Af þýðingum
Föstudagur, 01. ágúst 2003
Beggi.com kvartar yfir lélegum þýðingum þar sem hann gerir við prímusa. Af því tilefni verð ég að festa á blað (skjá, skrá, server, whatever) eina af fyndnustu og asnalegustu þýðingum sem ég hef á ævinni séð.
Það að rugla saman shirt og skirt er minniháttar yfirsjón miðað við það sem gekk á í míníseríu á stöð tvö fyrir ca 8 árum.
Flottræflarnir ég og Tóti vorum áskrifendur af stöð tvö þegar allir aðrir létu sér nægja að láta kúga sig um afnotagjald af RUV. Það var þessvegna sem við vorum með upptökur í gangi 24-7 fyrir ættingja, vini, kunningja og fólk sem við hittum í strætó sem vildi fylgjast með því dásamlega efni sem stöð 2 bauð uppá.
Eitt kvöldið vorum við að taka upp einhverja pathetic míníseríu. Viðkomandi manneskja, sem við vorum að taka þetta upp fyrir, ætlaði að koma að sækja þáttinn strax og hann var búin og þessvegna horfði ég á síðustu fimm mínútur af þættinum til að geta hætt upptöku strax og hann kláraðist. Ég veit ekki hvaða rusl þetta var en í lokaatriðinu sat aumur kvenmaður einn og yfirgefinn í réttarsal (minnir mig) þegar aðal sjarmörinn þeytir upp hurðinni og segir eitthvað voða sætt og endar á orðunum "Well, here I am, like it or not." Þau kyssast... the end.
Þessi setning var hinsvegar þýdd:
"Hér er ég, laus og liðugur eins og hurðahúnn." Þau kyssast... the end.
Ég spólaði þrisvar til baka og við Tóti grenjuðum út hlátri... vegna þess að það mátti svo sem heyra (ef þú ert hálfviti) "Here I am, like a door knob". Þau kyssast... the end. Hvaðan þýðandinn fékk "laus og liðugur" fæ ég ekki skilið. Það hefur kannski bara verið svona auka touch þar sem hann hefur séð að bein þýðing: "Hér er ég, eins og hurðahúnn" var bara ekki að virka.
Ég á þessa upptöku ennþá. Af augljósum ástæðum.
Ég hef ekki séð neitt sem toppar þetta. Ekki einusinni þegar Arnold Schwarzenegger biður um þúsund dollara worth of chips í spilavíti og það var þýtt: "Ég ætla að fá kartöfluflögur fyrir þúsund dollara".
|
|
 |
 |
Blóðtaka
Föstudagur, 01. ágúst 2003
Anna: "Komdu Doddi, ég þarf að setja plástra á hendurnar þínar".
Doddi: "Af hverju?"
Anna: "Af því við ætlum að fara til læknis og hann ætlar að skoða þig"
Doddi: "En af hverju þarf ég að fá plástur?"
Anna: "Af því að hann ætlar að taka blóð og rannsaka það"
Doddi: "Ætlar hann að taka blóð.. þá lifir maður ekki... (fer að gráta)
Anna: "Hann ætlar ekki að taka allt blóðið, bara pínu pons"
Doddi: "En það er vont"
Anna: "Það er ekkert vont því það er efni í þessum plástrum sem deyfir þig og þú finnur ekkert fyrir því þegar læknirinn tekur blóðið"
Doddi: "Tekur hann bara smá?"
Anna: "Já, ég lofa"
Doddi: "Ó hjúkk"
|
|
 |
 |
Spjaldgaga
Föstudagur, 01. ágúst 2003
Doddi fór í blóðtökuna og helvítis deyfi plásturinn virkaði ekki nógu vel. Blóð spýttist út um allt og Doddi öskraði af sársauka og barðist á hæl og hnakka. Það var líka hálf óhugnarlegt að sjá blóðpoll á gólfinu og ég efast ekki um að hann hafi trúað að það ætti að fjarlægja allt blóð úr líkama hans. Veslings barnið.
Hann tók gleði sína á ný þegar hann fékk að velja sér leikfang. Hann valdi sér plast skjaldböku sem fékk nafnið Spjaldgaga.
Við fórum og fengum okkur ís í þessum dómdagshita og fórum svo í sund. Dásamlegt hvað margir eru farnir út úr bænum. A.m.k. var laugin nærri tóm miðað við svona bongó blíðu.
Doddi hefur ekki látið Spjaldgögu úr augsýn og hún fór m.a. með okkur í sund. Endaði ofaní sundskýluni hans þar sem hún var alltaf að sökkva til botns og hann kann ekki að kafa alveg nógu vel til að eltast við hana. Ennþá.
Tók líka mynd af Elíasi svo ég gæti birt myndir af báðum gæludýrunum á heimilinu.
|
|
 |
 |
Sjónvarpsmarkaðurinn
Laugardagur, 02. ágúst 2003
Það eina sem mér finnst leiðinlegt við að púsla er að það er ekki pláss til að gera það í friði. Ég á borðstofuborð en það er yfirleitt í notkun svo þetta er vandamál. Á fimmtudagskvöldið fann ég hinsvegar lausn á þessu skemmtilega vandamáli.
Ég var í baði þegar ég fór að velta því fyrir mér hvernig væri nú hægt að koma því þannig fyrir að maður geti verið að púsla á eldhúsborðinu en gæti tekið púsluspilið saman þegar fjölskyldan þyrfti að næra sig án þess að taka púsluspilið niður í frumeindir svo maður þyrfti að byrja á byrjuninni þegar maður væri búin að stuffa sig. Einnig finnst mér fúlt þegar maður skilur púsluspilið eftir að kvöldi og vaknar seint og um síðir næsta dag og finnur skyrklessur eða cheerios á púsluspilinu eftir morgunmat barnanna.
Í baði fékk ég hugljómun. Það sem ég þurfti var pissudúkur eins og fæst á slikk í Rúmfatalagernum og plaggat rúllu.
Þú leggur pissudúkinn á eldhúsborðið með plasthliðina upp og sléttar úr honum. púslar. Þegar þú þarft að taka saman rúllar þú pissudúknum með púsluspilinu upp á plaggat rúlluna.
Þótt dæmið hér að neðan involveri fullgert púsluspil þá er þetta hægt á öllum stigum pússlsins.




Ef þú átt ekki plaggat rúllu er hægt að verða sér út um eina slíka með því að panta sér plaggat frá útlöndum. Þetta er eingöngu hægt þegar upprúlluð plaggöt eru keypt.
|
|
 |
 |
Ljóðahornið
Sunnudagur, 03. ágúst 2003
Morgunblaðið.
Þú lítur út eins og
Morgunblaðið
hefur margt
að segja
gott að grípa í á morgnanna
en að fá þig í áskrift.
Nei takk.
Ljóðið sem Morgunblaðið neitaði að birta. Sem er eftir...
