www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tjald - mótor - ostur - kyn
Þriðjudagur, 22. júlí 2003

Mamma er orðin klikk í Kanada. Hún fann tjald sem tjaldar sér sjálft og vill gefa mér það í jólagjöf. Ekki það... hún gaf mér tjald nýlega sem geymslan gleypti og það hefur ekki sést síðan. Hún veit sjálfsagt líka að það þýðir ekkert að ætlast til þess að við kunnum að tjalda svo sjálfþenkjandi tjald sem setur sig saman af sjálfsdáðum er einmitt eitthvað sem við þurfum.

Ef augu mín svíkja ekki þá ætlar hún líka að kaupa einhverskonar mótor. Kannski er þetta svifflugvéla-tjald. Eða tjald sem hægt er að breyta í svoleiðis. Dísus.. mig er farið að hlakka þvílíkt til jólanna!

Annars fann hún líka soldið sem heitir Cheeze Whiz.. ef ég man rétt. Ég mundi það ekki áðan.. og man ekki alveg ennþá með hverju maður borðaði Cheeze Whiz í US en ég man að það var roooosalega gott. En hvað í fjandanum var það? Gætu hafa verið tortilla flögur... hmmm...

Hún skammaði mig líka fyrir að setja ravings teaser á forsíðu. Ég sem hélt að ég væri svo sniðug. Best ég setji það í kosningu næst. Annars er staðan í kynja-könnuninni svona: 36 hafa kosið. 18 konur og 18 karlar. Magnað.


| anna | 19:05 |
comments

Klikkast í´´kanada, hljómar einsog eðlilegt framhald af Vaknað i Brussel

Nr. 1 | posted by: dorinn | 22.07.2003 | 21:42:25 | [+] |

Ég vil gjarnan fá allar þessar m indir sendar í tölvu pósti, ef það er hægt

Nr. 2 | posted by: Björn Kristinn Adolfsson | 14.08.2003 | 20:45:33 | [+] |

Ertu að tala um smælingjana? Ég skil þig ekki Björn. Þú verður að vera nákvæmur, I'm dense.

Nr. 3 | posted by: anna | 15.08.2003 | 18:35:46 | [+] |

smile

Nr. 4 | posted by: íris | 30.12.2003 | 14:52:32 | [+] |

smile happy wink colgate laughing toungue hmmm nerdy embarassed shy silent doubt oogle boggled sad evil cool what sick sour [angry] drunk gnasher wave thumb down thumb up clown weepy angel pirate [eyebrows]

Nr. 5 | posted by: íris | 30.12.2003 | 14:54:01 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web