www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sjónvarpsmarkaðurinn
Laugardagur, 02. ágúst 2003

Það eina sem mér finnst leiðinlegt við að púsla er að það er ekki pláss til að gera það í friði. Ég á borðstofuborð en það er yfirleitt í notkun svo þetta er vandamál. Á fimmtudagskvöldið fann ég hinsvegar lausn á þessu skemmtilega vandamáli.

Ég var í baði þegar ég fór að velta því fyrir mér hvernig væri nú hægt að koma því þannig fyrir að maður geti verið að púsla á eldhúsborðinu en gæti tekið púsluspilið saman þegar fjölskyldan þyrfti að næra sig án þess að taka púsluspilið niður í frumeindir svo maður þyrfti að byrja á byrjuninni þegar maður væri búin að stuffa sig. Einnig finnst mér fúlt þegar maður skilur púsluspilið eftir að kvöldi og vaknar seint og um síðir næsta dag og finnur skyrklessur eða cheerios á púsluspilinu eftir morgunmat barnanna.

Í baði fékk ég hugljómun. Það sem ég þurfti var pissudúkur eins og fæst á slikk í Rúmfatalagernum og plaggat rúllu.

Þú leggur pissudúkinn á eldhúsborðið með plasthliðina upp og sléttar úr honum. púslar. Þegar þú þarft að taka saman rúllar þú pissudúknum með púsluspilinu upp á plaggat rúlluna.

Þótt dæmið hér að neðan involveri fullgert púsluspil þá er þetta hægt á öllum stigum pússlsins.
puzzle-3.jpg

puzzle-2.jpg

puzzle-1.jpg

puzzle-0.jpg

Ef þú átt ekki plaggat rúllu er hægt að verða sér út um eina slíka með því að panta sér plaggat frá útlöndum. Þetta er eingöngu hægt þegar upprúlluð plaggöt eru keypt.


| anna | 12:33 |
comments

vildi bara segja að þú ERT SNILLD!!!!!!!!!!!!!!!!

Nr. 1 | posted by: stelpa | 2.08.2003 | 15:19:26 | [+] |

Þetta hefði mér aldrei dottið í hug.

Ég þekkti einu sinni mann sem leysti þetta mál með því að púsla á rúmbotninum hjá sér. Rúmið var með heilum botni og lausri svampdýnu ofan á og hún var lögð á gólfið við hliðina á rúminu og setið á henni við að púsla. Á kvöldin var hún svo lögð ofan á hálfklárað púslið. Þegar hann gat lokkað stúlkur upp á herbergið með sér (þetta var á heimavist MA) bauð hann þeim gjarna upp á tvo valkosti: að púsla eða nota rúmið til annars. wink

Nr. 2 | posted by: Nanna | 2.08.2003 | 23:53:14 | [+] |

WAHAHAHAHAHAHAHAHA góður þessi gaur!

Ég á hinsvegar svona tveggja dýnu amerískt rúm með dýnu sem er þyngri en andskotinn svo þetta system myndi ekki virka fyrir mig. Samt. Frumleg pikkuplína: Hey.. viltu koma með mér heim að pússla? happy

Nr. 3 | posted by: anna | 3.08.2003 | 1:36:10 | [+] |

Hvað í fjandanum er pissudúkur?

Nr. 4 | posted by: Þór | 3.08.2003 | 1:39:48 | [+] |

Er Þór fæddur í gær?

Nr. 5 | posted by: igor | 3.08.2003 | 1:51:21 | [+] |

Vel skúrað hjá þér partketið. Er þetta eik?

Nr. 6 | posted by: igor | 3.08.2003 | 1:59:45 | [+] |

Var að velta fyrir mér hvort það væri ekki dáldið merkilegt að ræða um drasl eða ekki drasl á parketi hjá konu úti í bæ um verslunarmannahelgi.

Einhverntíma hefði maður nú gert eitthvað annað.

Nr. 7 | posted by: igor | 3.08.2003 | 2:12:24 | [+] |

Já.. þú hefðir líklega dáðst að vel þrifnu tjaldgólfi og mökk af blandi? hehehe

Nr. 8 | posted by: anna | 3.08.2003 | 2:21:26 | [+] |

Ætli maður hefði haft rænu á því að dásama þrifnað tjaldgólfsins. Varla.

Frekar dáðst að fegurð íbúa næsta svefnpoka eftir að hafa innbyrt Orange Vodka blandað með vatni úr næstu á.

Nr. 9 | posted by: igor | 3.08.2003 | 2:27:18 | [+] |

Hva... ertu fyllibytta, pervert og sóði?

Nei bara smá djók happy

Nr. 10 | posted by: anna | 3.08.2003 | 2:29:03 | [+] |

Kannski allt sem þú nefnir og líka aðdáandi fegurðar. En eru það ekki allir - inn við beinið?