(Tóta og Palli.. á von á að þið komið sterk inn!)
|
|
 |
 |
Out with the old.. in with the new
Mánudagur, 04. ágúst 2003
Ég fór að versla mér fíkniefnið mitt í gær. Þegar ég fékk pakkann í hendurnar leit hann ekkert út eins og þessi gamli góði, neibb.. það voru komnar nýjar umbúðir. Það fyrsta sem blasti við mér var aðvörun skrifuð stórum svörtum stöfum.
Ah.. hugsaði ég. Ekkert ég sem ég veit ekki og valhoppaði heim á leið.
Það var ekki fyrr en ég kom heim þegar ég fékk sannleikann beint í bláæð, skrifaðann með stærri svörtum stöfum.
Ég starði opinmynnt á pakkann og þegar ég sá að það er ekki hægt að pilla þetta af, því skilaboðin eru prentuð á pakkann, áttaði mig á því að þennan pakka gæti ég aldrei ferðast með í veskinu eða jakkavasanum. Þessi skilaboð eru einfaldlega of disturbing. Hvað á ég að segja börnunum? Hvað á ég að segja vinnuveitendunum?
Ég gerði það eina sem ég kann að gera í svona aðstæðum. Ég fór í bað.
Í baði fékk ég hugmynd, eins og svo oft.
Ég fæ mér bara svona... og þá verður allt í lagi.
hjúkk...
Afneituninni verður viðhaldið!
|
|
 |
 |
Fyrir Hörpu
Mánudagur, 04. ágúst 2003
Ég sá komment hér áðan þar sem ég fékk tvo þumla upp. Fattaði að það verður að vera smælingi sem gefur notendum möguleika á að gefa mér þumla upp eða niður 
Bætti svo við einum sem veifar fyrir Hörpu. Það er nú það minnsta sem ég get gert. 
|
|
 |
 |
Til vinnu
Þriðjudagur, 05. ágúst 2003
Mikið rosalega er gott að vera byrjuð að vinna aftur. Ahhhhh
Það varð samt ekki gaman fyrr en ég var búin að fara í gegnum þá 2375 tölvupósta sem biðu mín í inboxinu. 40% af því spam. En þegar ég var búin að koma spamminu fyrir kattarnef og hinum skeytunum á sinn stað gat ég byrjað að gleðjast.
Ég held að ég myndi veslast upp og drepast ef ég hefði ekki vinnu. Ég þoli ekki aðgerðarleysi og því miður þá kostar minnsta hreyfing í nútímaþjóðfélagi peninga. Það eina sem kostar ekki neitt er að hafa samfarir (ef ég gef mér að ekki verði úr barn, sá kostnaður er gífulegur) og að fara í göngutúr. Og þó.. það kostar að fara í göngutúr.. ef maður á ekki skó...
Ef einhver veit um fleiri hluti sem hægt er að gera sem kosta ekki krónu eru ábendingar vel þegnar. N.b. það þýðir ekki að segja mér að spila.. ég á ekki spil, svo þar kæmi til stofnkostnaður við að kaupa spilastokk.
Hvað gerði fólk í gamla daga eiginlega? Las það sömu bækurnar aftur og aftur og aftur?
Já og ekki koma með að það kosti ekkert að fara í heimsókn. Það kostar bensín og fyrirhöfn gestgjafans. Auk þess sem maður eykur hættuna á að aðrir komi í heimsókn til þín, heimtandi kaffi og með því.
Það eina sem ég get, í fljótu bragði, fundið fyrir mig að gera, sem kostar ekki neitt og hefur enga óvænta kostnaðarliði í för með sér er sjálfsfróun. Jah.. samt ekki ef maður reiknar sér tímakaup!
|
|
 |
 |
Bla bla blí blí blú blú blú...
Miðvikudagur, 06. ágúst 2003
Mig langar ekki að skrifa um Árna Johnsen. Vona bara að það sé boðið upp á sálfræðiviðtöl þarna á Kvíabryggju eða hvar sem hann er.
Í dag hitti ég konu sem hafði ekki séð mig lengi. Hún virðist ekki hafa séð mig í dag heldur, því hún minntist þrisvar á hvað ég liti vel út.
Ég er byrjuð að naglalakka mig óhóflega sem er augljóst merki um að ég er við góða heilsu. Læknirinn minn hringdi í dag. Spurði hvort ég væri ekki hætt að reykja. Ég sagði nei, ekki aaaalveg. Hann spurði næst hvort ég væri ennþá að taka Zyban. Jaaaá.. sagði ég. Nú? spurði hann, ertu að taka það inn þér til skemmtunnar? Eh.. hvað á maður að segja þegar maður er spurður svona óþægilegra spurninga?
Hvað gerðist fleira skemmtilegt í dag? Já.. mamma hringdi og bað mig um að taka sig í manicure á laugardaginn. Svo hringdi hún aftur og bað mig um að lita á sér hárið líka á laugardaginn. Ég samþykkti þetta alltsaman. Finnst þó rétt að taka fram að ég mun ekki vaxa bikinílínuna á henni.
Þar dreg ég mín mörk.
Fékk tölvupóst í dag frá Ástralíu. Ég fann blómakast nálgast um daginn svo ég sendi póst til fullt af útsæðissölum um allan heim að leita að fræi að tréi/runna sem mig langar til að rækta í stofunni heima hjá mér. Þessi Ástrali er með téð fræ og vill selja mér stykkið á 12 ástralska dollara sem ég held að séu kjarakaup.
Fleira var ekki í fréttum, sæl að sinni.
|
|
 |
 |
Úðafoss
Fimmtudagur, 07. ágúst 2003
Úðsfoss á Vitastíg er að mínu mati besta fatahreinsun landsins. Þegar ég var að læra að sauma í Iðnskólanum í Reykjavík komst ég á þessa skoðun. Úðafoss virtist vera eina hreinsunin í bænum sem hefur starfsfólk í vinnu sem getur hreinsað föt án aðstoðar meðferðamiða í hálsmáli eða streng og skilað fötunum óskemmdum frá sér.
Ég hef verið trú Úðafossi frá þessum tíma utan eitt skipti sem ég fór með hrikalega flottann jakka, sem ég saumaði úr fake fur, í hreinsun í Kringlunni og fékk hann til baka handónýtann. Ég fór næstum því að gráta þegar ég sótti jakkann því hann leit ekki lengur út eins og jakki.. meira eins og þvældur bangsi frá árinu 1950. Óbætanlegt tjón. Afgreiðslumaðurinn sá ekki mun á jakkanum og vildi ekkert fyrir mig gera. Vonandi er hann hættur að hreinsa föt fyrir fólk.
Ég fór með fake-fur-jakkann og tárin í augunum í Úðafoss og þeir náðu að gera hann líkari jakka en bangsa. Því miður var búið að þjösnast svo mikið á honum að betur gátu þeir ekki gert en hann var a.m.k. nothæfur aftur þótt hann væri ekki nærri eins fallegur og fyrr.
Allar götur síðan hef ég farið með fötin mín í Úðafoss og fengið þau hrein og óskemmd til baka.
