www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ekkert að gera
Fimmtudagur, 18. september 2003

Í morgun sendi ég póst til vinkvenna minna með slóð á naglalagfæringarnar. Ég veit nefnilega að nokkrar þeirra hafa neglur og brjóta þær reglulega. Eins og ég.

Klukkan fjögur í dag fékk ég fyrirspurn í pósti sem hljóðaði svona: "Ertu skyggn eða?"

Þessi spurning vakti forvitni mína og ég hafði samband við viðkomandi. Jú.. í morgun var þessi fagra unga kona í vinnunni, með neglurnar, og braut eina alveg niður við kviku svo hún hljóðaði upp yfir sig og hélt um puttann með veiku nöglinni og hoppaði um á einum fæti. Samstarfsmaður hennar var vitni að þessum hræðilega atburði. Þegar hún kom inn á skrifstofuna sína með fingurinn í fatla skoðaði hún póstinn sinn og rak strax augun í Subjectið: "beauty is pain.. or is it? - Brotin nögl"

Hún skoðaði síðuna og þar sem henni fannst þetta vera óhugnarleg tilviljun fór hún að hlæja. Þar sem þessi manneskja hafði verið nánast gráti næst þegar hún kom hópuðust samstarfsmennirnir að henni og þegar þeir sáu síðuna mína varð einum að orði: "Hvernig gat hún vitað að þú braust nögl?" Annar sagði: "Vá hvað sumt fólk hefur mikinn frítíma".

Nema hvað að ég bauð henni að koma í fix og áðan lagaði ég nöglina á henni svo hún er eins og ný. Það vildi okkur báðum til happs að nöglin var ekki brotin alveg af og hún hafði plástrað þetta vel og vandlega þannig að brotið mikilvæga var áfast nöglinni ennþá. Með nöglina pikk fasta og puttan úr fatla fór hún syngjandi glöð á brott. Já.. btw.. ég laug í lýsingunni. Þetta tekur í raun og veru bara korter þegar maður er orðin vanur. Ég vildi bara ekki gera konur hræddar sem reyna þetta heima því þetta tekur örugglega hálftíma fyrsta skiptið.

En hversu mikinn frítíma hef ég?

Ég velti þessu fyrir mér áðan á meðan ég gekk frá eftir matinn. Velti þessu líka fyrir mér á meðan ég lét renna í baðið fyrir son minn. Ég vinn alla virka daga á milli 9 - 5. Þessa vinnu kalla ég dagvinnu. Ég er með þrjár heimasíður í smíðum og er að þýða gagnagrunn sem ég kem til með að nota á eina þeirra. Ég er í fjarnámi í VMA og IR alls 5 áföngum. Í dag tók ég svo að mér að sauma 70 litlar dúkkur fyrir ákveðið verkefni og þær þurfa að vera tilbúnar í byrjun desember. Ég get ekki útskýrt þetta verkefni nánar því þetta er top secret. Að lokum naglalakka ég mig að meðaltali þrisvar á dag og hugsa stanslaust um hvað mér þykir gott að reykja en hvað það er vont í raun og veru.

Ég veit ekki hvort maður á að taka matseld, þrif, þvotta og almenn leiðindi inn í svona. En ég hef nóg af frítíma. Til dæmis ætla ég að horfa á Friends í allt kvöld. -með smá þýðingarvinnu og naglalökkun. En ekki fyrr en ég er búin að lesa fyrir Dodda og kyssa krakkana góða nótt.


| anna | 20:34 |
comments

Sumt fólk, (og þú ert sumt fólk) er bara ekki eðlilegt. wink
Ég gæti í mesta lagi hugsað um hvað það er gott að þurfa ekki að hugsa um hvað það er gott að reykja og komið svona eins og helmingnum af því sem þú kemur í framkvæmd á sama tíma og þú hristir þetta fram úr erminni.
Sem betur fer er ég þó blessunarlega laus við að hafa nokkrar einustu áhyggjur af nöglunum á mér, nema þá helst til að muna eftir að klippa þær nógu stuttar fyrir rollurag haustsins. Það er djöfullegt að láta brettast uppá þær öfugar í slagsmálum við rollurassa.
Hroðalegt, þér að segja!

Niðurstaðan:
Ég reyki ekki, lakka ekki á mér neglurnar.
Af hverju hef ég þá ekki andskotans nógan tíma?

Nr. 1 | posted by: Harpa | 18.09.2003 | 22:16:47 | [+] |

Kannski af því að þú notar allanþinn frítíma í að eltast við rollurassa gnasher

Nr. 2 | posted by: Norn | 19.09.2003 | 16:20:34 | [+] |

Ehem, nokkuð rétt í því colgate

Nr. 3 | posted by: Harpa | 19.09.2003 | 18:39:11 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web