www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
snillingur Jón
Miðvikudagur, 09. júlí 2003

hsnillings.gif

Alveg þess virði að kíkja á.


| anna | 0:28 |
comments

Að sumu leiti flott. Innihald lofar góðu. En ekki notendavænt. Maður nennir ekki endalaust að smella á meira og fá ekki meira. Heldur bara jafnmikið og áður en maður smellti. Kannski kann ég ekki á þetta. Má vera.

Jafnast þó ekkert á við anna.is. Til samanburðar er kosturinn við anna.is sá að notendavænni vefur finnst ekki hér á þessu jarðríki. Þ.e.a.s. ef eigandi vefsins vill að einhverjir lesi og kommenti. Tilgangurinn getur svo sem verið annar og þá er þessi gagnrýni marklaus með öllu.

Nr. 1 | posted by: igor | 9.07.2003 | 21:05:04 | [+] |

Ég linkaði á snilling - jón eingöngu út af "aðdáenda nr. 1" sem ég sá fyrir tilviljun um daginn. En vefurinn er martröð notandans og ég var ekki að mæla með uppsetningunni hjá honum. Ég þakka fyrir notendavæna kommentið frá þér um anna.is en eins og komið hefur fram þá er notendaviðmót á vefjum eitt af mínum aðal áhugamálum.

Ég ætla ekki einu sinni að byrja að æsa mig yfir þeim vonlausu vefjum sem hægt er að finna á Internetinu sem fyrirtæki hafa borgað formúgu fyrir. Harpa varð hálf smeik við mig þegar ég tók kast í hennar "viðurvist" á msn um daginn on the subject. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 9.07.2003 | 21:20:49 | [+] |

Snillingur Jón er augljóslega snillingur. Mér finnst nú reyndar notendaviðmótið ekkert alslæmt og hef ekki orðið var við að ,,meira" virki ekki. Fæ alltaf það sem við má búast. Finnst reyndar þessir randomgluggar soldið töff hjá honum.

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 9.07.2003 | 22:37:11 | [+] |

Töffkúrfan er eins og normal kúrfan (eða skattakúrfan)

Í fyrstu eyst töffið og notagildið með. Þetta gerist þangað til toppi kúrfunnar hefur verið náð. Þá heldur töffið áfram að aukast en notagildið minnkar að sama skapi þangað til töffið hefur náð hámarki og notagildið lágmarki - ekkert notagildi er eftir.

Til að lýsa hámarki töffsins er gott að nota frasann:

" Þetta er svo töff að það er ekki einu sinni hægt að nota það."

Skandínavísk hönnun er aftur á móti dæmi um hönnun þar sem töffið er í hámarki og notagildið líka. Dönsk hönnun er þar fremst meðal jafningja og má sem dæmi nefna B&O.

Nr. 4 | posted by: igor | 9.07.2003 | 22:59:17 | [+] |

Hjá B&O borgarðu fyrir hönnun, ekki endilega notagildi. Það er hægt að kaupa mun betri græjur fyrir minni pening þær eru bara ekki eins töff. Ef þú hefðir nefnt ,,eggið" eða ,,svaninn" þá hefði það verið meira í áttina.

Ég sé ekki samhengið á milli normalkúrfunar og skattakúrfunar þær eru ekkert líkar. Þót ég gefi þér séns á því að þú hafir átt við normalkúrfuna finnst mér þetta nú hálfgert bull, tökum gsm síma sem dæmi. Þót einn sími sé meira töff en annar, með myndavél, mp3 spilara, FM útvarp eða guð veit hvað, þá er alls ekki þar með sagt að hann gegni hlutverki sínu sem sími eitthvað verr.

Svo við snúum okkur aftur að randomgluggunum hjá meistara jóni, þá draga þeir ekkert úr notagildinu, nema þú missir yfirsýnina og getir ekki greint aðalatriðin. Ef við gefum okkur að aðalatriðið sé bloggið, þá er það alltaf í miðjunni og breytist ekki random eins og gluggarnir. Ergo, gluggarnir ættu ekki að skemma heildaryfirsýnina.

