www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bakgrunnur og klipping
Sunnudagur, 28. september 2003

HoyaÉg er að kenna sjálfri mér að taka bakgrunn af mynd. Það finnst mér gaman. Mér finnst líka gaman að flokka sokka og þurrka af en það er haugalygi.

Ég á Hoya blóm sem er að blómstra. Það þykja mér tíðindi. Skil ekki af hverju Séð og Heyrt er ekki komið í málið. Kannski maður ætti að skella í sig nokkrum öllurum og fara í bíltúr með blómið. Það er frétt.

Annars er þetta búin að vera bissí dagur hjá mér. Ég byrjaði á að sofa all hressilega yfir námskeið sem ég er á og ákvað að læra í staðinn. Búin að vera rooooooosalega dugleg enda er ég að örmagnast úr þreytu og hef ekkert komist í bað.

Á föstudaginn, þegar ég var að fara með Dodda í leikskólann, fór hann skyndilega að kveinka sér og hélt fyrir hjartað. Sagðist vera illt í hjartanu. Hann fór af þessum sökum ekki í leikskólann heldur með mér í vinnuna. Þegar þangað var komið læknaðist hann skyndilega nema hvað verkurinn tók sig upp í hvert skipti sem ég spurði hvort ég ætti ekki að keyra hann í skólann.

Sjís.. hvernig verður hann þegar hann er orðin 13 ára spyr ég nú bara.

Ég er samt svo mikið chicken að ég þorði ekki að fara með drenginn í leikskólann ef ske kynni að barnið væri að fá fyrir hjartað í alvörunni. Þá er betra að hann sé hjá mér svo ég geti keyrt á 150 km hraða upp á spítala.

Í vinnunni hjá mér fékk hann að teikna með kúlupenna og klippa niður myndir sem hann var búin að teikna. Það gekk vel.

Þegar vel var liðið á daginn og ég upptekin að svara tölvupósti læddist hann inná kaffistofu með skærin. Stuttu seinna kom hann fram og spurði mig: "Mamma, sérðu hárið á mér? Er það ekki fínt?" "Jú" sagði ég eftir að hafa litið snöggt á hann.

Það tók mig aðeins fjórar sekúndur að fatta að hann var ekki að spyrja að ástæðulausu svo ég stóð upp úr stólnum mínum og gekk til hans. Sá samt ekkert out of the ordinary. Ekki fyrr en ég skoðaði betur. Hann var búin að klippa sig, eins og mig grunaði, en hafði svo greitt á sér hárið þannig að það var bara helv flott.. svona eins og það væri greitt til hliðar.

114_1488-1.jpgHvað á maður að gera í því?
Vá!! Rosalega klipptir þú þig vel!
ÞÚ MÁTT ALDREI GERA ÞAÐ AFTUR!

Það er erfitt að vera foreldri.

Þar sem ég stóð þarna, kjaftstopp, að velta fyrir mér hvað ég ætti að segja barninu bauðst hann til að sýna mér hárið sem hann hafði klippt af. Hann hafði falið það á bak við ísskápinn í kaffistofunni þessi elska. Ég tók utan um hann og sagði honum að þetta væri allt í lagi en það væri alltaf best að fara til hárgreiðslukonu að láta klippa sig.

Hann sætti sig við það. Hann er samt búin að vera mjög drjúgur með sig og nýju klippinguna alla helgina og við erum búin að fela öll skæri á heimilinu.


| anna | 22:04 |
comments

Dóttir mín og vinkonur hennar fóru einu sinni í hárgreiðslustofuleik á leikskólanum. Ennistoppurinn var klipptur af dóttur minni alveg upp í hársrætur (reyndar frekar snyrtilega gert). Hárinu var hent út um gluggann til að ekkert fattaðist. Þegar ég koma að sækja stelpuna tók ein fóstran á móti mér svo alvarleg á svip að ég hélt að eitthvað hræðilegt hefði gerst. Svo sá ég blessað barnið og..... skellti uppúr. Henni hálf sárnaði litla greyinu, að ég skyldi taka þessu svona létt, því að fóstrurnar voru auðvitað búnar að hundskamma stelpurnar.

Nr. 1 | posted by: Guðrún | 30.09.2003 | 9:08:20 | [+] |

Sjís.. ég hefði líka bara verið svo fegin að ekkert alvarlegra en þetta gerðist. Ég færi á límingunum ef fóstrurnar tækju svona alvarlegar í bragði á móti mér! smile

Nr. 2 | posted by: anna | 30.09.2003 | 15:26:37 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web