Ég hef líka verið nokkuð annars hugar núna um helgina. Af áhyggjum.
Ástæðan er sú að ég hef verið að horfa á popptívi alla vikuna. Þar hafa Celebrities komið fram sem gestastjórnendur. Einn hluti þáttarins gengur út á það að spyrja svokallaðra Celeb spurninga. Ég áttaði mig ekki á hættunni á þessu fyrr en ég vaknaði í svitakófi í gærmorgun.
Hvað ef ég yrði nú frægur á morgun? Yrði að svara svona Celeb spurningum án nokkurs undirbúnings. Það varð að bregðast skjótt við og hef ég nú æft mig linnulaust um helgina.
1. Hver er uppáhalds maturinn þinn?
Kalt hangikjöt með grænum baunum og rauðkáli skolað niður með kaldri kók í gleri
2. Hver er uppáhalds bíómyndin þín?
The Sting
3. Hver er uppáhalds leikari?
Al Pacino
4. Hver er uppáhalds leikona?
Kristin Scott Thomas
5. Hvenær misstir þú sveindóminn?
No comment.
Það er þungu fargi af mér létt því nú get ég tekist á við frægðina hvenær sem hún lætur á sér kræla.
Nr. 2 | posted by: igor |
24.08.2003 | 20:45:24 | [+] |