www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Doughnut
Mánudagur, 22. september 2003

Við Tóti og Doddi vorum í bílnum áðan að drepa tíma á meðan Jóhanna var í Karate. Skyndilega datt mér í hug að dekra aðeins við okkur og spurði Tóta: "Isn't it the caramel doughnut our son likes?" - á ensku því ekkert var ákveðið og ég vildi ekki að Doddi skildi mig.

Ég rétt náði að sleppa orðinu þegar Doddi kallar úr aftursætinu: "Mig langar í kleinuhring!"

DOH! (Homer style)

Hann veit að doughnut er kleinuhringur. Ég vissi ekki að hann veit að doughnut er kleinuhringur. Þetta er ákveðið vandamál því ég kann bara að tala íslensku og ensku, ég tala ekki þýsku ennþá þótt ég sé alltaf að læra af ebay.de. Auk þess.. ef ég talaði þýsku þá myndu börnin mín skilja mig hvort sem er. Þau vita ekkert skemmtilegra en að spila Rayman 3 á þýsku og spönsku því þá talar Rayman "svo skemmtilega".

Þegar við vorum búin að kaupa djúsí kleinuhringi fyrir Dodda og Tóta og vínabrauð fyrir mig (því mér finnast kleinuhringir vondir) fórum við á bókasafnið að skila bókum og byrjuðum á að borga tvöþúsundkall í sekt.

Á leiðinni upp í barnadeildina sagði ég Tóta að nú væri ég hætt að taka bækur á bókasafninu, það borgaði sig bara fyrir mig að kaupa þær. En ég er kona og áskil mér rétt á að skipta um skoðun, jafnvel innan 10 mínútna og það gerði ég einmitt á bókasafninu.

Ég tók fullt af matreiðslubókum og einhverjum decor bókum með flottum myndum, Tóti tók tvær Tarzan bækur og Doddi Einar Áskell og Ástrík.

Í kvöldmat voru afleiðingar óígrundaðrar spurningar sem spurð var á laugardagsmorgun. Þegar við vorum á leiðinni að versla inn fyrir afmælið datt mér í hug að leyfa Jóhönnu að velja hvað yrði í matinn á þessum hátíðsdegi. Tóti hringdi og fékk upp réttin sem Jóhanna vildi hafa. Á laugardaginn átum við hinsvegar yfir okkur af kökum og gúmmelaði svo við höfðum engan kvöldmat. Sama sagan á sunnudaginn. Hátíðarmaturinn var í kvöld. Bjúgu í uppstúfi með tartalettum...


| anna | 19:59 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web