www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Brúðkaupsafmæli
Laugardagur, 09. ágúst 2003

nammi.jpgÞað var fyrir sex árum sem ég og Tóti gengum inn kirkjugólfið í Dómkirkjunni og gengum í það heilaga. Ótrúlegt.

Við eigum sem sagt brúðkaupsafmæli í dag og mér skilst að það sé járn og nammibrúðkaup. ÚHA!

Það skýrir af hverju ég er búin að úða í mig sælgæti undanfarna daga og taka járn í pilluformi. Ég hef fundið þetta á mér.

Ég er ekki mjög dugleg að muna dagsetningar en það vill svo skemmtilega til að vinahjón okkar giftu sig á svipuðum tíma ári á eftir okkur. Ég kveikti á perunni þegar vinahjónaeiginmaðurinn sendi mér msn til að kanna hvað hann gæti gefið konunni sinni í trébrúðkaupsgjöf.
That was a bit of luck.

Það gekk ekki áfallalaust fyrir okkur Tóta að gifta okkur. Ég vildi að presturinn sem fermdi okkur bæði framkvæmdi verknaðinn og hringdi í hann þegar hálft ár var til stefnu til að bera þá bón undir hann.
Presturinn dó viku seinna.

Við fengum sal á leigu í Skólabæ á Suðurgötunni.
Viku fyrir brúðkaupið sprakk rör og vatn flæddi um allan Skólabæ.

Skynsöm manneskja hefði tekið þetta sem merki þess að við ættum að hætta við... en nei.. við ætluðum að gifta okkur come rain or shine. Miðvikudaginn fyrir brúðkaupið kom hinsvegar haglél, en við létum það ekki stoppa okkur.

Þann 9. ágúst 1997 var hinsvegar brakandi sólskin. Athöfnin, veislan og allur dagurinn var dásamlegur. Í þessi sex ár hefur svo ringt eld og brennisteini á víxl í okkar lífi en við erum ennþá á lífi.

Hvað ætlum við að gera til að halda upp á daginn?

Við ætlum að mætast... stálin stinn.. og borða fullt af nammi.


| anna | 11:55 |
comments

Til hamingju smile wave

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 9.08.2003 | 14:28:31 | [+] |

Takk, takk happy

Nr. 2 | posted by: anna | 10.08.2003 | 3:56:04 | [+] |

Smukke unge mennesker. cool

Nr. 3 | posted by: thors | 10.08.2003 | 18:06:13 | [+] |

hæ til hamingju hefur einhver einhverntíman sagt við þig að þú ert mjög lík pink? happy mér finnst það allavega

Nr. 4 | posted by: Birgitta | 13.08.2003 | 14:14:23 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web