www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Úðafoss
Fimmtudagur, 07. ágúst 2003

Úðsfoss á Vitastíg er að mínu mati besta fatahreinsun landsins. Þegar ég var að læra að sauma í Iðnskólanum í Reykjavík komst ég á þessa skoðun. Úðafoss virtist vera eina hreinsunin í bænum sem hefur starfsfólk í vinnu sem getur hreinsað föt án aðstoðar meðferðamiða í hálsmáli eða streng og skilað fötunum óskemmdum frá sér.

Ég hef verið trú Úðafossi frá þessum tíma utan eitt skipti sem ég fór með hrikalega flottann jakka, sem ég saumaði úr fake fur, í hreinsun í Kringlunni og fékk hann til baka handónýtann. Ég fór næstum því að gráta þegar ég sótti jakkann því hann leit ekki lengur út eins og jakki.. meira eins og þvældur bangsi frá árinu 1950. Óbætanlegt tjón. Afgreiðslumaðurinn sá ekki mun á jakkanum og vildi ekkert fyrir mig gera. Vonandi er hann hættur að hreinsa föt fyrir fólk.

Ég fór með fake-fur-jakkann og tárin í augunum í Úðafoss og þeir náðu að gera hann líkari jakka en bangsa. Því miður var búið að þjösnast svo mikið á honum að betur gátu þeir ekki gert en hann var a.m.k. nothæfur aftur þótt hann væri ekki nærri eins fallegur og fyrr.
Allar götur síðan hef ég farið með fötin mín í Úðafoss og fengið þau hrein og óskemmd til baka.

Í dag fór ég einmitt að sækja jakka af Tóta í hreinsun. Tóti hefur ekki notað þennan jakka lengi en er orðin þreyttur á leðurjakkanum svo hann parkeraði leðrinu inn í skáp og fór með fyrrnefndan jakka í hreinsun. Þegar ég sótti flíkina fylgdi lítill ziplock poki með og afgreiðslumaðurinn sagði mér, þegar hann rétti mér pokann, að innihald hans hafði fundist í jakkanum. Í pokanum var armband og hringur sem ég er búin að leita að mánuðum saman.

Úðafoss rúlar!


| anna | 12:30 |
comments

Algjørlega sammala. Thegar eg bjo a Grettsigøtunni var Udafoss audvitad i næsta nagrenni og eg fastagestur. Einu sinni var eg ad fara ut a land i brudkaup og aætlunin var ad fara uppur hadeginu a føstudegi ut ur bænum. Thegar eg ætladi ad pakka jakkaføtunum minum nidur um tøsku um tiuleytid um morgunin komst eg ad thvi ad thau voru ohrein. Eg for i Udafoss og bar mig aumlega, sagdi theim solarsøguna og spurdi hvort their gætu redda mer.

Ekkert mal komdu klukkan 12.

Udafoss er best. thumb up thumb up

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 7.08.2003 | 13:09:46 | [+] |

Þetta þykir mér gott að heyra. Af einhverjum misskilningi hef ég skipt við Hraða hin síðari ár og alltaf orðið fyrir vonbrigðum. Ekki með hreinsunina sem slíka, heldur þjónustuna. Alveg með eindæmum luntalegt afgreiðslufólk og svo fer nafnið á fyrirtækinu alltaf í taugarnar á mér. Hraði my ass! Þarna er ekki mögulegt að fá flík hreinsaða á minna en þremur sólarhringum.

Mér finnst að vér bloggarar eigum að skiptast á svona neytendaráðum. Nú hef ég hugmyndaflug í að hætta að láta kvelja mig hjá Hraða. Kannski verða ferðir mínar í hreinsunina héðan í frá skemmtileg lífsreynsla. Þökk sé neytendahorni Önnu.is. wave

Nr. 2 | posted by: Tóta Pönkari | 7.08.2003 | 15:58:10 | [+] |

I aim to please. Always. wink

Nr. 3 | posted by: anna | 7.08.2003 | 16:04:17 | [+] |

Ég fer aldrei með föt í hreinsun og get því miður ekki skipst á skoðunum um þetta málefni. Mig minnir að bötlerinn skutlist með fötin mín í einhverja góðgerðarstarfsemi þegar ég er búin að nota þau.

Nr. 4 | posted by: Hexia | 8.08.2003 | 9:15:51 | [+] |

Ertu til í að senda hann bara beint til mín næst? colgate

Nr. 5 | posted by: anna | 8.08.2003 | 12:08:51 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web