www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nenni ekki að semja titil
Mánudagur, 25. ágúst 2003

Ég er orðin staur... eins og venjulega og mun lifa á svifi fram að mánaðarmótum.

Mér dettur ekkert í hug.. leiðist að bíða eftir að skólinn byrji og nenni engu. Efast um að ég nenni í bað í kvöld. Sem betur fer er sundnámskeið í kvöld svo ég mun ekki lykta eins og skunkur á morgun.
Nenni samt ekki á sundnámskeiðið. Er ekkert búin að æfa mig síðan í síðasta tíma og mun sjálfsagt aftur synda á 100 km hraða baksund á bakkann og meiða mig í hálsinum.
Ah.. fer samt. -Ef ég nenni.

Naglalakkið er að flagna af og ég nenni ekki að naglalakka mig. Kannski er þetta loftleysið hérna. Kannski lagast ég þegar ég er búin að fara út að reykja..

Ég nenni ekki heim.


| anna | 16:36 |
comments

Er það ekki hámark letinnar að nenna ekki heim úr vinnunni? happy

Hvernig stendur annars á því að commentkerfið þitt vill ekki muna personal info ? Er þetta einelti? boggled

Ég nenni ekki að pikka þetta alltaf aftur inn weepy

Nr. 1 | posted by: Harpa | 25.08.2003 | 17:27:18 | [+] |

Ég rétt drattaðist heim... ég veit ekki af hverju þetta man ekki upplýsingarnar þínar. sad

Nr. 2 | posted by: anna | 25.08.2003 | 17:30:39 | [+] |

Var það ekki vandamál í IE5?

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 25.08.2003 | 18:09:00 | [+] |

Personal info er komið inn aftur doubt
Er nóg að klaga? angel

Nr. 4 | posted by: Harpa | 25.08.2003 | 19:49:40 | [+] |

Ég gerði ekki nokkurn skapaðan hlut. Þú ert bara orðin tölvu wiz! colgate

Nr. 5 | posted by: anna | 25.08.2003 | 20:11:57 | [+] |

Ekki það komi mér á óvart thumb up

Nr. 6 | posted by: Harpa | 27.08.2003 | 23:44:49 | [+] |

beygja, kreppa, sundur, saman. einfalt! nerdy
sundkútar og svo fálmari fyrir baksundið (hægt að notast við spöng með tveimur gormum og stjörnu á endanum...ala 17.júní)einnig hægt að setja einn sundkút í sundhettuna til að nota í hallæri. reyndar er marel að vinna að því að gera svona baksunds-skynjara. mæli með vinnuvélalakki á neglurnar. fæst í slippfélaginu í grunnlitunum. thumb up

Nr. 7 | posted by: J | 28.08.2003 | 21:54:07 | [+] |

Vá mörg komment!
Verð að kommenta líka.
Svo glaður yfir að vera tengdur aftur og hafa tíma til að lesa öll bloggin.
Jammsmile

Nr. 8 | posted by: Þórarinn Leifsson | 29.08.2003 | 11:25:36 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web