Í dag fór ég einmitt að sækja jakka af Tóta í hreinsun. Tóti hefur ekki notað þennan jakka lengi en er orðin þreyttur á leðurjakkanum svo hann parkeraði leðrinu inn í skáp og fór með fyrrnefndan jakka í hreinsun. Þegar ég sótti flíkina fylgdi lítill ziplock poki með og afgreiðslumaðurinn sagði mér, þegar hann rétti mér pokann, að innihald hans hafði fundist í jakkanum. Í pokanum var armband og hringur sem ég er búin að leita að mánuðum saman.
Úðafoss rúlar!
|
|
 |
 |
Nammi
Fimmtudagur, 07. ágúst 2003
Var að kaupa mér appelsín til að skola niður Snickersinu sem ég keypti með því. Mmmmmmmm
Skv. einhverri könnunn eru sjö köngulóalappir í hverju súkkulaðistykki sem selt er í búðum. Ekki hefði mig grunað að köngulóalappir væru svona ljúffengar.
Á eftir ætla ég að finna menn sem eru að dreifa sandi og taka eitt langstökk...
[Vinnings Spam subject dagsins: "Anna! Enlarge_your_manhood"]
Vinnings kúnna-pikköpp-lína:
Anna: Hvernig viltu borga?
Viðskiptavinur: Í blíðu bara
Anna: Já, við erum með herbergi hér að baka til, ég ætla að biðja þig að fylgja mér...
How slutty are you?
Föstudagur, 08. ágúst 2003

How SLUTTY are you?
Mér finnast nunnubúningar alltaf svo perralegir... Hvað gerðist annars?
Ég er ekki nunna!!!!
|
|
 |
 |
Brúðkaupsafmæli
Laugardagur, 09. ágúst 2003
Það var fyrir sex árum sem ég og Tóti gengum inn kirkjugólfið í Dómkirkjunni og gengum í það heilaga. Ótrúlegt.
Við eigum sem sagt brúðkaupsafmæli í dag og mér skilst að það sé járn og nammibrúðkaup. ÚHA!
Það skýrir af hverju ég er búin að úða í mig sælgæti undanfarna daga og taka járn í pilluformi. Ég hef fundið þetta á mér.
Ég er ekki mjög dugleg að muna dagsetningar en það vill svo skemmtilega til að vinahjón okkar giftu sig á svipuðum tíma ári á eftir okkur. Ég kveikti á perunni þegar vinahjónaeiginmaðurinn sendi mér msn til að kanna hvað hann gæti gefið konunni sinni í trébrúðkaupsgjöf.
That was a bit of luck.
Það gekk ekki áfallalaust fyrir okkur Tóta að gifta okkur. Ég vildi að presturinn sem fermdi okkur bæði framkvæmdi verknaðinn og hringdi í hann þegar hálft ár var til stefnu til að bera þá bón undir hann.
Presturinn dó viku seinna.
Við fengum sal á leigu í Skólabæ á Suðurgötunni.
Viku fyrir brúðkaupið sprakk rör og vatn flæddi um allan Skólabæ.
Skynsöm manneskja hefði tekið þetta sem merki þess að við ættum að hætta við... en nei.. við ætluðum að gifta okkur come rain or shine. Miðvikudaginn fyrir brúðkaupið kom hinsvegar haglél, en við létum það ekki stoppa okkur.
Þann 9. ágúst 1997 var hinsvegar brakandi sólskin. Athöfnin, veislan og allur dagurinn var dásamlegur. Í þessi sex ár hefur svo ringt eld og brennisteini á víxl í okkar lífi en við erum ennþá á lífi.
Hvað ætlum við að gera til að halda upp á daginn?
Við ætlum að mætast... stálin stinn.. og borða fullt af nammi.
|
|
 |
 |
Talandi um brúðkaup...
Sunnudagur, 10. ágúst 2003
Ég sá flottasta brúðarkjól EVER í The Drew Carey Show í kvöld og skammaðist mín fyrir að hafa ekki reynt að gera betur þegar ég gerði minn. Mimi er átrúnaðargoðið mitt og þegar ég er orðin stór.. ætla ég að vera nákvæmlega eins og hún.
Þegar ég er orðin mjög stór... augljóslega.
Öll illfyglislegu glottin..
öll kvikindislegu kommentin..
Ó... hún er dásamleg.
Myndin gerir þessum kjól ekki justice því blómin sprungu ekki út fyrr en eftir klæðskiptingurinn hafði kysst brúðina og stuttu seinna flugu dúfur úr blóminu ofan á hausnum á henni.
Ég grét.
Eftir að ég horfði á þáttinn fór ég í bað, enda maskarinn komin niður á kinnar eftir þetta drama. Í baði fékk ég hugmynd þegar ég var að þvo mér um tærnar. Ég ákvað að byrja með nýjan vikulegan pistil á anna.is með fegurðartips og ég treysti á beauty-mógúlið systur mína því ég kann engin fegurðar-ráð eins og samferðamenn mínir í lífinu sjá í hvert skipti sem þeir hitta mig.
Anyway... Cleveland ROCKS. Og þessi kjóll.... þetta verður ekki toppað.
|
|
 |
 |
Bland í poka
Mánudagur, 11. ágúst 2003
Við Tóti fórum, í grenjandi rigningu, á Vegamót s.l. laugardag og ég fékk mér kjúklinga "satay" salat á meðan samkynhneigðir fóru í árlega skrúðgöngu niður Laugaveginn.
Þeir sem hafa ekki ennþá prufað þennan rétt ættu að skella sér hið fyrsta niður á Vegamót og prufa. Slurp!
Ég fór að lita mömmu og manikúra á föstudagskvöldið. Einhver kanadísk kelling var búin að skemma neglurnar á henni með því að forma þær eins og gel neglur. Ég gerði það sem ég gat til að láta neglurnar á henni líkjast náttúrulegum nöglum í stað þessara arfa ljótu fyrirbæra sem gel neglur eru. Það tókst svona la, la.
Annars finnst mér óborganleg staðreynd að konan sem importaði gel-nagla-æðið á Íslandi er eiginkona hvað sem hann heitir á Omega sem fann guð og lofar hann með gítarnum sínum. Ekki það. Whatever makes you happy...
Mikið svakalega fannst mér samt gaman að dúlla við mömmu. Fékk allar kjaftasögurnar beint í æð og var búin að gleyma þeim þegar ég kom heim. Ég er rosalega glötuð kjaftakelling. Man aldrei neitt.
Mér er sama hvað fólk sem ég þekki ekki er að gera og með hverjum. Kemur þetta fólk mér við?
Tóti segir stundum að ég hljóti að vera blind. Eins og þegar við förum út að djamma og ég sé ekki Fjölnir eða Möndu eða Dóru Takefusa eða Jónínu Ben o.s.frv. Af hverju ætti ég að taka eftir þessu fólki? Tekur þetta fólk eftir mér? I don't get it...
|
|
 |
 |
No frames
Mánudagur, 11. ágúst 2003
Úhú! Loksins fann ég nennu til að tweak-a galleríið mitt! Ég er í sjöunda himni! Allir rammar foknir af anna.is. Ég mun sofa róleg í nótt.
