Mánudagur, 28. júlí 2003
Ég á engan pening en ég á sundkort. Því miður lánaði ég sundkortið í gær og það gleymdist að skila því. Við Doddi gátum þessvegna ekki farið í sund fyrr en klukkan rúmlega fjögur, en þá hafði kortið skilað sér.
Þegar við komum ofaní laugina var sólin, sem hafði vermt allt í allan dag, farin. Heitu pottarnir voru yfirfullir og við Doddi náðum ekki að fíflast nógu mikið til að halda á okkur hita. Við fórum uppúr. Og sjá.. sólin var komin aftur um leið og við komum út.
Ég ákvað þessu næst að þvo bílinn, sem var drulluskítugur frá síðustu sveitaferð. Í leiðinni fór ég með skítugu kanaúlpuna, sem hefur dvalið í skottinu á annað ár, í hreinsun. Ég reikna ekki með því að sjá hana aftur þar sem ég gleymi iðulega að sækja drasl í hreinsun. (Gæti útskýrt af hverju ég á aldrei nein spariföt) Leið okkar Dodda lá næst í Sorpu. Losuðum dagblaða-drasl úr skottinu og einnig sex forugar trjágreinar sem Jóhanna smyglaði með heim úr fyrri sveitaferðinni.
Ég þvoði bílinn með AutoGlym sjampói og svampi (í hvítu skyrtunni), þurrkaði honum með vaskaskinni, ryksugaði, vínyl-hreinsaði, rúðu-pússaði og bumper-glansaði.
Bíllinn minn er eins og nýr... en ég þarf að fara í bað.
Kannski hellist andinn yfir mig í baði...