www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hvað er pappakassi?
Mánudagur, 29. september 2003

Nú.. pappakassi er kassalaga og tómur að innan. Oftar en ekki eru pappakassar fylltir af rusli sem geymt er í þeim árum saman óhreyft.

Pappakassi er, eins og nafnið bendir til, búin til úr pappa. Pappi er ónýtt efni. Lendi pappakassi í vatni lyppast hann niður og er ónýtur. Þá er gott að fá sér nýjan en muna að það er ekki gott að leggja hann í bleyti.


| anna | 14:35 |
comments

Menn hafa þungar áhyggjur af pappakössum. Sveppi hafði þetta að segja þegar hann var valinn sjónvarpsmaður ársins:
"Ég var bara hálfgerður pappakassi, vann meðal annars í Hagkaupum, á smíðaverkstæði og á grænmetislager. Tómt rugl."
Þetta varpar kannski einhverju ljósi á málið.

Nr. 1 | posted by: Tóti | 29.09.2003 | 14:51:22 | [+] |

Pappakassar, þegar maður hugsar um hversu fyndið þetta er þ.e. Sveppi að sjálfsögðu. Þá verður einhvernvegin átakanlegar að hlusta á miðaldra krata nota þetta til að slá sér upp.

Nei ég segi nú bara svona.

Enda pappakassi að eðli og innræti.

(vantar ekki íkon fyrir pappakassa, ég bara spyr?)

Nr. 2 | posted by: Þór pappakassi | 29.09.2003 | 18:35:24 | [+] |

Nei það eru sko engir pappakassar sem pósta hér get ég sagt þér. Vildi bara útskýra hvað þetta fyrirbæri er. Ert þú pappakassi þótt einhver kalli þig það? Býrðu í geymslu? clown

Nr. 3 | posted by: anna | 29.09.2003 | 18:43:27 | [+] |

Já er þetta ekki einmitt rétt hjá Þór að miðaldra krötum eins og Jakob fer betur að tala um blöðruhálskirtilinn sinn en að kalla aðra pappakassa?

Nr. 4 | posted by: Organistinn | 30.09.2003 | 0:04:59 | [+] |

Nei svo sem ekki, en ég er náttúrulega pappakassi út frá þeirri skilgreiningu að ég borða bara mat úr pappakössum, pizzur og annan piparsveinamat. Það er náttúrulega eintóm pappakassahegðun. Ikke?

Nr. 5 | posted by: Þór | 30.09.2003 | 20:36:48 | [+] |

Skv. því ertu fast, cheap and easy. Maður er það sem maður borðar. Er það ekki?

Nr. 6 | posted by: anna | 30.09.2003 | 21:24:47 | [+] |

Dæs, jú ætli það ekki. Borðaði samt þorsk í gær, namminamm þorskur er besti fiskur í heimi.

Sko ég borða ógeslegann mat núna af því að ég er lón ranger í kjallaholu. Ég er sem sagt fyrst og fremst upptekinn (fast) sannarlega ódýr, en langt frá því að vera easy, meira svona komlex týpa. Ég kann samt að elda af því að ég eldaði ofan í fjölkylduna mína í mörg ár, en nú á ég enga fjölskyldu (suk) og nenni því ekki að elda. Eldaður matur er bara fyrir sólskinsfólkið.

Nr. 7 | posted by: Þór | 1.10.2003 | 18:19:20 | [+] |

Djö.. er engin nema ég fast, cheap and easy? It's bad for the moral!

Nr. 8 | posted by: anna | 2.10.2003 | 16:46:03 | [+] |

Pappakassar eru eitt algengasta form ytri umbúða í dag. Pappakassar eru búnir til úr bylgjupappa sem var fundinn upp fyrir aldamótin 1900 og hefur verið nær óbreyttur síðan. Tvö eða fleiri lög af pappa eru límd saman og dregur bylgjupappinn nafn sitt af milliborðinu sem er bylgjulaga. Meðal helstu eiginleika hans eru að hann er höggverjandi, með mikinn stöflunarstyrk, léttur, hagkvæmur, umhverfisvænn og einangrandi auk þess sem auðvelt er að laga hann að formi vörunnar.
toungue

Nr. 9 | posted by: Banks | 21.08.2004 | 18:07:56 | [+] |

Já.. þetta er rétt hjá þér. Ég skal hætt að reyna að þykjast hafa vit á hlutum sem ég hef ekki vit á. Það er til háborinnar skammar. angel

Nr. 10 | posted by: anna | 21.08.2004 | 18:33:52 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web