Annars fann ég snilldardæmi um glataða flash síðu fyrir áhugamenn.
Það er Marbert Þýskalandi sem hefur látið glepjast af hreyfanleika og dysfunction. En mikið svakalega er þetta lekkert...
Þegar maður velur í flash valflokkunum tekur flash-ið sinn tíma að lódast aftur inn á nýju síðunni hjá fólki, sem er púra heimska því fólk nennir ekki að bíða eftir því að menubarinn lódist inn til að fara eitthvað annað á síðunni.
Af hverju var ég á heimasíðu Marbert? Jú. Ég var að leita að mynd.. Í glugganum á Hringbrautarapóteki er auglýsingaplaggat frá Marbert. Það er mynd af nakinni konu í vatni. Það sést nú ekkert sérlega vel í rack-ið hjá dömunni -einmitt af því hún er ofaní vatni.
Það stoppaði karlkyns vegfaranda ekki frá því að glápa á myndina í fullar tvær mínútur í dag þegar ég var á leiðinni í Apótekið. Ég spyr: "Hvað var maðurinn að horfa á?"
Sumir karlmenn....
|
|
 |
 |
Að óska sér
Þriðjudagur, 12. ágúst 2003
Ég veit að maður getur óskað sér ef maður finnur augnhár sem hefur losnað af sjálfu sér, eða eitthvað svoleiðis, en hvað gildir um nefhár?
Ég var að skrifa á blað þegar ég fann nefhár losna og sá það detta á blaðið. Nú er ég í sjokki. Í fyrsta lagi finnst mér ósanngjarnt að fá nefhárlos þegar ég bið almættið á hverju kvöldi um að fá fótahárlos og í öðru lagi veit ég ekki hvort ég á að spandera gildri ósk á þetta nefhár eða ekki.
Eru einhverjar reglur um nefhárin eins og augnhárin? Gildir það sama um augnhár og augabrúnahár? Verður hárið að detta á efrivörina til að óskin sé gild?
E-mail subject dagsins: "Glötuð lykilorð"
Get ég gert að því þegar einhver velur sér glatað lykilorð?
|
|
 |
 |
Skriðsund
Fimmtudagur, 14. ágúst 2003
Fyrir mörgum árum, á meðan aðrir unglingar börðust um í hagléli í kópavogspolli við að læra að synda, þá lá ég í sófanum heima hjá mér og borðaði snakk. Til hvers ætti maður að læra að synda hugsaði ég og hristi hausinn. Þvílík endemis vitleysa. Fékk mér meira snakk.
Í gegnum árin hef ég haldið áfram að borða snakk og með hverju ári sem líður sest meira snakk utan á mig. Einn daginn, þegar ég var að greiða mér, fattaði ég allt í einu af hverju það hefði verið sniðugt að læra sund. Þegar maður syndir.. fer snakkið af lærunum.. og þá getur maður borðað meira snakk! Úhú! Ég fór strax og skráði mig á sundnámskeið.
Ég tróð mér óvart í hóp sem innihélt gamla sundgarpa og var því sú eina sem kunni ekki neitt og fékk kút og kork. Með korkinn, kútinn og froskalappir synti ég fram og til baka að æfa skriðsundöndun. Mér lá við drukknun á 50 metra fresti auk þess fékk ég iðulega sjóriðu þegar tímarnir voru búnir og kallinn í local sjoppunni hélt líklega að ég tæki út drykkjusýki mína á mánudags, miðvikudags og fimmtudagskvöldum en þá skjögraði ég inn í sjoppuna eftir námskeið, óstyrkum fótum, að kaupa snakk og stundum kom það fyrir að ég missti fæturna og datt í gólfið..
Ég lærði hinsvegar ekki skriðsund. Ég rétt náði að fara fram og tilbaka í síðasta tímanum með froskalappir en síðan þá hef ég prufað að synda skriðsund án hjálpartækja og bara sekk til botns. Ætli vísindamenn viti af þessu?
Jæja. Núna er ég er búin að skrá mig á alvöru sundnámskeið þar sem ég ætla að læra skriðsund. Þó það kosti mig lífið, þá gefst ég ekki upp. Það er til mikils að vinna enda mikið til af snakki í heiminum.
Það var samt skemmtilegt hvernig ég náði sundprófinu á sínum tíma, stórreykingar og kyrrsetumanneskjan ég. Jú.. það vildi mér til happs að ég var unglingur.. og hafði common sense.
Ég hafði skrópað allan veturinn í sund. Sá ekki tilgang, eins og fyrr sagði, til að læra þetta rugl. Þegar kom að prófinu var hringt í mig og mér sagt að ef ég mætti í prófið og næði því væri ég sloppin. Hmmm...
Ég hringdi upp í sundlaug og spurði hver væri prófdómari og alveg eins og mig grunaði þá var það nasistinn með bláa hárið, illskuleg eldri kona.
Ég skrópaði í prófið enda átti ég ekki séns í próf þar sem gerðar voru kröfur um að ég actually kynni að synda. Aftur.. common sense.
Það leið að sjúkraprófi. Umjónarkennarinn minn hringdi í mig í eigin persónu og skipaði mér að mæta í prófið. Aftur hringdi ég upp í sundlaug og komst að því að bláhærða breddan var að dæma. Ég skrópaði í sjúkraprófið.
Það leið að sjúkra-sjúkraprófi. Umsjónarkennarinn minn hringdi aftur í mig og skiptaði mér að mæta í prófið. Ég hringdi enn einusinni upp í laug og komst að því að nasistinn var við stjórnvölinn. Ég skrópaði í sjúkra-sjúkraprófið og fór út í sjoppu að kaupa mér snakk.
Það leið að sjúkra-sjúkra-sjúkraprófi. Og án gríns.. þá hringdi umsjónarkennarinn minn enn einusinni í mig og skipaði mér að fara í prófið. Ég hringdi upp í sundlaug og komst að því, mér til mikillar gleði, að perrinn, miðaldra maður, var að dæma. Úhú! Ólíkt Jóhönnu Sigurðar vissi ég að nú væri minn tími kominn. Ég hringdi þessu næst í vinkonu mína og spurði hvort hún ætti sexý sundbol...
Vopnuð sexý sundbol, vatnshræðslu og kunnáttuleysi mætti ég í prófið ásamt þremur renglulegum drengjum sem höfðu greinilega allir legið í krónískum astma hin sjúkraprófin. Við fórum ofaní laugina og kennarinn sagði okkur að láta okkur fljóta. "Brjóstin vel uppúr", sagði hann.
