www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tony to the rescue!
Föstudagur, 22. ágúst 2003

hus.jpgTony fann hús handa mér sem ég get freimað með hvítri girðingu.

Ef það er eitthvað að marka fasteignasalann þá bíður þetta mín:
"Välskött och mycket trivsamt är detta idylliska torpställe. Här kan man bara ligga i hängmattan och njuta av sommaren och fåglarnas kvitter!"

Ég held að þetta þýði: "Rúmgott og mjög þriflegt hús staðsett í ídeal þorpi. Hér getur maður legið í hengirúmi og notið sumarsins og fuglasöngs."
En veit ekkert um það.. þetta er svona play it by ear þýðing..

Hvað ætli kosti að flytja þetta í Vesturbæinn? Tóti er bundin vesturbænum átthagafjötrum. Það verður ekkert grín að fá hann til að flytja annað. Er ekki einusinni viss um að það virki að segja við hann eins og ég sagði við þáverandi kærasta minn sem hafði platað mig til að flytja með sér á Akureyri:

"Ég ætla að flytja til Reykjavíkur um helgina. Þú ræður hvort þú kemur með.. ég er allavega farin héðan."

Eftirfarandi saga er gott dæmi um hversu illa ég þreifst á Akureyri.

Vinum kærasta míns var ekkert sérlega vel við mig og ég vissi ekki af hverju. Ég hitti þá fyrst þegar ég flutti til Akureyrar. Vitið var líka ekkert að þvælast fyrir þeim.. eitt kvöldið heyrði ég þá tala um fyrir kærastanum:

Vinur 1: "Þú verður að losa þig við þessa stelpu"
Vinur 2: "Já þú ert ekki eins og þú varst.. hún er alltaf með þér.. við getum aldrei hitt þig"
Kærasti: "Hún situr inní stofu, þarna hinumegin við harmonikkuhurðina"

Hálfvitar.

Ekki hef ég færst upp vinsældarlistann þegar kærastinn flutti með mér til höfuðborgarinnar. Þegar vinur 1 og 2 uppfylltu æskudrauminn og fluttu líka til Reykjavíkur fórum við í heimsókn í grenið sem þeir leigðu í miðbænum.

Þar tóku þeir ofsa vel á móti mér og vinur 1 sagði við kærastann:
"Vá! Þessi er miklu flottari en sú sem þú varst með fyrir norðan.. hún var nú bara ljót!"
Anna: ".. það var ég."
Vinur 1 "veh.. ma... eh.."

Þeim var þá bara svona umhugað að kærastinn ætti huggulega konu, þeir sætir.

Þegar vinur 2 kom og fékk að gista hjá okkur og meig í sófann um nóttina fékk ég nóg. Sagði skilið við kærastann, vini hans og sófann.
Ein af skynsamlegri ákvörðunum sem ég hef tekið um ævina.

Ég kalla þá kærastann, vin 1 og vin 2 því ég man ekki nöfnin. Ég lærði snemma að sumar minningar er best að þurrka út af harða disknum.
Ég þarf bara að læra að hreinsa út atburði.. ekki bara nöfn.


| anna | 18:51 |
comments

Rosalega er mín upplifun af Akureyri svipuð. Ég fæddist reyndar þar og var þrjá daga að koma mér í burtu. Eftir þð reyni ég að vera jafnlengi í bænum og það tekur að aka í gegn á hámarkshraða

Nr. 1 | posted by: ingo | 23.08.2003 | 13:03:29 | [+] |

Akureyri. Before and after.

Hér áður var eina reynsla mín af Akureyri sem viðkomustaður ferðamanns. Og ágætur sem slíkur en ekki mikið meira.


BEFORE UNIVERSITY OG KRISTJÁN JÚL.
Það var síðan fyrir 7-8 árum síðan sem ég upplifði Akureyri sem vinnustað. Guð minn góður. Vélin lenti og af einhverjum furðulegum ástæðum hægðist snögglega á blóðrásinni. Kvart hraði í mesta lagi. Klukkan á veggnum í flugstöðinni hreyfðist varla. HVert var ég kominn.

Ekki var maður fyrr búinn að stíga út úr stöðinni en minnimáttarkenndin gerði vart við sig. Hjá Akureyringunum. SAS. Sérfræðingur að sunnan. Mættur til að segja þeim fyrir verkum. Humm.

Klukkan orðin tólf. Matur. Loka. Heim í soðna fiskinn. Opnað aftur klukkan eitt. Lokað klukkan fimm. Frábær þjónusta. NOT. Besti veitingastaðurinn Bautinn. Rauðkál á pulsunun.

Ástæðan fyrir þessu. SÍS. Sambandið var búið að eitra heilu kynslóðirnar. Drepa allt í dróma. Þetta var svona pínulítið Sovét. Átthagafjötrar. Enginn mátti skara frammúr. Þess vegna voru Kennedýbræðurnir uppnefndir sem Kennedýbræður. Sköruðu framúr. Slæmt.

