrramálið og reyni að ná af mér nokkrum teskeiðum af karamellukreminu (Veit að það tekur nokkra daga..)
mamma

Nr. 1 | posted by: Mamma | 21.09.2003 | 19:56:00 | [+] |

Þú ert búin að eyðileggja gulrótar/vatnsmegrunarkúrinn minn. Ég verð að fá svona köku!

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 21.09.2003 | 20:15:05 | [+] |

Ég gæti trúað því að ég væri þá að bjarga lífi þínu það lifir engin á gulrótum og vatni!

Bakaðu hana neðarlega í ofninum á 180 gráðum í ca 40 mín á blástri happy

Nr. 3 | posted by: anna | 21.09.2003 | 20:20:45 | [+] |

Konan er komin í málið. Mér er ekki almennilega treyst fyrir eldhússtörfum wave

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 21.09.2003 | 21:26:26 | [+] |

Mér léttir stórum og bið kærlega að heilsa frú Hudson! wave

Nr. 5 | posted by: anna | 21.09.2003 | 21:40:26 | [+] |

Ég þyrfti svo sannarlega á fríi að halda.
Verð að fara að fá mér launaða vinnu.
cool

Nr. 6 | posted by: Harpa | 21.09.2003 | 22:13:40 | [+] |

Það er bara svo miklu meira áreiti að fá börn í heimsókn en að vinna. Það er ekki fyndið! what

Nr. 7 | posted by: anna | 21.09.2003 | 22:38:15 | [+] |

Anna:

Það er mjög vel tilfallið að vinna uppskriftir inní bloggið. Meira af því, takk. Ég ætla að prófa þessa köku í byrjun næsta mánaðar þegar hægist um fyrir mér.

Einnig kæmi vel út að nota uppskriftir og matargerð sem metaphor fyrir líf ykkar Tóta... Ég efa ekki að Refurinn Loki gæti hjálpað þar.

Nr. 8 | posted by: organistinn | 22.09.2003 | 5:33:18 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web