Fimmtudagur, 11. september 2003
Djöfull er ég reið.
Ég var í bíó að sjá myndina The Magdalene Sisters. Kannski er það bara ég sem er big softie en ég sver að ég hef ekki þurft að berjast svona mikið við tárin á leiðinni út úr bíó síðan ég fór að sjá Cinema Paradiso.
Var vælandi af allt öðrum ástæðum á þeirri mynd og var ekkert reið. Meira.. hamingjusöm.
Af tillitsemi við fólk eins og mig voru ljósin ekki kveikt eftir sýninguna heldur fengu áhorfendur að ganga niðurlútir að dyrunum og as luck would have it.. þá var rigning.
Ég ætla ekki að skrifa um þessa mynd. Ég get það ekki.
En ég get gefið henni stjörnur 