Miðvikudagur, 20. ágúst 2003
Veit einhver um einhvern sem á fullt af blómum af gerðinni Hoya?
(oft kallað vaxblóm)
Mig hefur lengi langað í fleiri tegundir en þessa (Hoya Carnosa) sem allir eiga en það er ekki auðvelt þegar maður býr á eyju langt út í ballarhafi þar sem gilda mjög strangar reglur um innflutning á plöntum. (Update: Ofangreint er rugl. Það gilda mjög sanngjarnar reglur um innflutning á pottaplöntum á Íslandi)
Mig langar bara í brot af þessum sem hægt er að finna í þessu galleríi
Oh.. ég er fædd í svo kolröngu landi að það er ekki fyndið.
MIG LANGAR SVO Í GRÓÐURHÚS!
Sem minnir mig á myndina Green Card... oh... mig langar í svoleiðis gróðurhús. Ó, Ó, Ó! Mest langar mig í gróðurhúsið sem var í myndinni Practical magic, sjá mynd.
Eru ekki einhverjir þarna úti sem eru til í að gefa mér afleggjara?
Já.. það þýðir ekkert að senda mér afleggjara í pósti. Ég er á svörtum lista hjá tollinum eftir að ég reyndi að smygla inn eiturlyfjum í pósti þegar ég var 17 ára.
Án gríns. Ég var boðuð niður í toll þegar pakki frá fólkinu sem ég bjó hjá í US kom til landsins en í honum var ein flaska af Pepto Bismol, Visine og economy size af Tylenol. Sem eru verkjatöflur sem fást í stórmörkuðum í US. Þessi lyf eru eiturlyf á Íslandi.
Ég var vegna þessa sett á svartan lista hjá tollinum vegna þess að ég var, skv. íslenskum lögum, að smygla inn eiturlyfjum. Magnað.
Það er vert að taka fram að það er ekki ólöglegt að koma með þetta með sér til landsins... það má bara ekki senda íslendingum svona eitur í bögglapósti.
Allar sendingar sem ég hef fengið erlendis frá hafa verið opnaðar samviskusamlega síðan þetta gerðist af starfsmönnum tollsins. Þótt ég sé löngu hætt að smygla eiturlyfjum. Ég hef þetta bara í handfarangrinum.