Ég flaut rosalega vel, nánast óaðfinnanlega. Því næst áttum við að synda 32 ferðir fram og til baka. Ég synti fram og til baka og var þá orðin lafmóð og fann blóðbragð í munninum. Ég lét mig svo bara fljóta aðeins meira þangað til hinir voru búnir að synda allar 32 ferðirnar. Þá var komið að björgunarsundi. Kennarinn sagði mér að bjarga renglulegasta astmasjúklingnum og ég gleymi seint svipnum á aumingja drengnum, það var svona hræðslu gleði svipur. Líklega combo af sexý sundbolnum og þeirri vitneskju að hann væri um það bil að fara að drukkna því það var painfully obvious að ég myndi engum bjarga í sjávarháska.
Við lifðum bæði af og eiginlega má segja að hann hafi bjargað mér en ekki öfugt. Ótrúlegt afrek miðað við rýrt vaxtalag drengsins.
Björgunarsundið var síðasta æfingin í þessu prófi og ég fékk lokaeinkunnina sjö í sundi. Ef ég hefði kunnað að synda hefði ég líklega fengið tíu en sundbolur sem er uppá sjö er ekkert til að kvarta yfir. Ef ég ætlaði að leika sama leikinn núna fengi ég líklega núll sama hvernig sundbol ég væri í. Það mun vera snakkið.
|
|
 |
 |
Próflestur
Fimmtudagur, 14. ágúst 2003
Fyrst ég er byrjuð að tala um próf á annað borð þá verð ég að minnast á prófhræðsluna sem ég þróaði með mér þegar ég var í Iðnskólanum.
Ég veit fyrir víst að nám í öðrum skólum er barnaleikur því í öðrum skólum og jafnvel öðrum deildum í Iðnskólanum (en þeirri sem ég var í) er prófað úr efni annarinnar. Það var ekki gert í fataiðn.
Sem dæmi þá eyddum við einni önn í að læra að teikna og sauma pils. Við vorum rosalega duglegar allar saman að læra fyrir prófin og rifja upp pilsin sem við höfðum teiknað og saumað um veturinn. En á prófinu áttum við að teikna og sauma jakkavasa.
Ha? En jakki er ekki pils!
Þegar við gerðum athugasemd við þetta var okkur sagt að þegar við værum búnar með námið myndum við þurfa að sauma og teikna upp flíkur sem við hefðum aldrei saumað og teiknað áður. Sure.. en þá getum við líka hringt út um allan bæ og fengið ráðleggingar og álit, farið á bókasafnið, skoðað sníðateikningar, borgað öðrum fyrir að gera það o.s.frv.
Svona gekk þetta. Það var aldrei prófað hvort við værum búnar að læra það sem var búið að kenna okkur, nei, það var athugað hversu duglegar við værum að giska á hvernig hitt og þetta er gert. Það sem við lærðum hinsvegar var að það hafði ekkert uppá sig að læra fyrir próf. Það var meðal annars þess vegna sem ég fékk hálfgert sjokk í fyrsta prófinu í VMA í vor þegar ég sá að það var bara verið að prófa úr námsefninu sem okkur hafði verið kennt og þar af leiðandi vissum við svörin. Hvusslax, hugsaði ég. Það eru bara engar kröfur gerðar í þessum skóla!
Ég var í baði í gær og fór að velta þessari prófaðferð fyrir mér. Hvernig væri það ef læknanemar væru prófaðir svona? T.d. skurðlæknanemar. Ef við gefum okkur að þeir taki eitthvað verklegt próf, hvernig myndi það fúnkera þegar búið er að kenna þeim að loka æð.. ef í prófinu ættu þeir að setja upp gangráð? Það er hæglega hægt að nota sömu rök og í Iðnskólanum. Læknar geta aldrei verið vissir um hvað er að fólki alveg eins og saumakona getur aldrei vitað fyrirfram hvað kúnninn biður um.
Eða augnlæknanemi sem er látin taka próf í að gefa stólpípur!
Nei... nú er ég ósanngjörn. Við vorum aldrei beðnar um að teikna og sauma pústkerfi...
|
|
 |
 |
Atviksorð
Föstudagur, 15. ágúst 2003
annA says:
hvað eru atviksorð?
annA says:
það er stelpa að segja á gestabókinni minni að ég skrifi atviksorð oft rangt
annA says:
Ég er búin að gráta í allan morgunn
snill-Lill says:
atviksorð eru orð sem eru ekki nafnorð, lýsingarorð eða sagnorð
snill-Lill says:
og, frá, til
snill-Lill says:
af
snill-Lill says:
að
annA says:
hvusslax [snýt]
annA says:
en ég skrifa og og frá og til ekkert vitlaust
annA says:
ég nota kannski að og af soldið vitlaust...
snill-Lill says:
jamm
snill-Lill says:
fullt af fólki sem gerir það
snill-Lill says:
m.a.s moi
annA says:
ó-hjúkk
[þessi kafli er sér saminn til að afsaka stafsetninguna mína og átti sér ekki stað í þessum samræðum]
annA says:
Ég er náttúrlega afurð lélegs skóla í Kópavogi sem láðist að greina mig sem hljóðvilltan einstakling með athyglisbrest, ilsig og líkþorn á litlutá hægra megin
[kafla lýkur]
annA says:
en hún vinkar mér
snill-Lill says:
sé það
annA says:
ekki vond manneskja
snill-Lill says:
neibb
annA says:
samt gott að ég er að fara í þennan íslenskuáfanga í haust
snill-Lill says:
segðu
snill-Lill says:
Af hverju annA?
annA says:
æi.. það kom svo flott út þegar Halldór hafði ródllaH.
Virkar ekki eins vel hjá mér.
[takk fyrir innleggið Anna Kristín, og mín var ánægjan. Einn af ofurkröftum mínum eru einmitt að forðast bókhaldsbögg. ]
snill-Lill var samt ekki alveg með þetta á hreinu. Allavega ekki skv. þessu:
Atviksorð eru óbeygjanleg nema hvað örfá þeirra geta stigbreyst. Atviksorð líkjast mjög lýsingarorðum enda lýsa atviksorð lýsingarorðum en þau geta þó ekki fallbeygst eins og lýsingarorðin. Atviksorð og nafnorð/fornöfn standa ekki saman. Til að finna út hvort atviksorð er atviksorð eða eitthvað annað er best að skipta um tölu fallorðanna í setningunni og athuga hvað breytist ekki egna þess að atviksorð eru óbreytanleg. Einnig er hægt að sleppa atviksorðum úr setningunni og einnig enda þau oft á -lega. Dæmi:Söngkonan syngur hátt. Hvaða orðflokkur er "hátt"? Skiptum um tölu fallorðsins. Söngkonurnar syngja hátt."Hátt" breytist ekki og er því atviksorð. Dæmi um fleiri atviksorð:"ekki, heim, heima, vel, mjög, illa, sko, gær, hvar."
|
|
 |
 |
Hollywood Homicide
Laugardagur, 16. ágúst 2003
Þetta er ótrúlega slöpp mynd. Maður fær bad wibes strax og opening credit draslið byrjar.
