Miðvikudagur, 24. september 2003
Hárið á mér hefur aldrei verið lufsulegra. Ég þarf svo desperately á makeover að halda að það er ekki fyndið. Strípurnar sem systir mín setti í mig at gunpoint eru ennþá ljótari en þær voru, núna þegar þær eru að vaxa úr og ég þarf KLIPPINGU!
En ég á ekki krónu svo ég fór í Hagsýn húsmóðir bókina mína og fann ráð við þessu. Nú er ég búin að breiða lök yfir alla spegla á heimilinu. No problem.