www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skriðsund
Fimmtudagur, 14. ágúst 2003

Fyrir mörgum árum, á meðan aðrir unglingar börðust um í hagléli í kópavogspolli við að læra að synda, þá lá ég í sófanum heima hjá mér og borðaði snakk. Til hvers ætti maður að læra að synda hugsaði ég og hristi hausinn. Þvílík endemis vitleysa. Fékk mér meira snakk.

Í gegnum árin hef ég haldið áfram að borða snakk og með hverju ári sem líður sest meira snakk utan á mig. Einn daginn, þegar ég var að greiða mér, fattaði ég allt í einu af hverju það hefði verið sniðugt að læra sund. Þegar maður syndir.. fer snakkið af lærunum.. og þá getur maður borðað meira snakk! Úhú! Ég fór strax og skráði mig á sundnámskeið.

Ég tróð mér óvart í hóp sem innihélt gamla sundgarpa og var því sú eina sem kunni ekki neitt og fékk kút og kork. Með korkinn, kútinn og froskalappir synti ég fram og til baka að æfa skriðsundöndun. Mér lá við drukknun á 50 metra fresti auk þess fékk ég iðulega sjóriðu þegar tímarnir voru búnir og kallinn í local sjoppunni hélt líklega að ég tæki út drykkjusýki mína á mánudags, miðvikudags og fimmtudagskvöldum en þá skjögraði ég inn í sjoppuna eftir námskeið, óstyrkum fótum, að kaupa snakk og stundum kom það fyrir að ég missti fæturna og datt í gólfið..

Ég lærði hinsvegar ekki skriðsund. Ég rétt náði að fara fram og tilbaka í síðasta tímanum með froskalappir en síðan þá hef ég prufað að synda skriðsund án hjálpartækja og bara sekk til botns. Ætli vísindamenn viti af þessu?

Jæja. Núna er ég er búin að skrá mig á alvöru sundnámskeið þar sem ég ætla að læra skriðsund. Þó það kosti mig lífið, þá gefst ég ekki upp. Það er til mikils að vinna enda mikið til af snakki í heiminum.

Það var samt skemmtilegt hvernig ég náði sundprófinu á sínum tíma, stórreykingar og kyrrsetumanneskjan ég. Jú.. það vildi mér til happs að ég var unglingur.. og hafði common sense.

Ég hafði skrópað allan veturinn í sund. Sá ekki tilgang, eins og fyrr sagði, til að læra þetta rugl. Þegar kom að prófinu var hringt í mig og mér sagt að ef ég mætti í prófið og næði því væri ég sloppin. Hmmm...
Ég hringdi upp í sundlaug og spurði hver væri prófdómari og alveg eins og mig grunaði þá var það nasistinn með bláa hárið, illskuleg eldri kona.
Ég skrópaði í prófið enda átti ég ekki séns í próf þar sem gerðar voru kröfur um að ég actually kynni að synda. Aftur.. common sense.

Það leið að sjúkraprófi. Umjónarkennarinn minn hringdi í mig í eigin persónu og skipaði mér að mæta í prófið. Aftur hringdi ég upp í sundlaug og komst að því að bláhærða breddan var að dæma. Ég skrópaði í sjúkraprófið.

Það leið að sjúkra-sjúkraprófi. Umsjónarkennarinn minn hringdi aftur í mig og skiptaði mér að mæta í prófið. Ég hringdi enn einusinni upp í laug og komst að því að nasistinn var við stjórnvölinn. Ég skrópaði í sjúkra-sjúkraprófið og fór út í sjoppu að kaupa mér snakk.

Það leið að sjúkra-sjúkra-sjúkraprófi. Og án gríns.. þá hringdi umsjónarkennarinn minn enn einusinni í mig og skipaði mér að fara í prófið. Ég hringdi upp í sundlaug og komst að því, mér til mikillar gleði, að perrinn, miðaldra maður, var að dæma. Úhú! Ólíkt Jóhönnu Sigurðar vissi ég að nú væri minn tími kominn. Ég hringdi þessu næst í vinkonu mína og spurði hvort hún ætti sexý sundbol...

Vopnuð sexý sundbol, vatnshræðslu og kunnáttuleysi mætti ég í prófið ásamt þremur renglulegum drengjum sem höfðu greinilega allir legið í krónískum astma hin sjúkraprófin. Við fórum ofaní laugina og kennarinn sagði okkur að láta okkur fljóta. "Brjóstin vel uppúr", sagði hann.
Ég flaut rosalega vel, nánast óaðfinnanlega. Því næst áttum við að synda 32 ferðir fram og til baka. Ég synti fram og til baka og var þá orðin lafmóð og fann blóðbragð í munninum. Ég lét mig svo bara fljóta aðeins meira þangað til hinir voru búnir að synda allar 32 ferðirnar. Þá var komið að björgunarsundi. Kennarinn sagði mér að bjarga renglulegasta astmasjúklingnum og ég gleymi seint svipnum á aumingja drengnum, það var svona hræðslu gleði svipur. Líklega combo af sexý sundbolnum og þeirri vitneskju að hann væri um það bil að fara að drukkna því það var painfully obvious að ég myndi engum bjarga í sjávarháska.

Við lifðum bæði af og eiginlega má segja að hann hafi bjargað mér en ekki öfugt. Ótrúlegt afrek miðað við rýrt vaxtalag drengsins.

Björgunarsundið var síðasta æfingin í þessu prófi og ég fékk lokaeinkunnina sjö í sundi. Ef ég hefði kunnað að synda hefði ég líklega fengið tíu en sundbolur sem er uppá sjö er ekkert til að kvarta yfir. Ef ég ætlaði að leika sama leikinn núna fengi ég líklega núll sama hvernig sundbol ég væri í. Það mun vera snakkið.


| anna | 12:07 |
comments

Uff, eg var nærri dainn ur hlatri laughing thumb up

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 14.08.2003 | 13:18:11 | [+] |

nerdy

Hver er Anna? embarassed

Nr. 2 | posted by: ny1 | 14.08.2003 | 13:49:56 | [+] |

Hver er Anna? Þú þarft ekkert að vera embarrased.. ég þreytist ekki á að spyrja mig að þessu.

Nr. 3 | posted by: anna | 14.08.2003 | 13:58:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web