Þriðjudagur, 02. september 2003
Það eru fleiri en Michael Jackson sem leita til mín í neyð. Rétt áðan hringdi í mig virtur framkvæmdarstjóri hér í bæ og sagði mér að hann væri í vandræðum. Hann var með lag á heilanum en þar sem hann er gjörsamlega laglaus og mundi ekki textann þá gæti hann ekki fundið út hvaða lag þetta var.
Hann gat gefið mér "You.. I'm so in love with you" sem hann var sannfærður um að væri hluti af textanum. Ég bað hann um að syngja þennan part fyrir mig.
Við skulum átta okkur á því að við erum að tala um fullkomlega laglausan mann. Hann þurfti þess vegna að syngja: "You.. I'm so in love with you" fimm sinnum þegar ég fattaði... "whatever you want to do.. is all right with me. You make me feel so brand new... I want to spend my whole life with you.
(dró andann)
Oh baby let's.... let's stay together..... Loving you whether, whether... times are good or bad, happy or sad"
I rule.
Þess má geta.. á meðan ég var að syngja í símann.. sat Tóti í sófanum og hristi hausinn.