Sagan er klisja, plottið er klisja og ekkert plotpoint kemur á óvart. Myndin er langdregin og leiðinleg. Það er langt síðan ég hef fengið löngun til að fara heim í hléi.
Tilraunir til að gera myndina hip með tónlist mistakast hrapalega. Síðustu tíu mínúturnar eru ok en það gæti bara verið af því að maður er orðin desperate í að réttlæta að hafa eytt peningum í þessa hörmung. Harrison Ford er glataður í sínu hlutverki og ekki er Josh Hartnett skárri. Í raun fannst mér myndin illa leikinn in general fyrir utan Isaiah Washington, sem mér fannst góður og eiginlega out of place þarna. Það voru örfá atriði sem hægt var að hlæja að en overall var þetta glatað.
Ég hef helst á tilfinningunni að myndin sé einn stór einkadjókur fyrir þá sem búa í Hollywood. Ég myndi ekki fatta þann djók þar sem ég er búsett í Reykjavík.
Þessi mynd fær ekki stjörnu. Þessi mynd fær vídeóspólu og þá helst fríspólu með einhverju skárra.
|
|
 |
 |
When Harry met Sally
Sunnudagur, 17. ágúst 2003
Á meðan Tóti tastes his own vomit við að pósta quiz geri ég það með bros á vör. Mér finnst gaman að taka próf sem gefa manni möguleika eins og:
1. You hate yourself and want to die
2. You hate yourself
3. You want to die
og þegar maður hefur samviskusamlega valið skásta valkostinn við hverri spurningu (sem væri "you want to die" í ofangreindu dæmi eftir að maður hefur bætt "eventually" við svarið í huganum) þá fær maður að vita hver maður er. Þ.e. hvaða dýr, kvikmyndapersóna í ákveðinni bíómynd, ofurhetja, persóna úr heimsbókmenntunum eða þar fram eftir götunni.
Eina prófið sem ég hef tekið og mun ekki birta niðurstöðuna úr var Dante's Inferno Test en það er bara vegna þess að í niðurstöðum þessa prófs kemur illt innræti mitt greinilega fram svo ekki verður um villst. Mér finnst óþarfi að upplýsa lesendur mína um hversu rotin og ruthless ég er í raun og veru, sérstaklega í ljósi þess að á síðunni minni þykist ég vera meinlaus, bjartsýn "já" manneskja.
Það sem mér finnst merkilegt við þetta próf hér að neðan var að engin spurning var með valkost sem ég gat sætt mig við svo ég compromæsaði allt prófið og fæ svo þessa útkomu...

Everyone remembers the 'faked-orgasm-in-a-deli' sequence from your kind of movie When Harry Met Sally. It seems that you're falling for a buddy or have already fallen for them. Uh-oh. You're probably caught between the possibility of having a great relationship and wrecking the one you have now. You know what they say, it's better to regret something you did than something you didn't do.
What Romance Movie Best Represents Your Love Life?
Mig hefur hinsvegar lengi langað að vita hvaða líffæri ég er. Er ég lifur? Nýru? Hjarta? Botnlangi? Hvar ætli ég finni svoleiðis próf? Einnig langar mig að vita hvernig blý ég er. Langar mest að vera HB en óttast að fá 4H eða eitthvað álíka hryllilegt.
|
|
 |
 |
Gúrka
Mánudagur, 18. ágúst 2003
Það er gúrka á blogginu?
Já.. það má vera að það sé gúrka á blogginu. A.m.k. gerist ekki mikið í mínu lífi þessa dagana svo ég ákvað að taka Friends maraþon um helgina. Ein af fáum ákvörðunum sem ég hef staðið við um ævina.
Með þessu glápi mínu hef ég komist að því að það er eitthvað að. Þrisvar hef ég brostið í grát yfir ævintýrum Friends og það getur ekki talist eðlilegt. Ég velti því fyrir mér hvort ég sé komin á breytingaraldurinn eða hvort hormónalykkjan sé á loka innspýtingunni. Kannski er hún hætt að virka all together og ég er bara búin að gleyma hversu emotional ég var áður en ég byrjaði á henni.
Hvað sem það er.. sem er að mér.. þá líst mér ekkert á blikuna. Ég grenja yfir Friends, ég tárast þegar ég sé skrítinn mann með skegg sem heldur á priki með áföstu plaggati sem á stendur:
BLÓÐ
-BUSI
-DÓRI
-DAVI
og núna.. þegar ég átta mig á hvað grænmeti er hollt og gott og ég á ekki einu sinni gúrku.. er ekki laust við að ég tárist.
|
|
 |
 |
Gúrkan heldur áfram
Mánudagur, 18. ágúst 2003
 Nice and Sweet and not too overbearing, you are Milk Chocolate. Everyone likes you to some extent, and a lot of people love you more than they love their cat.
What Kind of Chocolate are You?
Að ég hafi fengið þessa niðurstöðu eftir að hafa valið svör eins og:
"fuck off"
"how about... go fuck yourself"
og "i was bored"
er amazing.
I was goin for bitter...
Fullkomið andleysi
Þriðjudagur, 19. ágúst 2003
Enn einn vírus er komin inn í hús.
Þriðjudagur, 19. ágúst 2003
Ekki opna póst sem hefur subjectið:
Subject line:
Chosen from -
Re: That movie
Re: Wicked screensaver
Re: Your application
Re: Approved
Re: Re: My details
Re: Details
Your details
Thank you!
Kvikindið heitir WORM_SOBIG.F
mbl frétt og Frisk tjáir sig
Huglægur Valdo
Miðvikudagur, 20. ágúst 2003
(16:44:25) annA: dreptu með mér 10 mín
(16:44:40) H@11d0r: hey !
(16:44:45) H@11d0r: huglægan Valdo
(16:44:48) annA: ok
(16:44:51) H@11d0r: svona hvar er valli í hausunum á okkur
(16:44:57) annA: hvar er Valdo?
(16:44:58) H@11d0r: ok, ég er búinn að hugsa mér stað
(16:45:18) annA: hann er á bak við hægra heilahvelið hægra megin við túmorinn
(16:45:23) annA: er það rétt hjá mér?
(16:45:36) H@11d0r: DAMN U !!! þú ert of góð í þessu
|
|
 |
 |
Vaxblóm Hoya
Miðvikudagur, 20. ágúst 2003
Veit einhver um einhvern sem á fullt af blómum af gerðinni Hoya?
(oft kallað vaxblóm)
Mig hefur lengi langað í fleiri tegundir en þessa (Hoya Carnosa) sem allir eiga en það er ekki auðvelt þegar maður býr á eyju langt út í ballarhafi þar sem gilda mjög strangar reglur um innflutning á plöntum. (Update: Ofangreint er rugl. Það gilda mjög sanngjarnar reglur um innflutning á pottaplöntum á Íslandi)
Mig langar bara í brot af þessum sem hægt er að finna í þessu galleríi
Oh.. ég er fædd í svo kolröngu landi að það er ekki fyndið.
MIG LANGAR SVO Í GRÓÐURHÚS!
