Laugardagur, 26. júlí 2003
Eins og lesendur mínir vita er skjákortið mitt í fokki. Daginn sem ég komst að þessu var ég nýbúin að versla mér langþráða digital myndavél. Murphy's Law?
Ég var í arfavondu skapi þennan dag (eftir klukkan sjö, þegar ég komst að þessu) og fannst lífið allt tilgangslaust og ömurlegt. Tóti kom í heimsókn og ég sagði honum frá óförum mínum. Hann hlustaði á mig og þegar ég var búin að ausa úr skálum reiði minnar sagði hann mér mér sögu. Hann sagði mér söguna af konunni sem komst að því að þegar hún fengi ekki það sem hana langaði í.. þá væri það vegna þess að æðri máttur vildi að hún gerði/fengi eitthvað annað.
Ég horfði á hann og langaði til að gubba. Æðri máttur? Æðri máttur!
Hvern andskotann er æðri máttur að koma og fokka upp mínum plönum? Hvað? Má ég ekki eiga digital myndavél og fá að vinna myndirnar í tölvunni? Djöfuls æðri máttur alltaf... Klúðrar lífi mínu endalaust...
Tóti þagði.. enda búin að öðlast æðruleysi þótt hann sé soldið hræddur við að sýna það á síðunni sinni. Oh well.
Þegar ég komst svo að því í gær að viftan er farin í skjákortinu og það er ÓNÝTT varð ég ennþá skapverri. Ég sá fram á að þurfa að kaupa nýtt skjákort þar sem þessu var ekki viðbjargandi og ég var nýbúin að eyða öllum peningunum mínum í myndavélina sem þarf að nota við fúnkerandi skjákort.
Fari æðri máttur til helvítis hugsaði ég í baði og vorkenndi mér af mikilli ástríðu.
Í gærkvöldi hringdi svo síminn. Það var pabbi. Hann sagði: "Anna. Ég var að spá í að gefa þér bara það sama og ég gaf systur þinni í afmælisgjöf". Ég hugsaði: "Ó-vei. Andlitsbað og eitthvað svoleiðis." Algerlega óhæf til að gleðjast yfir nokkrum hlut þar sem tölvan mín lá á skurðarborðinu (eldhúsborðinu) og ég vissi að líf hennar var að fjara út.
"Já, ég ætla að gefa þér þrjátíu þúsund kall" sagði pabbi.
Ég skil ekki af hverju Jesú birtist mér ekki á þessu andartaki. Það hefði verið svo viðeigandi. En það er víst engin leið að gera mér til hæfis...
Þegar símtalinu lauk sleppti Tóti því að segja: "I told you so" en hann sagði: "ætli æðri máttur hafi bara ekki viljað að þú eignaðist betra skjákort" Svo brosti hann.
Vegna þessa er vélin mín up AND RUNNING og ég hef tekið gleði mína. Því þrátt fyrir að þvottavélin hafi gefið upp öndina í morgun er ég sannfærð um að eftir nokkra daga komi til mín góðhjörtuð manneskja sem gefur mér miklu betri þvottavél.
Amen.