AFTER UNIVERSITY OG KRISTJÁN JÚL.
Núna er allt annað að koma til Akureyrar. Upphafið er fall SÍS. Þá a.m.k. hægði á hnignuninni. En Háskólinn breytir miklu. Nýjar kynslóðir af ungu fólki koma inn. Kemur inn með nýjan hugsunarhátt. En það tekur sinn tíma að snúa ofan af Sovét. Heila kynslóð sennilega. Síðan kemur nýi bæjarstjórinn inn 1998. Kristján Þór Júlíusson. Með ferskar hugmyndir. Að byggja upp öflugan kjarna sem mótvægi við borgina. Fínt. Ungt og ferkst fólk fer hægt og sígandi að taka við rekstri fyrirtækja. Í sumar þegar ég fór til Akureyrar þá var kominn smá vísir að stórborgarbrag. Að vísu á háannatíma ferðamanna og gífurlegur fjöldi í bænum. En samt. Blóðrásin hélt sama hraða. Klukkan gekk á svipuðum hraða og í bænum. Það er bjartara framundan hjá Akureyringum ef þeir halda rétt á spöðunum. Nýta meðbyrinn. Grípa tækifærin og hætta að væla í stjórnmálamönnum og að tala um SAS. Hætta helvítis minnimáttarkenndinni og ráða sinni framtíð sjálfir.

Boriði göngin bara sjálfir. Ekki bíða eftir einhverjum misvitrum, lygnum stjórnmálamönnum. Það hefur aldrei borgað sig og breytist ekkert. Svo er sundlaugin fín. Góðir veitingastaðir. Fínt bakarí. Þyrftu að hætta rígnum í svona smá samfélagi og sameina íþróttafélögin og bjóða borginni byrginn.

Áfram Akureyri.

Nr. 2 | posted by: igor | 23.08.2003 | 21:46:41 | [+] |

Hvað er að heyra!
Ég þekki ekki vinalegri bæ en Akureyri.
Ég held að það sé sama hvar maður er staddur, ef maður er ekki opin fyrir umhverfinu og mannfólkinu þar sem maður er staddur í það og það skiptið þá fíli maður ekki staðinn.
Og ég er einmitt svo galopin.
Svona allavega í seinni tíð.
Skil þó mætavel upplifun Önnu þar sem hún flutti til Ak. þekkti engan nema kærastann og vinir hans voru kríp.

Endurskoða hlutina með opnum hug angel

Anna: Hefurðu komið til Akureyrar eftir tvítugt ? wink

Ef ég flytti úr sveitinni er draumastaðurinn Akureyri!

Nr. 3 | posted by: Harpa | 23.08.2003 | 23:06:23 | [+] |

Heyr Harpa.

Sjá Jóhannes í Bónus. Hann opnaði búð á Akureyri og upplifði það sama og ég í byrjun. Var á endanum hrakinn heim.

Gafst ekki upp og kom aftur. Opnaði búðina aftur. Opinn enn. Flutti svo sjálfur á staðinn. Ber honum vel söguna.

Before and after.

Nr. 4 | posted by: igor | 24.08.2003 | 0:26:42 | [+] |

Ég hef ekki stigið fæti á Akureyri frá því ég var 17 ára.

Eins og Harpa getur líklega sjálf vitnað um tek ég fólki og stöðum með opnum hug. Hef alltaf gert. Áður en ég flutti til Akureyrar fór ég með foreldrum mínum þangað í frí og á yndislegar minningar frá þeirri ferð.

Þegar ég hinsvegar flutti á staðinn varð ég fyrir ótrúlegum fordómum (finn ekkert betra orð) frá fólki sem hefur verið ótrúlega komplexað og hreinlega átt mjög bágt.
Flestir sem ég hitti voru á mínu reiki (17-19) og áttu þann draum heitastann að flytja á mölina. Þoldu samt ekki Reykvíkinga og virtust standa í þeirri meiningu að þeir væru allir í heilögu stríði við Akureyringa... Ég kom af fjöllum. Erum við í stríði? Hvar er minn heygaffall?

Akureyringar eru eins og annað fólk. Eins misjafnt og það er margt. Ég kynntist hálfvitum. That's it. Breytir því ekki að dvöl mín þar var helvíti og ég hef ekki séð ástæðu til að fara þangað aftur. Enda Harpa ekki flutt á draumastaðinn sinn. happy

Nr. 5 | posted by: anna | 24.08.2003 | 1:14:27 | [+] |

Því miður virist þetta hatur út í sunnanmennina ekki bara verið bundið við 17-19 ára. Nánast allir áttu við þessa komplexa að etja. Hvar heldur þú annars að unga fólkið hafi numið þetta. Ungur nemur gamall temur. Eins og þú segir voru Akureyringar í einhverju furðulegu stríði við þá að sunnan. Verst að óvinurinn vissi ekki að því.

Á þessum tíma voru Akureyringar ekki eins og annað fólk. Það var búið að eyðileggja þá af skuggalegu kerfi. Sambandinu.

Þannig er það ekki í dag. Köld krumla Sambandsins hefur verið tekin af þeím og þeir eru að vakna til lífsins. Eru að upptötva að þeir eru þeirra eigin gæfu smiðir. Hefur ekkert með Reykvíkinga að gera.

Nr. 6 | posted by: igor | 24.08.2003 | 8:41:16 | [+] |

Sjííís.........
djúpur [eyebrows]

Anna mín.
Ég veit að þú átt eftir að upplifa Akureyri á annan hátt þegar ég hrekst úr sveitasælunni og norður thumb up

Nr. 7 | posted by: Harpa | 24.08.2003 | 10:52:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web