www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
WD-40
Miðvikudagur, 30. júlí 2003

Þá er WD-40 vertíðin runnin upp og í gær féll fyrsti geitungurinn.

Ég sat í stól og starði í tómið. Hugsaði ekkert. Slefaði. Skyndilega kallaði Doddi: "GEITUNGUR". Líf mitt öðlaðist tilgang á ný og ég spratt á fætur, þurrkaði mér um munninn og leit leiftursnöggt í kringum mig.
Ég sá hann... hann sveimaði í kringum lampann á hornborðinu. Andlit mitt skartaði illskulegu glotti.

Ég fór inní eldhús og opnaði eiturefnaskápinn. Á bak við ofnhreinsi, fægilög, gyllt spray í brúsa (frá þeim tíma sem ég hélt að líf mitt myndi lagast ef allt draslið í stofunni væri gyllt. Boy.. was I wrong..) klór, blásýru, rottueitur, zyclon-b og hársprey fann ég... WD-40, fjölnota ryðolíu sem ber nafn með rentu.

Ég tók lokið af brúsanum og festi rauða stútin á. Bætir miðið rosalega. Á meðan ég var að undirbúa mig heyrði ég í kvikindinu suða fyrir ofan hausinn á mér en ég var óhrædd, vitandi að innan fárra mínútna myndi líkið af þessum viðbjóði verma gluggakistu í stofunni. Næst lokaði ég öllum gluggum.

Í fyrradag slapp einn geitungur út um svalahurðina áður en ég náði að loka hann inni og spreya hann með dauðaspreyinu. Slík mistök mun ég ekki gera aftur.

Með alla glugga kyrfilega lokaða og Dodda inní skáp hófst safaríið. Ég var ekki búin að leita lengi þegar ég sá vængjaða viðrinið í stofuglugganum hjá begóníunni. Ég þurfti að meta hvort ég vildi heldur bíða og drepa hann í blómalausum glugga eða drepa bæði begóníuna og hann. Ah.. hún drepst hvort eð er í vetur þegar ég hætti að nenna að vökva hana.

Ég setti mig í stellingar. Það síðasta sem þessi geitungur sá áður en WD-40 þakti hárugan pöddulíkaman og kæfði hann var illskulegt augnarráð, glott og Dr Evil hlátur.

Ég hef það fyrir sið að skilja líkin eftir í glugganum öðrum til viðvörunar.


| anna | 15:08 |
comments

Svakaleg innbyrgð reiði er þetta, varst þú líka í skóla hjá Gunnlaugi í Garðabænum eða hvað ?

Nr. 1 | posted by: dorinn | 30.07.2003 | 18:16:50 | [+] |

what Og ég sem hélt að þú gætir ekki gert flugu mein.... happy

Nr. 2 | posted by: Harpa | 30.07.2003 | 22:06:31 | [+] |

Geitungar eru ekki flugur. Þeir eru meindýr með vængi. gun

Nr. 3 | posted by: anna | 30.07.2003 | 22:12:55 | [+] |

Bætti við smá skýringarmynd...

Nr. 4 | posted by: anna | 6.08.2003 | 12:43:45 | [+] |

Flott mynd thumb up

Nr. 5 | posted by: Harpa | 6.08.2003 | 19:39:53 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web