Sem minnir mig á myndina Green Card... oh... mig langar í svoleiðis gróðurhús. Ó, Ó, Ó! Mest langar mig í gróðurhúsið sem var í myndinni Practical magic, sjá mynd.
Eru ekki einhverjir þarna úti sem eru til í að gefa mér afleggjara?
Já.. það þýðir ekkert að senda mér afleggjara í pósti. Ég er á svörtum lista hjá tollinum eftir að ég reyndi að smygla inn eiturlyfjum í pósti þegar ég var 17 ára.
Án gríns. Ég var boðuð niður í toll þegar pakki frá fólkinu sem ég bjó hjá í US kom til landsins en í honum var ein flaska af Pepto Bismol, Visine og economy size af Tylenol. Sem eru verkjatöflur sem fást í stórmörkuðum í US. Þessi lyf eru eiturlyf á Íslandi.
Ég var vegna þessa sett á svartan lista hjá tollinum vegna þess að ég var, skv. íslenskum lögum, að smygla inn eiturlyfjum. Magnað.
Það er vert að taka fram að það er ekki ólöglegt að koma með þetta með sér til landsins... það má bara ekki senda íslendingum svona eitur í bögglapósti.
Allar sendingar sem ég hef fengið erlendis frá hafa verið opnaðar samviskusamlega síðan þetta gerðist af starfsmönnum tollsins. Þótt ég sé löngu hætt að smygla eiturlyfjum. Ég hef þetta bara í handfarangrinum.
|
|
 |
 |
Ég, mamma og vírus
Miðvikudagur, 20. ágúst 2003
Þegar ég vaknaði á sunnudaginn fann ég útbrot á maganum á mér. Í fyrsta sundtímanum á mánudagskvöldið spurði ég mömmu hvað þetta gæti nú verið. "Ristill", sagði hún, "og ef þetta breiðist úr.. þá munt þú deyja".
Er ristillinn ekki inní manni? spurði ég, "er minn að reyna að komast út?"
Af ótta við að ég myndi drepast innan fárra daga fór ég á netdoktor.is og las mig til um ristil. Þetta er allt í lagi. Ég mun líklega ekki drepast.
Ekki úr ristli allavega.
Pantaði mér samt tíma hjá lækni.
Þegar ég var komin til læknisins fletti ég upp um mig bolnum og sýndi henni útbrotin.. sem mig klæjar ekki í og finn in general ekkert fyrir.
"Það er ekkert að þér nema aumingjaskapur" sagði læknirinn.
"MAMMA, ERT ÞETTA ÞÚ?" spurði ég.
Nú lýg ég. Þetta er vírus og ég fékk krem...
Á meðan sumir fá vírus í tölvuna fæ ég vírus á magann. Það sem mig langar að vita er hvaða vírus þetta er og hvað hann var að gera í rúminu mínu aðfaranótt sunnudagsins!
|
|
 |
 |
Nördapoint
Fimmtudagur, 21. ágúst 2003
Skorar maður ekki fullt af nördapoint-um ef maður gerir heimasíðu um eina ákveðna blómategund?
Held niðri í mér andanum
Föstudagur, 22. ágúst 2003
Ég fann aðila á vefnum sem safna og rækta svona Hoya blóm og bjóða upp á að senda græðlinga út um allan heim ásamt heilbrigðisvottorði fyrir sanngjarnt verð.
Ég þori ekki að gleðjast of mikið af ótta við Murphy's Law - sem ofsækir mig.
En ef þetta reynist rétt.. þá verður æskudraumur minn líklega að veruleika. Ég verð gömul kona, uppnefnd "blómakonan" af börnum í hverfinu og mun búa í íbúð sem er heill frumskógur af Hoya blómum.
Just in case ætla ég að fara með faðirvorið og hina bænina sem ég man ekki hvað heitir og krossa mig í bak og fyrir og...
Christ.. ég vona að þetta sé hægt.
|
|
 |
 |
Tony to the rescue!
Föstudagur, 22. ágúst 2003
Tony fann hús handa mér sem ég get freimað með hvítri girðingu.
Ef það er eitthvað að marka fasteignasalann þá bíður þetta mín:
"Välskött och mycket trivsamt är detta idylliska torpställe. Här kan man bara ligga i hängmattan och njuta av sommaren och fåglarnas kvitter!"
Ég held að þetta þýði: "Rúmgott og mjög þriflegt hús staðsett í ídeal þorpi. Hér getur maður legið í hengirúmi og notið sumarsins og fuglasöngs."
En veit ekkert um það.. þetta er svona play it by ear þýðing..
Hvað ætli kosti að flytja þetta í Vesturbæinn? Tóti er bundin vesturbænum átthagafjötrum. Það verður ekkert grín að fá hann til að flytja annað. Er ekki einusinni viss um að það virki að segja við hann eins og ég sagði við þáverandi kærasta minn sem hafði platað mig til að flytja með sér á Akureyri:
"Ég ætla að flytja til Reykjavíkur um helgina. Þú ræður hvort þú kemur með.. ég er allavega farin héðan."
Eftirfarandi saga er gott dæmi um hversu illa ég þreifst á Akureyri.
Vinum kærasta míns var ekkert sérlega vel við mig og ég vissi ekki af hverju. Ég hitti þá fyrst þegar ég flutti til Akureyrar. Vitið var líka ekkert að þvælast fyrir þeim.. eitt kvöldið heyrði ég þá tala um fyrir kærastanum:
Vinur 1: "Þú verður að losa þig við þessa stelpu"
Vinur 2: "Já þú ert ekki eins og þú varst.. hún er alltaf með þér.. við getum aldrei hitt þig"
Kærasti: "Hún situr inní stofu, þarna hinumegin við harmonikkuhurðina"
Hálfvitar.
Ekki hef ég færst upp vinsældarlistann þegar kærastinn flutti með mér til höfuðborgarinnar. Þegar vinur 1 og 2 uppfylltu æskudrauminn og fluttu líka til Reykjavíkur fórum við í heimsókn í grenið sem þeir leigðu í miðbænum.
Þar tóku þeir ofsa vel á móti mér og vinur 1 sagði við kærastann:
"Vá! Þessi er miklu flottari en sú sem þú varst með fyrir norðan.. hún var nú bara ljót!"
Anna: ".. það var ég."
Vinur 1 "veh.. ma... eh.."
Þeim var þá bara svona umhugað að kærastinn ætti huggulega konu, þeir sætir.
Þegar vinur 2 kom og fékk að gista hjá okkur og meig í sófann um nóttina fékk ég nóg. Sagði skilið við kærastann, vini hans og sófann.
Ein af skynsamlegri ákvörðunum sem ég hef tekið um ævina.
Ég kalla þá kærastann, vin 1 og vin 2 því ég man ekki nöfnin. Ég lærði snemma að sumar minningar er best að þurrka út af harða disknum.
