Miðvikudagur, 23. júlí 2003
Ég er um það bil að fara að horfa á mynd sem mun líklega gera mig vitstola úr hræðslu. Ég læt það ekkert stoppa mig, enda sannur ofurhugi.
Síðast þegar ég lagði mig í svona hættu var ég með myndina The Gift á leigu. Tóti var farin að sofa þegar ég byrjaði að horfa. Ég var ekki búin að horfa lengi þegar ég áttaði mig á því að þetta væri draugamynd og ég yrði rosalega hrædd. Með fingurinn tilbúin á "stop"-takkanum á fjarstýringunni hélt ég áfram að horfa.
Ég þurfti að hraðspóla soldið og halda pínu fyrir augun. Þrátt fyrir þessar varúðarráðstafanir var ég svo hrædd, þegar myndin var búin, að ég horfði á tvær lélegar gamanmyndir á stöð 2 áður en ég þorði upp í rúm.
Ég sat nánast alveg stjörf úr hræðslu þar til seinni gamanmyndin byrjaði.
Þá fékk ég mér kóksopa.
Núna mun reyna enn meira á þolrifin. Ég veit ekki hvort ég lifi þetta af. Ég er að fara að horfa á What Lies Beneath. Ekki það.. hef séð hana tvisvar áður en það var í bíó. Langt frá mínu eigin baðkari. It's not the same.
...og já... ég er búin að fara í bað dagsins. Reikna ekki með því að þora eftir myndina.