Fimmtudagur, 18. september 2003
Á þessari mynd er aðeins auðveldara að greina að þetta er actually planta.
Annars spurði Tóti mig um daginn hvort ég héldi að þetta yrði einhvern tímann stórt tré. Það minnti mig á...
Þegar ég var að læra að sauma saumaði ég m.a. skyrtur. Djöfull á ég erfitt með þetta orð.. er það y eða i? Anyway.. ég saumaði skyrtur. Ef það er með y þá er það eins og skyr.. sem hefur ekkert með klæðnað að gera! En ef það er með i þá er það bara ljótt.
Allavega.. ég saumaði m.a. þessar flíkur. Þegar það, að ég væri að sauma skyrtur, barst í tal í boði spurði kunningi minn: "Saumiði skyrtur? Er það hægt? Ég hélt að það væri bara hægt í verksmiðjum."
Hann hafði aldrei leitt hugan að því að það væri actually hægt að sauma skyrtur á Bernina vél á eldhúsborðinu heima hjá sér.
Ég sagði Tóta þessa sögu og spurði svo: Hvernig heldur þú að tré verði til? Sérðu fyrir þér stórt gróðurhús og mann með töfrasprota sem segir: "Verði tré!"
Ég held samt að hann hafi efast vegna þeirra aðstæðna sem þessi tré eru alin upp við. Morgunsöngur klukkan sjö, áburður klukkan átta, hádegisáburður klukkan 12:07. Eftirmiðdags úði klukkan 17:45 og kvöld áburður klukkan átta. Þá er lokið sett á míní gróðurhúsið og sungin vögguvísa.