www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Endalaus veikindi
Miðvikudagur, 10. september 2003

veikÉg er veik. Ég er mjög veik ung kona. Svo veik að áðan, þegar ég vaknaði upp við hroðalegan hósta, fór ég til læknis sem skoðaði mig og komst að því að ég er með heiftarlega kinnholusýkingu sem mun líklega draga mig til dauða. Ekki í alvörunni.. mér á bara eftir að finnast ég vera að deyja á meðan þetta er að ganga yfir.

Já.. best að taka fram að ég er búin að vera reyklaus í rúma viku núna. Vei. -Bara til að fá ekki hate-comment frá anti reykingarmönnum sem kenna reykingum um allt sem illa fer. Eins og kinnholusýkingu og hósta. Og for the record þá er súrefnisupptakan hjá mér alveg í besta lagi og lungun blettalaus svo ég virðist hafa sloppið fyrir horn...

Læknirinn skrifaði upp á sýklalyf fyrir mig og sagði mér að ég yrði orðin góð af kinnholusýkingunni, ef ég væri dugleg að taka lyfin mín, eftir þrjá daga. Verð að segja að eftir samskipti mín við þennan lækni er ég öll önnur. Þ.e. ég hef aftur trú á að ég muni lifa eðlilegu lífi einhvertímann í nánustu framtíð.

Það getur hinsvegar ekki talist eðlilegt karma að fá fyrst magapest og svo kvef og kinnholusýkingu. Það eina jákvæða í þessu öllu saman er röddin.

Um daginn, í vinnunni, hringdi í mig viðskiptavinur sem hefur nokkrum sinnum þurft nauðbeygður að eiga við mig samskipti og þá oftast í gegnum tölvupóst. Hann hefur því aðeins kynnst "Ágæti viðskiptavinur" Önnu og "Ef þú hlýðir ekki skaltu hafa verra af" Önnu. Hann hélt að ég væri þurr og leiðinleg. Þetta fékk hann staðfest þegar hann hringdi í mig.

Hann sagði mér í mesta bróðerni að ég væri stofnanaleg í símann. Stofnanaleg. Auk þess sagði hann að ég væri með djúpa rödd en samt ekki bassi. Hjúkk. Hver vill vera skrækur?

En ég er með stofnanalega rödd. Og svo gef ég fólki leiðbeiningar inn með teskeið. Oh well.. flestir taka þessu smá-skammta-hand-mati mínu fegins hendi þar sem ég tala oft framandi tungum þegar ég er í vinnunni. Reyndar finnst mér alveg frábært að vera með stofnanalega rödd. Það sannar að practise makes perfect.

Núna hinsvegar er djúpa röddin mín orðin rám. Ég er með hálfgerða Whisky rödd og gæti líklega hrætt fastakúnna sem hringja í mig til að vita af hverju póstþjónn virkar ekki þegar honum er vísað á IP tölu eða af hverju AXFR fæst ekki í prófunum eða af hverju nafnaþjónninn þeirra verður að vera rétt skráður í DNS eða hvað reverse nslookup er eða af hverju viðkomandi getur ekki opnað póstinn sinn. Öllum þessum spurningum get ég svarað nema þeirri síðustu. Þar er yfirleitt vandamál á ferðinni sem á sér rætur að rekja einhverstaðar á milli stólsins sem viðkomandi situr á og lyklaborðsins sem hann er að nota. Ég vísa þessu fólki eitthvað annað. En röddin í mér hljómar eins og í temptress og auk þessa er ég forfallinn daðrari og á það sameiginlegt með Nigellu að daðra við allt sem hefur púls.

Ég lít líka alveg ljómandi vel út þessa dagana fyrir utan glansandi og daufleg augu þá er húðin á andlitinu slétt og mjúk og gráa reykingarslikjan er horfin. Ef ég væri ekki komin með sár í kringum nasirnar eftir endalausar snýtingar gæti ég sagt að ég hefði aldrei litið betur út. En því miður veldur stöðugur hósti og höfuðverkur því að röddin ráma fær ekki að njóta sín frekar en heilbrigða húðin mín.

Ég ætlast hinsvegar til þess að vera alveg pestalaus langt fram á næsta ár eftir að hafa tekið þessar tvær í röð. Djöfuls leiðindi.

Að lokum komst ég að því áðan að það er ekkert Apótek opið á næturnar á stór Reykjavíkursvæðinu. What's up with that? Lifum við ekki á 21. öldinni? Er engin samkeppni í þessum geira? Er ég eina manneskjan á Íslandi sem þarf að kaupa sér Pektólín klukkan tvö að nóttu? Ég bara spyr...


| anna | 2:16 |
comments

Ef að þú notar tækifærið núna til að hætta að reykja þá skal ég gera það líka. Plúsinn fyrir þig er að eftir reyklausa viku ert þú líklega laus við allt níkótín úr líkamanum og þarft því einungis að berjast við andlega fíkn, en það getur að sjálfsögðu verið erfitt líka...

What do you say? wave

Nr. 1 | posted by: thors | 10.09.2003 | 16:03:33 | [+] |

You got yourself a deal! smile

Nr. 2 | posted by: anna | 10.09.2003 | 16:09:19 | [+] |

Já, en það er andlega fíknin sem er erfiðust .. og jafnframt bezt líka. Slef, ég ætla fram og reykja heilan pakka. evil

Nr. 3 | posted by: Hexia | 11.09.2003 | 9:06:49 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web