www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Próflestur
Fimmtudagur, 14. ágúst 2003

Fyrst ég er byrjuð að tala um próf á annað borð þá verð ég að minnast á prófhræðsluna sem ég þróaði með mér þegar ég var í Iðnskólanum.

Ég veit fyrir víst að nám í öðrum skólum er barnaleikur því í öðrum skólum og jafnvel öðrum deildum í Iðnskólanum (en þeirri sem ég var í) er prófað úr efni annarinnar. Það var ekki gert í fataiðn.

Sem dæmi þá eyddum við einni önn í að læra að teikna og sauma pils. Við vorum rosalega duglegar allar saman að læra fyrir prófin og rifja upp pilsin sem við höfðum teiknað og saumað um veturinn. En á prófinu áttum við að teikna og sauma jakkavasa.

Ha? En jakki er ekki pils!

Þegar við gerðum athugasemd við þetta var okkur sagt að þegar við værum búnar með námið myndum við þurfa að sauma og teikna upp flíkur sem við hefðum aldrei saumað og teiknað áður. Sure.. en þá getum við líka hringt út um allan bæ og fengið ráðleggingar og álit, farið á bókasafnið, skoðað sníðateikningar, borgað öðrum fyrir að gera það o.s.frv.

Svona gekk þetta. Það var aldrei prófað hvort við værum búnar að læra það sem var búið að kenna okkur, nei, það var athugað hversu duglegar við værum að giska á hvernig hitt og þetta er gert. Það sem við lærðum hinsvegar var að það hafði ekkert uppá sig að læra fyrir próf. Það var meðal annars þess vegna sem ég fékk hálfgert sjokk í fyrsta prófinu í VMA í vor þegar ég sá að það var bara verið að prófa úr námsefninu sem okkur hafði verið kennt og þar af leiðandi vissum við svörin. Hvusslax, hugsaði ég. Það eru bara engar kröfur gerðar í þessum skóla!

Ég var í baði í gær og fór að velta þessari prófaðferð fyrir mér. Hvernig væri það ef læknanemar væru prófaðir svona? T.d. skurðlæknanemar. Ef við gefum okkur að þeir taki eitthvað verklegt próf, hvernig myndi það fúnkera þegar búið er að kenna þeim að loka æð.. ef í prófinu ættu þeir að setja upp gangráð? Það er hæglega hægt að nota sömu rök og í Iðnskólanum. Læknar geta aldrei verið vissir um hvað er að fólki alveg eins og saumakona getur aldrei vitað fyrirfram hvað kúnninn biður um.

Eða augnlæknanemi sem er látin taka próf í að gefa stólpípur!

Nei... nú er ég ósanngjörn. Við vorum aldrei beðnar um að teikna og sauma pústkerfi...


| anna | 12:13 |
comments

Þegar ég tók sjókokkapróf í Húsmæðraskólanum á Akureyri á sínum tíma, þá kom ég upp í verklegum fiskibollum þótt mér hefði bara verið kennt að gera kjötbollur. Ókei, það er kannski ekki alveg sambærilegt dæmi, en samt ... Ég klúðraði allavega fiskibollunum embarassed en náði mér upp á skriflegri eggjamjólk.

Nr. 1 | posted by: Nanna | 16.08.2003 | 9:39:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web