Nr. 5 | posted by: beggi dot com | 9.07.2003 | 23:25:40 | [+] |

Með B&O var ég að taka dæmi um hlut sem mikið er notaður daglega og sem mjög mörgum þykir MJÖG TÖFF hönnun. Nánast svona eins og "designer" hönnun. En um leið er notagildið mikið.

Ég tók í þessari umferð ekki verð inn í jöfnuna en það er síðan annað mál. Góð hönnun selur og það er margsannað mál að góð hönnun eykur líkur á að kúninn vilji borga meira fyrir hlutinn.

Ef ég man rétt þá líta þessar kúrfur eins út þ.e.a.s. eftir því sem skattprósentan eykst aukast skatttekjur hins opinbera þangað til ákveðnu hámarki er náð en þá minnka skatttekjur eftir því sem skattprósenta eykst. En kannski erum við ekki að tala um það sama.

Þess má geta að svíar reyndu á þolmörk skattakúrfunnar til hins ítrasta á sínum tíma þangað til allir sem einhverjar tekjur höfðu að ráði voru farnir úr landi. Var það einstakt dæmi um slaka skandinavíska hönnun á skattkerfi. Skilst að þeir séu betur staddir í dag.

Gemsar eru einmitt gott dæmi. Þar er sífellt verið að breyta til eingöngu í þeim tilgangi að breyta til og gera hlutinn meira töff. En notagildið gleymist. Það þykir oftast meira töff að hafa takkana litla en þegar þeir eru orðnir svo litlir að menn verða að vera með títuprjóna á sér til að hringja þá eru þeir fallnir fram af kúrfunni.

Þú hefur aftur á móti rétt fyrir þér að EF tekst að setja allt þetta í símann sem þú telur upp og SAMT endist batteríið jafn langt og áður, takkarnir eru þannig að hægt er að ýta á þá, skjárinn nægjanlega stór svo hægt er að lesa af honum o.s.frv. þá er um að ræða TÖFF hönnun með mikið notagildi. Hlut sem er á toppi kúrfunnar. Frábært ef það væri hægt.

Töff hönnun með mikið notagildi er líka hlutur sem maður er fljótur að læra á. Að maður kveiki strax á perunni. Ekki síst ef maður er bara með glóðarperu af gömlu kynslóðinni. Lengi að kveikja.

Nr. 6 | posted by: igor | 9.07.2003 | 23:45:47 | [+] |

B&O er designer hönnun, en það er ekki hönnunin sem selur B&O mest, nema óbeint. Það er nú gamla góða snobbið, eða jafnvel ,,keeping up with the Jonses" sem selur B&O mest. Það er nefnilega fínt að eiga B&O og er jafnframt tákn um að maður sé ríkur.
Hefur td BeoSound Century meira ,,notagildi" en venjulegur ,,ghettoblaster" sem kostar mun minna? Nei. Sennilega minni, mundir þú fara með Beo á ströndina? Auðvitað mundir þú gera það, ,,to prove your point", en ekki venjulegt fólk.

Hönnun á gesmum er svo annað mál, B&O gafst reyndar upp á þeim bransa, voru ekki samkeppnisfærir. Af hverju selur Nokia mest af farsímum? Af því ungu fólki, sem kaupir mest af farsímum, finnast Nokia símar vera flottir og þeir hafa það notagildi sem notandinn er að sækjast eftir. Takkarnir eru nú ekkert mjög litlir á nýjustu símunum, það minnkar nefnilega notagildi þeirra fyrir unga fólkið sem notar þá meira til að senda skilaboð heldur en að hringja. Auk þess sem að símar með myndavél eru auðvitað líka með skjá og eru þess vegna frekar stórir og því nóg pláss fyrir takka. Rafhlöðurnar í nýjum símum endast líka alveg ágætlega, ef notandinn eyðileggur þær ekki, með því að hlaða þær ekki nóg í fyrstu eða með öðrum aðferðum.

