Þriðjudagur, 29. júlí 2003
Þegar ég vil virkilega liggja í leti veit ég ekkert skemmtilegra en að púsla. Án gríns. Nema mér finnst bara gaman að púsla púsluspil frá Heye, eftir Ryba og Loup. Fyrsta púsluspilið sem ég eignaðist eftir Ryba heitir "Big Attack" og er frá 80-og eitthvað. -->
Heye er líklega þekktast fyrir Mordillo púsluspilin.. en mér finnst þau ekki eins skemmtileg.
Ég er því miður löngu búin að týna þessu púsluspili. Sorglegt. Ég er einmitt í stuði til að reyta hár mitt og skegg í örvæntingarfullri tilraun til að fá öll þessi helvítis bláu púsluspil til að passa saman og finna út hvaða helvítis skýi hvert púsluspil tilheyrir.
Hér fyrir neðan er hluti af öðru púsluspili eftir Ryba sem heitir "Romantic Town" og var gefið út árið 1985. Ef þú vilt sjá púsluspilið í allri sinni dýrð getur þú smellt á myndina.

Eitt af takmörkum mínum í lífinu er að eignast "Romantic Town" og púsla það áður en ég verð orðin of illa haldin af sjónleysi og liðagikt í fingrunum. Hvar á maður séns á að finna þetta?
Það er allt hægt.. þökk ebay-Germany... Svo lærir maður smá þýsku í leiðinni...
Þangað til ég finn það verð ég bara að láta "Castle Of Horror" (2000-26127) eftir Loup duga mér. Já.. eða "Who Did It?" (2000-8675) eftir Ryba sem er algjör snilld.