Mánudagur, 07. júlí 2003

Þegar ég vaknaði í morgun bloggaði ég heil ósköp og fór svo inn í herbergi að kanna ástandið. Sá að þetta þýddi ekkert lengur og ákvað að fara í Ikea að kaupa kassa til að pakka niður bókum sem komast ekki fyrir í bókahillum og eru í stöflum hingað og þangað í herberginu.
Í Ikea fann ég bókaskáp sem er ódýrari en kassar svo ég keypti hann. Keypti líka skrifborðslampa fyrir Dodda og ramma utan um myndina sem ég málaði af krökkunum um árið sem heitir "engla-blóm". (Getur verið að Ábyrgðarsjóður launa sé búin að gera upp við Tóta?)
Þegar ég keyrði heim helltist yfir mig einhver undarleg tilfinning... mér leið eins og hellisbúa sem hafði fundið virkilega stóra kjötmikla bráð og væri á leiðinni heim til fjölskyldunnar til að sýna fenginn.
Ég kom heim, setti skápinn samann á mettíma og endurskipulagði svefnherbergið algjörlega. Útkoman er vægast sagt glæsileg og núna eru allar bækur á heimilinu í bókaskápum. Fyrir utan þær sem ég er með á náttborðinu.
Á morgun ætlum við Jóhanna að gera fyrir herbergið hennar það sem við gerðum við herbergið mitt. Operation clean-sweep!
Af því að ég var að segja frá myndum barnanna minna ætla ég að sýna nokkur dæmi um snilli þeirra. Reyndar fann ég ekki myndina sem ég ætlaði að sýna frá Jóhönnu. Hún er búin að fela hana einhverstaðar fyrir mér.
Jóhanna ætlar að vera tölvuleikjahönnuður og er stöðugt að teikna karaktera í tölvuleikina sína. Ég ætla ekki að gefa upp neitt um leikina... nema þessar myndir. Ég fer ekki að gefa í burtu öll snilldar plottin sem henni dettur í hug!
Doddi teiknaði bláa Spiderman og skrifaði nafnið hans alveg sjálfur fyrir tæpum tveimur árum. Það er rétt að taka fram að þessi Spiderman er "vondi" Spiderman. Sá rauði var góður. Munsturteikninginn hans er svona týpísk Dodda teikning. Þetta er nýleg mynd af geimskipi með byssum og geimverum. Ef þú sérð það ekki.. þá vantar í þig.
Sú síðasta er líka sú yngsta, teiknuð fyrir viku, mynd sem bræðir hjarta manns. Af mér og merkt af höfundi: Anna.