Lærdómskúrfan fyrir gemsa er nú almennt ekki mjög löng, amk, ekki ef menn ætla að nota hann sem síma, eða senda skilboð. Hvernig er að setja inn í minni, nota myndavélina, eða eitthvað slíkt er miseinfalt en alltaf frekar einfalt. Enn og aftur, símarnir eru hannaðir fyrir ungt fólk og ungt fólk er fljótt að læra, hversu auðvelt er að læra á þá kemur svo ,,töffinu" lítið við. Símar frá sama framleiðanda hafa yfirleitt sama, eða svipað, notendaviðmót, þannig að þótt þú yngir upp og fáir þér annan flottari gemsa frá sama framleiðanda, er notendaviðmótið í stórum dráttum það sama.

Þú virðist reyndar hafa misskilið upptalninguna á hlutum í gemsum hjá mér. Þetta eru hlutir sem eru í gemsum, en ekki sama gemsanum svo ég viti til. Aftur ef síminn er með myndavél er hann næstum örugglega með stórum skjá sem gott er að lesa af og aftur markhópur fyrir gemsa er ungt fólk ekki fólk sem er farið að tapa sjón en getur ekki viðurkennt að það sé farið að eldast og notar því ekki gleraugu.

En ekkert af þessu kemur því máli við hvort síða snillings Jóns er notendavæn eða ekki. Ég vil að síðustu ítreka að ég get að minnsta kosti haldið yfirsýn yfir síðuna þótt hún breytist aðeins á milli þess sem maður opnar hana, og það að sýna bara upphaf greina og að notandinn þurfi að smella á meira er ekki vandamál, það er frekar kostur þar sem notandinn getur valið það sem hann, eða hún, vill lesa. Hönnun notendaviðmóta er ekki einföld, það hafa nefnilega ekki allir sömu skoðun á hvernig þau eiga að vera. Þetta er efni sem er talvert rannsakað og er enn verið að rannsaka, aðalniðurstaðan hygg ég að sé að það er ekkert eitt rétt í því efni.

Hef ég þar með lokið að tjá mig um þetta efni, enda umræðan löngu, löngu kominn út um alla móa.

Góðar stundir
Bergþór Jónsson

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 10.07.2003 | 10:19:13 | [+] |

Það er nú alltaf gaman að leika sér úti í móa. Er líka hættur enda er ég viss um að innst inni erum við sammála.

Nr. 8 | posted by: igor | 10.07.2003 | 10:36:53 | [+] |

Eftir að hafa skoðaða snilling - jón betur hef ég skipt um skoðun. Þetta er ekki martröð, meira inngróin tánögl.

Gott dæmi um vettvang þar sem hönnuðir hafa virkilega sleppt sér er DVD notendaviðmót. Fólk finnur ekki út úr því hvernig það á að spila myndina eða sjá aukaefnið því þetta er "óhefðbundið" en rosalega áferðafallegt og "flott".

Það er auðvitað ekkert eitt "rétt" í notendaviðmóti fyrir heimasíður en það er samt margt sem hefur "sannað sig" og einfaldlega virkar. Allt sem tekur völdin af notendanum er vont, t.d. þegar bendillinn breytist, ömurleg tónlist er spiluð í lúppu, browser glugginn opnast í öllum skjánum o.s.frv. Svona grundvallar pirringur fyrirfinnst nú sem betur fer nánast eingöngu á heimasíðum tileinkuðum ömmum eða gæludýrum. happy

Fyrst við erum út í móa... komum í kapp niður að skítalæk! laughing

Nr. 9 | posted by: anna | 10.07.2003 | 11:01:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web