Nr. 11 | posted by: igor | 3.08.2003 | 2:33:38 | [+] |

Fegurð heillar mig in any way, shape or form.

Nr. 12 | posted by: anna | 3.08.2003 | 2:42:30 | [+] |

Nei. Þetta var bara svona pæling.

Nr. 13 | posted by: igor | 3.08.2003 | 11:38:56 | [+] |

En þetta var nákvæmlega það sem ég meinti. Hefurðu aldrei hitt manneskju sem þér finnst falleg en þegar þú kynnist henni fölnar fegurðin ef manneskjan er illa innrætt? Eins á við um óaðlaðandi manneskju sem þér finnst falleg ef hún er... jah.. dásamleg?

Fegurð er afstæð. smile

Nr. 14 | posted by: anna | 3.08.2003 | 11:47:46 | [+] |

Hvers konar blaður er þetta? Og ætlar enginn að segja mér hvað pissudúkur er?

Nr. 15 | posted by: Þór | 3.08.2003 | 19:52:49 | [+] |

Er þetta ekki augljóst Þór, Pissudúkur er "Pissudúkkur" skrifað af Bubba Morthens

Nr. 16 | posted by: dorinn | 3.08.2003 | 19:59:16 | [+] |

Best að ég uppfræði Þór áður en hann fer á límingunum.

Pissudúkur eða pissulak er notað undir venjulegt rúmlak á rúmum barna sem eru á bleyju eða pissa undir til að verja dýnuna permanent hlandblettum með tilheyrandi stink og vibba. happy

Nr. 17 | posted by: anna | 3.08.2003 | 20:01:45 | [+] |

Ég veit hvað pissulak er. Mér datt bara ekki í hug að einhver myndi kalla það pissudúk. Málið leyst. colgate

Nr. 18 | posted by: Þór | 3.08.2003 | 20:07:19 | [+] |

Kínverski gaurinn er ansi svalur, Dorinn. Greinilega með hlutina á hreinu.

Nr. 19 | posted by: Þór | 3.08.2003 | 20:09:04 | [+] |

Eða kannski Japanski... nerdy

Nr. 20 | posted by: Þór | 3.08.2003 | 20:09:42 | [+] |

Ó hjúkk.... laughing

Nr. 21 | posted by: anna | 3.08.2003 | 20:10:26 | [+] |

Ekki er við hæfi að kalla pissudúk lak. Ástæðan er sú að lak er venjulega úr þunnu efni og hripleku. Mjög ólíku efni pissudúka. Því ef svo væri ekki þyrfti auðvitað ekki auka pissudúk.

Pissudúkur sækir nafn sitt af því að hann er oftast úr plastkenndu eða gúmmíkenndu efni. Til þess að ekki leki í gegn. Þar kemur tengingin við dúk.

Því er rétt að kalla hann áfram pissudúk.

Nr. 22 | posted by: igor | 3.08.2003 | 20:27:50 | [+] |

....hanah, þá er maður fróðari

Nr. 23 | posted by: dorinn | 3.08.2003 | 22:04:16 | [+] |

Smá pæling, ef einhverjir vilja kalla þetta lak.... er þá ekki best að kalla þetta MÍGLAK ?

Ég á að vera l0ngu sofnaður og þegar maður er í því ástandi þá fljúga frá manni fimmaurabrandararnir.....

.....Ég er farinn að sofa !

Nr. 24 | posted by: dorinn | 4.08.2003 | 4:10:09 | [+] |

Takk fyrir þessa lausn! Ég er bara svo straurblönk að ég hef ekki efni á plasti (þ.e. ef þú ert að tala um harðplast). smile

Á amma þín pússluspil eftir Ryba frá Heye sem hún vill selja? colgate

Nr. 25 | posted by: anna | 4.08.2003 | 13:10:31 | [+] |

Þegar ég púslaði 5000 stykkja púslinu (minnir að það sé Heye) í fyrra skiptið, um jólin 1992, þá lenti ég í vandræðum þegar kom að árlegu fjölskylduboði á gamlárskvöld. Borðstofuborðið (með tveim aukaplötum) var nefnilega undirlagt. Ég leysti málið með því að breiða einnota pappírsdúk frá Duni yfir hálfklárað púslið og venjulegan borðdúk þar ofaná. Svo þurfti bara að passa sig þegar maður setti rauðvínsglasið frá sér, að finna sléttan flöt undir. Þetta virkaði því Duni-dúkurinn reyndist nægilega vatnsheldur og stífur til að verja púslið.

Nr. 26 | posted by: Guðrún | 5.08.2003 | 13:25:56 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web