Ég þarf bara að læra að hreinsa út atburði.. ekki bara nöfn.
|
|
 |
 |
Anna-rs hugar
Sunnudagur, 24. ágúst 2003
Doddi: Mamma.. ég þarf að kúka
Anna: Hringdu í mig þegar þú ert búinn
Nýtt orð
Mánudagur, 25. ágúst 2003
Pikkless. Notað á svipaða hátt og speachless.. virkar fyrir þá sem nota msn.
Nenni ekki að semja titil
Mánudagur, 25. ágúst 2003
Ég er orðin staur... eins og venjulega og mun lifa á svifi fram að mánaðarmótum.
Mér dettur ekkert í hug.. leiðist að bíða eftir að skólinn byrji og nenni engu. Efast um að ég nenni í bað í kvöld. Sem betur fer er sundnámskeið í kvöld svo ég mun ekki lykta eins og skunkur á morgun.
Nenni samt ekki á sundnámskeiðið. Er ekkert búin að æfa mig síðan í síðasta tíma og mun sjálfsagt aftur synda á 100 km hraða baksund á bakkann og meiða mig í hálsinum.
Ah.. fer samt. -Ef ég nenni.
Naglalakkið er að flagna af og ég nenni ekki að naglalakka mig. Kannski er þetta loftleysið hérna. Kannski lagast ég þegar ég er búin að fara út að reykja..
Ég nenni ekki heim.
|
|
 |
 |
Neverland
Föstudagur, 29. ágúst 2003
Nú er ég búin að gráta yfir örlögum mínum í marga daga. Hvernig stendur á því.. að þegar maður er komin með langar neglur.. þá brotnar ein? Og af hverju brotnar þá ekki nöglin á litlafingri? Eða jafnvel þumalfingri? Af hverju brotnar nöglin alltaf á vísi fingri eða fokk-merkja-fingri? I don't get it.
Þegar Michael frétti hvað ég átti bágt og var sár og svekkt in general bauð hann mér í heimsókn svo við gætum haldið upp á afmælin okkar saman. Á fimmtudagsmorgun sendi hann þotu eftir mér og fylgdarliði mínu.
Við komum á staðinn um klukkan 10 um fimmtudagsmorguninn (að staðartíma) og krakkarnir fóru beint í leiktækin. Ég sá þau ekki aftur fyrr en um kvöldmat. Ég og Mikki fórum yfir ýmis mál og hann viðurkenndi að það hefðu verið mistök að hafa mig ekki í ráðum þegar hann samþykkti gerð heimildarmyndarinnar. Ég sagði honum líka að það þýddi ekkert að reka alltaf alla ráðgjafana.. hann yrði einhvern daginn að takast á við sjálfan sig og læra að taka afleiðingum gjörða sinna. Hann horfði þögull á mig í smá stund og stakk svo upp á að við færum í nudd. Eftir dásamlegt nudd bað hann mig að kíkja á texta fyrir nýjustu plötuna sína og ég las þetta yfir á meðan ég lá í leirbaði með einhverjum súper leir sem hann lætur flytja inn fyrir sig frá einhverju landi sem ég kann ekki nafnið á. Þegar ég kom uppúr var eins og húðin á mér hefði yngst um 15 ár. Það er ekki vandamál að líta vel út þegar maður á peninga.
Við borðuðum rosalega góðan mat um kvöldið en ég veit ekki hvað það var. Mikki er svo matvandur að hann lætur dulbúa matinn svo hann viti ekki hvað hann er að borða. Ég þarf að fá mér svona kokk heim því krakkarnir borðuðu heilan helling án þess að hafa grun um að á hverjum diski var fullkomin máltíð. Næringarfræðilega séð. Svo það hlýtur að hafa verið grænmeti þarna líka. Eða grænmetis-substitute. Ah.. what do I know... þetta var allavega gott.
Eftir matinn rann einn veggurinn í borðstofunni (hvað á maður að kalla þetta?) til hliðar og við horfðum á Pétur Pan á litlu sviði sem var á bak við vegginn. Verst að ég tók ekki myndavélina mína með því svipurinn á Dodda var óborganlegur. Fæ kannski upptöku frá eftirlitskerfinu áður en ég fer.
Mikki vildi endilega að allir færu snemma að sofa því hann var búin að plana eitthvað rosa, rosa fyrir daginn í dag, svo við fórum öll upp í rúmið hans um klukkan hálf tíu. Það var ansi þröngt á þingi, sérstaklega þar sem Mikki er búin að venja tannlausa ljónið á að sofa uppí svo Mikki endaði á gólfinu eins og venjulega. Ég þarf að segja honum að taka þetta upp hjá sálfræðingnum. Það er ekki eðlilegt að sofa alltaf á gólfinu.
Í morgun þegar ég og krakkarnir vöknuðum klukkan sjö stormuðu dvergarnir sjö inn í herbergið með sjö mismunandi kökur fyrir okkur í morgunmat. Ég held ég hafi farið aðeins of geyst í karamellu kökuna með vanillukreminu en það er önnur saga sem er viðburðasnauð og gerist næstum eingöngu á stærsta baðherbergi sem ég hef komið í. Anyway. Doddi var nú soldið hræddur við dvergana en tannlausa ljónið passaði uppá hann og hvæsti á þá sem reyndu að koma nálægt okkur. Vond lykt af ljónum annars.
Þegar morgunmaturinn var búinn var eins og við manninn mælt.. krakkarnir fóru beint í leiktækin og ég fór að leita að Mikka. Fann hann uppí tré út í garði og við ákváðum að fara í göngutúr að hliðinu. Hér erum við svo komin, fjórum klukkutímum seinna, og ég stalst á netið í hliðar-varðar-húsinu.
Ég hlakka ekkert smá til í kvöld þegar Liz kemur að borða með okkur. Mikki vildi endilega hafa matinn í fornaldar-ensku-kastala-stíl og er búin að láta reisa kastala norðanmegin á lóðinni. Var ótrúlega klókur og opnaði Neverland í einn dag og okraði á miðunum svo hann gæti byggt nýjan kastala. Liz heimtaði eitthvað meira "sophisticated". -Auk þess er hún í megrun því hún er byrjuð að drekka aftur og þá hleður hún svo utaná sig. Ég er samt hálf fegin.. hún er svo rosalega þung þegar hún er edrú.
Það er búið að vera svo gaman. Mikki er náttúrlega klikk en það er ekkert verra. Að vera nálægt honum er eins og að vera fastur í söngva og dansmynd því maðurinn brestur í söng við minnsta tilefni og tekur sporið undantekningarlaust með. Hann er búin að vera rosa duló og ég veit að hann er búin að plana eitthvað fyrir okkur að gera í hádeginu... en ég hlakka mest til í kvöld.. ..veit ekki hvað ég fæ í kvöldmat.. nema Liz sagðist ætla að fá sér gúrkusneið, salatblað og ólívu með vodka. Annars er aldrei að marka það sem hún segir. Hún gæti svo endað með að fá sér bara Gin og sleppa matnum.
|
|
 |
 |
|
 |
|
ravings í ágúst 2003
monthly archive
|
|
|